Fálkinn - 03.01.1931, Blaðsíða 15
FÁLKINN
15
Nýjasta
Ijósmyndastofan
er opnuð í Aðalslræti 8 (áður Vigfús Guðbrandsson). öll
verkfæri scm notuð eru, eru af vönduðustu gerð, til dæmis
eru öll rafljcsatæki sem notuð eru við myndatökur með
allra nýjast fyrirkomulagi, öll vinna aðeins afgreidd úr
allra besta verkefni, og full ábyrgð tekin á vönduðustu
vinnu, og frágangi.
Ljósmyndastofan er opin á virkum dögum
frá kl. 10—7 og á helgum dögum frá kl.
1—4. Sjerstakan myndatöku tíma má ávalt
panta í síma 2152, einnig eftir kl. 7 síðdegis,
eftir nánara samkomulagi.
Verð á ljósmyndum minum verður dálítið lægra en alment
er hjer, vona jeg að það dragi ekki úr viðskifUun.
NB. Ljósmyndastofa mín hefir áður starfað hjer í bæ
um tíu ára tímabil og naut þá almennra vinsæida
viðskiftamanna, og vona jeg að sama megi reyndin
verða nú, ekki síður.
Vöruhús ljósmyndara og „Amatör“ vinnustofur mínar eru
fluttar á sama stað, og öll vinna þar að lútandi afgreidd
sem áður.
Virðingarfylst
Garl Ólafsson, Ijósm.
giiiiiiBiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuia
■n . . mt
r
Utvegsbanki islands h.f.
ávaxtið sparifje yðar í Útvegsbanka
íslands h. f.
Vextir á innlánsbck 4'/2% p.
Vextir cejrn 6 mánaða
viðtökuskírtcini 5% p. a.
a. "
Vextir eru lajrðir við höfuðstólinn
tvisvar á ári or þcss vefrna raun-
verulega hærri en annarsstaðar.
■IIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIM
Framhald af bls. 2.
Myndin „Leyndardómar Sargasso-
hafsins“ segir frá skipinu „Queen“
sem er á leið frá New York frá Porto
Rico. Um borð er Jackson lögreglu-
maður með fanga einn, Frank Ho-
ward, sem er sakaður um að hafa
myrt konu sína og á nú að taka út
hegningu sína í Sing Singfangelsinu.
í Sargassohafinu rekst skipið á
rekald af öðru skipi og verður svo
lekt, að farþegarnir verða að yfir-
gefa það. Fanginn er fjötraður niðri
i klefa sínum og lögreglumaðurinn
og ung stúlka, Dorothy Renvick
fara undir þiljur á siðustu stundu
tii þess að bjarga honum. Þegar þau
koma upp aftur eru allir farnir frá
borði og enginn bátur eftir á skip-
inu. Þau reka í nokkra klukkutíma
á skipinu og lenda loks inn í hring-
iðu þanghafsins. Þar rekast þau á
fjölda annara skipa, sem hafa strand-
að í hafinu fyr og siðar og er þang-
breiðan svo þykk, að skipin sökkva
ekki. Þarna finna þau fólk, sem lif-
að hefir á flökunum árum saman,
eru þar aUs 54 manns, en aðeins
tvær stú'.kur. Foringi þessarar ný-
lcndu“ er hvalveiðaskipstjórinn For-
bes og ákveður hann þegar að taka
sjer Dorothy fyrir konu. Eru það ó-
skráð lög, að kvennfólkið verður að
giftast undir eins, til þess að fyrir-
byggja deilur um það meðal karl-
mannanna. En Dorothy neitar að
eiga Forbes en velur F'rank Howard,
fangann sem sakaður var um konu
morðið.
Forbes verður fokreiður og skor-
ai á Howard að berjast við sig, en
sú viðureign fer þannig, að Howard
hefir betur, en hinn er ekki af baki
dottinn fyrir því, enda hefir það eigi
ósjaldan viljað tiL, að þeir sem hafa
átt failega konu þarna, hafa orðið
skammlífir.
Eitt af skipunum sem lent hefir
þarna i þanginu er kafbátur. Frank
Howard tekst að koina lionum í lag
og freistar nú að komast i burt á-
samt Dorothy og lögreglumanninum.
Það tekst því að báturinn getur siglt
undir þanghafinu. Og þegar til New
York kemur tekst Frank að sanna,
að ákæran gegn honum var fölsk og
að hann er sýkn saka.
Aðalhlutverkin í þessari mynd,
sem tekin er af First National cru
leikin af Virginia Valli, Jason Ro-
barðs, Noah Beery og Robert O’-
Connor. Hún verður sýnd bráðlega
í Nýja nió.
Myndirnar, sem fylgja sýna ýms-
ar tegundir skipa, sem farið hafa
yfir At antshaf og koma fram í þess-
ari kvikmynd.
LÝSANDI DEMANTINUM STOLIÐ
Fyrir nokkru hvarf geysi stór
demanlur í Parisarborg. Er hann
metinn á 700.000 krónur. Eigandi
hans var ungfrú Gandini, kona af
heldra tagi í Parísarborg. Hefir hún
í mörg ár verið mikil vinkona eins
Orleansprinsinn og er hún nafnkunn
meðal æðri stjettanna. Hún á hús í
nánd við París þar sem hún er vön
að dvelja nokkra mánuði ársins. En
annars á hún heima í Nizza.
Fyrir 20 árum síðan erfði fröken
Gandini talsvert af skrautgripum eft-
ir eina frændkonu sína, Porabcre
greifafrú. Dýrmætastur var demant
sá, sem sagt hefir verið frá. Hann
var 44 karatar að þyngd. Þessi
þungi er að visu nokkuð minni en t.
d. þyngd Kohinoor eða Orlov-de-
mantsins, en hann er að því leyti
merkilegri en flestir aðrir demantar
að hann lýsir i myrkri. Allir, sem
sjeð hafa steininn undrast hann stór-
um, enginn hefir getað komið með
skýringu á þessu merkilcga fyrir-
brigði. En auk þess virðast vera önn-
ur dúlaröfl, sem steinninn býr yfir.
Um hann hafa myndast merkilegar
sögur eins og marga aðra gimsteina.
Er álitið að steinninnn ráði mjög
örlögum eigandans. Fyrri eigandi
hans, Porabere greifafrú fórst af slys-
förum. Frændi hennar, sem arf-
leitt hafði hana af steiniiumi dó
einnig voflega. Það er að segja með-
biðill hans skaut hann til bana þreni
dögum eftir að steinninn var kom-
inn í eigu hans. Brasiliumaður nokk-
ur Johnson að nafni hafði verið
svo mikill hrakfallabálkur að hann
ákvað að selja stcininn. Eini mað-
urinn, sem ekki hefir orðið fyrir ó-
hamingju af völdum steinsins cr
maðurinn, sem fann hann i Transvaal.
Ha.nn seldi steininn nefnilcga strax
og liann fann liann fyrir lnmdrað
]uind. — Fröken Gandini hafði held-
ur ekki orðið neitt fyrir töfrum
steinsins. Hún hafði beðið gimsteina-
sala einu í París að geyma haun fyr-
ir sig, en dag nokkurn seldi gim-
steinasali þessi verslun sina og hvarf
og hefir ekki fundist.
----x----
Sjómaður nokkur í New York,
Michael Fiiosa vaknaði nýlega við
það, að hann stóð með blóðugan rak-
hnif í hendinni og hafði myrt stjúp-
bróður sinn og sært móður sína, svo
að hún var í lífshættu. Sjál.fur vissi
hann ekkert um ódæði það, sein
hann hafði unnið og enginn vissi
annað, en honum væri mjög vel til
móður sinnar og stjúpbróður. Hann
átti vanda til að ganga i svefni og
er talið víst, að hann hafi verið al-
veg óvitandi um hvað hann gerði,
fyr en eftir á.
1 British Museum (fyrir framan
cina múmiuna); — 1420.... hvað
skyldi það númer þýða.
— Ætli það sje ekki númerið á
bílnum, sem ók yfir hanuV
Vetrarkápur,
Vetrarfrakkar,
Trefiar, Hanskar,
Hattar, Húfur,
Regnfrakkar, mikið úrval.
Verslunin Egill Jacobsen