Fálkinn - 03.01.1931, Blaðsíða 8
F A L K I N N
ð
......‘y—w'-ffiw.
•■■■ -■':
• • . 1" • > ..v, J : :
.. - ' ; b.;; t J Áz
Lýðveldishreyfingin vex hröð-
um slcrefum á Spáni. Þar hefir
lengi verið ólga undir niðri gegn
k'önungsvaldinu, eins og meðal
annars má marka af því, að nú-
verandi Spánarkonungi hefir
verið sýnt banaiilræði þrettán
sinnum og má það heita undur,
að hann skuli ennþái vera í tölu
lifandi manna. A ófriðarárun-
um var alt með kgrrum kjörum
ú Spáni, en upp úr ófriðnum
lenti Spánverjum í alvarlegum
skærum við nágranna sína
sunnan Njörvasunds. Hugðust
Spánverjar að kúga þá til frið-
ar og undirgefni, en hinir her-
skáu Kabylar voru harðir í horn
að taka og stóð ófriðurinn í
mörg ár og kostaði Spánverja
firn fjár og mannslífa. Við þær
ófarir efldist sóknin gegn
spönsku stjórninni og týðveldis-
hreyfingunni óx ásmegin, en
náði þó eigi fullum sigri. Rivera
gerðist einvaldsherra að dæmi
Mussolini en tókst ekki að friða
landið, því að hvert samsærið
var gert gegn honum á fætur
öðru og sum svo alvarleg, að
minstu munaði að þau hepnuð-
ust. Varð Rivera að segja af sjer
að lokum og flýja land og and-
aðist hann skömmu síðar á
Frakklandi. En eigi kom sú
stjórn í hans stað, sem friðað
gæti landið. Ilefir gengið á bylt-
ingatilraunum og verkföllum
síðan og eykst lýðveldissinnum
fylgi si og æ. Og núna fyrir jól-
in hófst allsherjarverkfall ná-
lega um alt land. Gengur ekki
á öðru en ærslafundum og upp-
hlaupum á götum úti og skær-
um milli almennings og vopna-
liðs og lögreglu. Iljer á efri
myndinni sjest ríðandi lögregla
og á þeirri neðri múgfundur
fyrir utan Madrid.
1 hinu fræga Louvre-safni í París hafa stúlkur nú verið settar
til þess að leiðbeina gestum, í stað gamulla karla. Stúlkur þess-
arhafa allar verið meniaðar á Louvreskólnum og geta gefið all-
ar upplýsingar um safngripina. Á myndini sjest ein stúlka með
hóp amerískra gesta.
Kishibe próf.essor, sem stjórnar barnagarði einum l Tokio er
kunnur meðal allrar japönsku þjóðarinnar fyrir það hve vel
hann segir æfintýri. Er hann á ferð um Evrópu núna, til þess
að safna æfintýrum þar. Myndin sýnir prófessorinn með „börn-
in sín“ i Toklo.