Fálkinn


Fálkinn - 04.04.1931, Blaðsíða 6

Fálkinn - 04.04.1931, Blaðsíða 6
6 F A L K I N N Kristur er upprisinn. Páskahug-leiðing eftir síra Árna Sigurðsson fríkirkjuprest. „En nú er Kristur upprisinn frá dauðum sem frumgróði þeirra sem sofnaðir eru“ (1. Kor. 15, 20). Kristur er upprisinn! Snemma urðu þau orð fagnaðarkveðja kristinna manna. Þau sjeú þá líka páskakveðja vor, er berist frá manni til manns. Það eru tíð- indin, sem páskarnir flytja kristnum mönnurn um allar álf- ur líeims. Og hvilík er sú fagn- aðarfylling, sem í þeim tíðindum er fólgin: Liðinn er sorgartimi föstunnar. Ljósgeislar upprisu- morgunsins faila nú jrfir Gol- gata þar sem myrkrið huldi krossinn og skýin grúfðu yfir á hinum langa föstudegi. Og þetta hið sama ljós fellur nú i dag yf- ir skuggadali jarðlífsins og harmabrautir mannanna barna. Sjá, ljós er yfir öllu! Páska- morgunn er lífgjafi, sem haðar dagrenning þar sem áður var nótt. Þess vegna syngjum vjer sigursöngva á páskum, fögnum sigurlietjunni, sem kom úr him- indýrð og leiddi í ljós líf og ó- dauðleika. Páskar eru sigurhátíð Krists umfram alt. Kristur er upprisinn! Englar birtast, bjartar skínandi verur, íbúar þeirra heima, er einnig geta orðið vor framtíðarlönd. Vjer sjáum inn fjTÍr fortjald það er skilur heimana. Vjer sjáum í anda Jakobs-stigann, og engla Guðs stíga upp og stíga niður, liimneskar verur birtast og bverfa. Vjer skiljum þar, af því að vjer sjáum, afskifti æðra heimsins af vomm heimi, Óaf- máanlega greypa páskarnir þá sannfæringu inn í sálir manna, er gera sjer grein fyrir atburðum þeirra, að liinn andlegi heimur sje oss næi’, en dagleg vitund vor fær skynjað. Sjálfur hirtist hinn upprisni drottinn vinum sínum í björtu dagsljósi, slæst í för með Emaus-lærisveinunum, og talar við þá, svo að hjörtun taka að brenna, keinur inn til postul- anna að luktum dyrum, en get- ur þó látið Tómas hinn efa- gjarna þreifa á sjer, til þess að gefa honum fagnaðarsælu trú- arvissuna, er knýr liann til að lirópa í lirifningu fagnaðarins: Drottinn minn og Guð minn! Dýrðlegir og óvenjulegir eru þessir athurðir. En ramlega eru þeir rökstuddir af sannorðum sjónarvottum. Og síðan af ýmis- legri, dýrmætri reynslu manna á öllum öldum. Enn i dag ber slík reynsla mönnunum þennan vitnisburð um hinn upprisna drottin: „þú Kristur, ástvin alls sem lifir, ert enn á meðal vor. Þú ræður mestum mætti yfir og máir dauðans spor. Þú sendir kraft af hæstu hæðum svo himinvissan kveikir lif í æðum, og dregur heilagt fortjald frá, oss fegurð himins birtist þá“. Kristur er upprisinn! Ljósi hregða páskarnir yfir flóknustu gátur og römmustu rúnir mann- lífsins: Alt böl lífsins verður bætt um síðir. Endurgjald og umbun eiga þeir í vændum, sem liðu og dóu saklausir, fyrir hið sanna og góða, og liuggun og harmabót þeir, sem tíðum feldu tár kærleikans. Ekkert er til- gangslaust, ekkert týnist nje gleymist í tilveru Guðs; öllu lieldur liann til skila. Annað líf er í vændum, sem dauðinn fær eigi sigrað nje gröfin baldið. Hve dýrðlegt ljós yfir lifsgát- urnar! Hvílík hvöt og sigur- lcraftur í baráttu lífsins! „Nú vor blómgast náðarhagur, nú sjer tíminn eilíft ljós“. Vinur minn getur verið lirif- inn frá mjer, slitinn úr faðmi mínum með ósigrandi afli dauð- ans. „En jeg veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn“. Sorgin, óttinn eða kvíðinn geta hyílt á mjer sem mai’tröð, grúft yfir sem kolsvart ský. „Hverf- idt getur reynst líf, heilsa og hamingja. En það veldur mjer eigi ólæknandi hrygð, því að jeg veit, á hvern jeg trúi, og er þess því fullviss, að „þótt holdið sjálfu sjer hverfi sýn, þótt liísm- ið vinni sjer dánarlín, er llfið þó sannleikur. ..“ Þannig opna páskar Krists lifinu jafnan ný svið. Nýir veg- ir hlasa við, þar sem áður voru skuggalegar vegleysur. Ný tæki- færi, nýir möguleikar. Því er ekki þörf að æðrast, þótt von- brigði, vinamissir, dauði og dap- urleiki myrkvi lijer marga stund. Þrátt fyrir alt er lífið ekki blóð- rás og logandi und, heldur sigur og guðleg náð. Þennan boðskap, sem páskarnir fluttu fyrst lirygg- um ástvinum liins krossfesta lausnai’a, flytja þeir sorgarbörn- u.m enn í dag, öllum sem trúa og eru sannfærðir. Upprisustað- reyndin í kristinni trú befir um- fram alt verið það sigurafl, er sigraði heiminn. Og hún verður það enn. Því að enn eru menn- irnir að keppa að því að skilja liana sem best og trúa henni. Páskana ber upp á vortím- ann. Stundum eru þeir sumrinu samferða. Er fagurt samræmi i því. Því að páskarnir boða fögn- uð þann, sem er fólginn í þess- um orðum skáldsins:: „Vjer sjáum hvar sunmr rennur með sól yfir dauðans haf, og lyftir í eilífan aldingarð því öllu, sem- Drottinn gaf“. Kristur er upprisinn! Dauð- legi maður! Drottinn þinn hfir! Ris þá á fætur í páskamorgun- roða, heilsa með fögnuðí von- inni um eilífan dag, og lifðu Guði meðan lifið endist, svo að hvorki líf nje dauði aðskilji þig og Iírist. Þá treystir þú öruggur eilífu loforði hans sem ekki mun bregðast: „Jeg lifi og þjer munuð Iifa?“ Amen. Kristur lifir! Lærisveinum Jesú liefir víst aldrei liðið jafn illa, eins og daginn milli dauða lians og upprisu. Það var þeim eins og sólin væri gengin undir og mundi aldrei koma upp framar. Það var nótt, biksvört nótl í hjörtum þeirra. Þeir höfðu vænst svo mikils af Drotni sínum og meistara. Þeir höfðu bygt sjer svo bjartar skýja- borgir og gert svo glæsilegar áætl- anir um framtíðina. En nú var alt fallið sainan, alt hrunið og orðið að rústum. Jesús var dáinn! Þeir vissu naumast hversvegna hann var dáinn og voru alveg búnir að gleyma þvi, sem liann hafði sagt, að Manns-sön- urinn ætti að risa upp á þriðja degi. Og enn í dag eru til trúaðir menn — það mætti kalla þá páskalaugar- dagskristna — sem eru alveg eins á vegi staddir, eins og lærisveinar Jesú voru milh langafrjádags og páska- dags. En íhgum þetta nánar: Getur dauð- ur Kristur verið frelsari heimsins? Nei, alls ekki! Það er fjarstæða, ó- sannindi! Trúarhrögð Jesú eru trúar- brögð lífsins. Boðskapur hans var: Jeg er upprisan og lífið! Og englar himins vottuðu: Hann lifir! Frum- herjar kristinnar kirkju trúðu á lif- andi Krist og prjedikuðu lifandi Krist. í ómótmælanlegum vitnisburð- um Heilagrar Ritningar finnum vjer hann lifandi. Og hver sá, er stendur augliti til auglits frammi fyrir hinum upprisna kristi, kemst að raun um það, að hann gefur glötuðum synd- ara vald til að verða Guðs harn. Já, hann lifir í lijörtum lærisveina sinna! Það var og er enginn annar en hinn upprisni Frelsari, sem skapar upprisugleði í hjörtum .lœrisvein- anna. Hve dapurlegt var ekki ferða- lag lærisveinanna tveggja út til Ema- us á Páskadagskvöld! Hvílík lirygð lýsir sjer ekki i þessari játningu þeirra: „Vjer vonuðmn að hann væri sá, er leysa mundi ísrael. Og auk alls þessa er í dag þriðji dagurinn, siðan Jietta bar við“. En sjáum svo þessa sömu menn stundu síðar á leið upp til sorgbitinna félaga sinna i Jerúsa- lem. Sjáið, hvernig gleðin ljómar í augum þeirra, hve ljettir Jieir eru á sjer, þrátt fyrir erfiðleika dagsins. Sjá, hvernig þeir hlaupa heim Emaus- veginn, sem áður var þeim svo þung- fær og þreytandi. Og hvað veldur gleði Jieirra? Jú, upprisni meistarinn hefir opinberast þeim, um leið og hann blessaði brauðið við fátæklega máltið Jieirra. Það var upprisugleði í sálum þeirra! Og er það ekki einmitt þessi sama gleði, sem Guð vekur enn í hjörtum barnanna sinna, þegar þau í sannleika Iæra að þekkja hinn upprisna Krist? Ömurlegt og hrollkalt myrkrið verð- ur að víkja fyrir óumræðilega sælli gleði hins lifanda Frelsara, sem nú fyllir sálina. Hinn upprisni Kristur skapar „upp- risu-kristna“ menn. Þú liefir ef til vill ekki heyrt það orð fyr, og þjer finst Jiað máske óviðfeldið? En litum á, hvað það táknar: Upprisu-kristnir eru þeir menn, er gengið hafa í dauðann með Jesú, krossfestir frá synd og heimi, kross- festir með Kristi og hættir áð lifa sínu gamla lífi. Upprisukristnir — Það eru þeir, er sagt geta með sanni: „Sjálfur lifi jeg ekki framar, held- ur lifir Kristur í mjer. En það sem jeg þó enn lifi i holdi, það lifi jeg í trúnni á Guðs Son, sem elskaði mig og iagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig“. Upprisukristnir — það eni þeir, sem gert hafa heiminum makleg skil og bíða þess, eins og Kristur eftir upprisuna, að verða hrifnir upp til himins. „Vjer, sem höfum frumgróða Andans, jafnvel vjer, stynjum með sjálfum oss, bíðandi eftir sonarkosn- ingunni, endurlausn. líkama vors“. „Því að náð Guðs hefir opinberast til hjálpræðis öllum mönnum, og kennir lnin oss áð .... bíða hinnar sælii vonar og dýrar-opinberunar hins mikla Guðs og frelsara vors Jesú Krists“. Iiugsum oss, hve undursamlega sæluríkt líf það er, að bíða þannig liins upprisna lifandi Frelsara, biða endurkomu hans i skýjum liimins, — biða umbreytingar og endurlausnar líkama vors og brotthrifningar til að inæta Drotni í loftinu. Það er upp- risulíf og upprisuvon. En ef Kristur er ekki upprisinn, er trú yðar ónýt“ segir Páll, „þjer eruð þá enn í syndum yðar.... og þá liinir aumkvunarverðustu allra maiina", En nú lifir Frelsari vor! Hann lif- ir, dýrðlegur gjörður hjá föðurnum, og frá liimni dýrðarinnar mun á sin- um tima raust lians liljóma til bræðra vorra og systra, er sofnaðir eru i trú á hann. Daúðinn og gröfin verða að sleppa lierfangi sínu. Heimfarnir hermenn skulu fá að mæta frelsuð- um ástvinum og aldrei framar við Þá skilja.---- Var það ekki vegna þessarar von- ar, sem Páll gat svo fagnandi sagt: „Lífið er mjer Kristur og dauðinn á- vinningur". „Hvort sem vjer lifum, lifum yjer Drotni, eða vjer deyjum, þá deyjum vjer Drotni“. Var Jiað ekki Jiessi mikla bjarg- fasta upprisuvon, af Guði gefin, sem fyllti hjörtu píslarvottanna, svo að þeir á blóði-drifnu vígsviði og inn- an um öskur óargadýra gátu sungið lofsöngva, Guði til dýrðar? Þó að mörgum kunni að þykja sem Jietta sjeu draumórar, og ])ó áð þeim fari æ fjölgandi, sem efast og gleyma að vænla konungsins í skýjum him- ins, þá mun þó ætíð ofurlítill hópur verða valcandi, fullur eftirvænlingar og viðbúinn að mæta Drotni sínum. í vantrúar-myrkviðri þessara síðustu tíma játar Jiessi litli hópur Guð sinn hiklaust og væntir endurkomu Son- ar hans. Og liann fær að reyna það, að eftirvæníing lians var ekki árang- urslaus, þvi að Jesús lifir! Enginn, sem á hann trúir, skal verða fyrir vonbrigðum. Fr. Mangs. (Á. Jóh.). ----x---- Vjer hjeldum heim — í vetur hefir birst í nokkrum erlendum stórblöðum áframhald liinnar heimsfrægu hókar „Tíð- indalaust á vesturvígstöðvun- um“ eftir Erich Maria Remar- que en innan skamms kemur hún út í bókarformi. Saga þessi heitir „Vjer hjeldum heirn — og er nú byrjað á prentun henn- ar á íslenzku, í þýðingu Björns Franzsonar stúdents. Þessi bók hefst á heimförinni af vígstöðv- unum, en aðalefni hennar er tekið úr lífi hermannanna, eftir að heim var komið. Lýsir liún aðdáanlega sálarlifi þeirra og hve hugsanirnar voru bundnar við vígvöllinn, þótt slopnir væru heilir úr ógnum lians. Bókin er ekki síður ádeila á hernað en fyrri hók höf, og mun því verða fengur öllum friðarvinum. Hinn sami mjúki blær er á frásögn þessarar bókar og „Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum“. Hefir nú þegar nokkuð verið ritað um söguna erlendis og nálega ein- róma lof. Er talið einsdæmi, að sami maður hafi ritað tvær jafn- góðar bækur i röð og Remarque hefir tekist með þessum fyrstu bókum sinum. — Ætlast er til að íslenzka útgáfan komi út samtímis og bókin birtist á öðr- um málum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.