Fálkinn - 06.12.1930, Page 6
6
F A L K I N N
Málverlc af sögulegum atburöi. Myndin sýnir er fullveldi Brasilíu var lýst yfir 7. sept. 1822 á bakka Iper-
angaár i Sao Paulo. Litla myndin sýnir Don Pedro annan, sem rekinn var frá völdum 1889.
eftir langar deilur þá höfðu þeir
betur. Portúgalar höfðu þó litla
ánægju af þessari nýju landar-
eign sinni, þvi eins og sakir stóðu
gat ekki verið að ræða um versl-
unarkúgun á landinu eða námu-
gröft þar, en það tvent var aðal
keppikefli landnámsþjóðanna í
lok 15. aldar. Það var ekki fyr
en eftir að farið var að rækta
sykurreyrinn í Brasilíu, að land-
ið fjekk verslunarlega þýðing
fyrir Evrópu, en þetta var á ár-
unum 1520—30. Besta reyrteg-
undin kom frá Madeira og þreifst
betur í Brasilíu en í hinu upp-
runalega heimkynni sínu. Jafn-
framt fóru portugalskir aðals-
menn að nema land í Brasilíu.
Landinu var skift í landnám, sem
kölluð voru „capitanes“, er feng-
in voru þessum mönnum að ljeni
gegn því að þeir ræktuðu svo og
svo mikið af sykurreyr á ári
hverju og framleiddu sykur. Af-
leiðingin varð sú, að um alda-
mótin 1600 voru í landshlutan-
um kringum Pernambuco komn-
ar 66 og fjörutíu árum síðar 166
sykurgerðir.
Meðan þessu fór fram í nýja
landinu gekk margt á trjefótum
í Portugal. Árið 1580 lögðu Spán-
verjar Portúgal undir sig, en með
því að SpánVerjar, sem þá voru
eitt af mestu stórveldum hins
gamla heims, gerðu ekkert til
þess að halda tengslunum við
Brasilíu, notuðu bæði Hollend-
ingar og Englendingar tækifær-
ið. Sykurframleiðslan var í fullu
gengi þegar Hollendingar brut-
ust inn i Brasilíu árið 1630. En
það tók sex ár fyrir þeim að
leggja Norður-Brasilíu undir sig,
og þó að vísu megi- enn sjá ýms-
ar menjar yfirráða þeirra í Per-
nambuco, þá urðu yfirráðin ærið
skammvinn, því að Portúgalar
gerðu uppreisn gegn þeim árið
1644. Náðu þeir á skammri stund
undir sig öllum sykurræktar-
héruðunum og eftir níu ára lát-
litla styrjöld urðu Hollendingar
að verða á burt úr síðasta vígi
sínu, bænum Recife de Pernam-
buco, 26. janúar 1654. Eftir þessa
styrjöld viðurkendu stórveldin
öll yfirráð Portúgala yfir Brasil-
íu. En eigi var bitið úr nálinni
fyrir því. -
Fram á átjándu öld var Brasi-
lía svo mesta sykurframleiðslu-
land heimsins, en þá fundust gull-
og demantsnámur í suðurhluta
landsins og dreifði þetta hug
manna frá sykurframleiðslunni.
Um miðja 18. öld var svo farið
að rækta sykurreyr í Vestur-
Indium og kom þar fram hættu-
legur keppinautur. Gullnámurn-
ar i Brasilíu reyndust ekki end-
ingargóðar og horfði því nú svo
við, að þetta ríka land mundi
vera orðið þurausið að náttúru-
gæðum. Engum datt í hug, að
jurt, sem um þetta sama leyti var
byrjað að rækta í Brasilíu mundi
bjarga landinu við og gera það
að forustulandi á ný, i annari
framleiðslugrein. Það var kaffið,
sem um þessar mundir var byrj-
að að rækta. Og borgin Santos í
Brasilíu hefir um langt skeið
verið mesta kaffiútflutningsborg
heimsins og er enn.
Á 19. öld komst alt á ið í Suð-
ur-Ameríku. Öldur frönskustjórn
arbyltingarinnar náðu þangað.
Suður-Amerika sleit sig undan
kúgurunum á íberaskaganum,
enda liafði nýlendustjórn þeirra
verið frámunalega ill og skamm-
sýn. Fyrst liófu þau löndin upp-
reisn, sem lágu undir Spán.
En viðskilnaður Portúgals og
Brasilíu gerðist með einkenni-
legu móti. Árið 1807 lagði Napó-
leon Portúgal undir sig og flutt-
ist þá konungsfjölskylda Portu-
gals til Brasiliu, sem þá fjekk
verslunarfrelsi. En 1816 fór
Porfúgalskonungur á ný til Ev-
rópu en skildi eftir son sinn, Don
Pedro og gerði hann að ríkis-
stjóra í Brasilíu og var stjórnar-
skipuninni breytt þannig, að
Brasilía skyldi verða frjálst sam-
bandsland Portúgals. En um þess
ar mundir voru Spánverjar íaus-
ir orðnir undan oki Napóleons
og reyndu þeir að gera Brasilíu
að nýlendu, eins og hún hafði
áður verið. En þetta ýtti undir
sjálfstæðismeðvitund Brasilíu-
manna og Don Pedro studdi þá
að málum. Hinn 7. september
1822 lýsti Brasilía yfir fullu sjálf-
stæði sinu og 12. október sama
ár var Don Pedro gerður að keis-
ara. Það reyndist honum samt
ofurefli að friða landið og 1831
var hann orðinn svo saddur á
tigninni að hann afsalaði sjer
keisaradómi og ljet gera son sinn
6 vetra, að keisara og skipa hon-
um meðráðamenn. Þegar hann
liafði náð lögmætum stjórnar-
aldri tók hann sjálfur við völd-
um og reyndist hinn ágætasti
stjórnari. Voru stjórnarár lians
hin mestu blómaár í sögu lands-
ins. Hann nam þrælahald úr lög-
um þrátt fyrir hina megnustu
mótspyrnu stórbændanna, árið
1888. Voru þá 600—700 þúsund
svartir þrælar i landinu. En við
þetta gengu stórbændurnir ná-
lega allir i andstæðingaflokk
hans og sá flokkur heimtaði lýð-
veldi. Þrátt fyrir ágæta stjórn
Don Pedro annars, var hannrek-
inn frá ríkjum og vísað úr landi,
15. nóvember 1889. Reyndi hann
aldrei að hrjótast til valda eftir
það.
Siðan hefir Brasilia verið lýð-
veldi. En þar hefir jafnan verið
ókyrt undir hinu nýja stjórnar-
fari, flokkadrættir sem hvað eft-
ir annað liafa leitt af sjer bylt-
ingar.
Samkvæmt opinberum skýrslum
hafa 57.G40 manns í Berlin sagt sig
úr söfnuðum s'num í fyrra. Meiri
hlutinn er karlmenn eSa alls 33.199.
Af öllum þessum fjölda hafa 50.491
sagt sig úr mótmælendasöfnuSum,
6.570 úr rómverskkaþólskum og 579
úr gySingasöfnuSum. Ekki getur
fregnin þess hvort þetta fólk hafi tek-
iS Ásatrú, sem þeir Ludendorff hers-
höfSingi, Hitler og fleiri eru aS hoSa
lýSnum.
----x----
Þegar þýska rikisþingið var selt
í haust gerSist skrítiS atvik. Iiinir
svokölluSu borgaralegu þingmenn
mættu allir í kjólfötum og hvítuin
línskyrtum, kommúnistar í cltlrauö-
um skyrtum og Hitlers-mennirnir
eSa „nazi“mennirnir svonefndu í
bláum skyrtum. Á þann hátt varS
salurinn yfir aS líta eins og veriS
væri aS minnast franska fánans, sem
hefir þessa þrjá liti.
Fallhlifin, sem heita má björgnn-
arbátur flugmannanna, er altaf aS
verða fullkomnari og víða er lögboð-
ið að hafa fallhlifar til taks í flug-
vjelum. Mesta stökk, sem gert hefir
verið með fallhlíf gerði Þjóðverjinn
Gerhard Fieseler nýlega. Hann stökk
út úr flugvjelinni i 5166 metra hæS
og var þar um 30 stiga frost. Flug-
vjelin var 56 mínútur að komast til
jarðar en Fieseler ekki nema 20 mín-
útur. Er þetta stökk heimsmet.
Strœtaverslun með sykurkökur í Bahia