Fálkinn


Fálkinn - 06.06.1931, Blaðsíða 8

Fálkinn - 06.06.1931, Blaðsíða 8
8 F Á L K I N N Veðreiðarnar gera miklar kröfur, eigi aðeins til hestsins heldur líka til mannsins sem á hon- um situr, því að margar tálmanirnar, sem komast skal yfir eru mjög hættulegar. Myndin hjer að ofan er tekin af „Grand National" -hlaupinu, sem er talið eitt erf- iðasta hlaupið í heimi og sýnir reið- gikkina vera að hleypa hestunum yf- ir verstu tálmunina: „Beachers Brook“, en þar detta margir hestar og knaparnir meiðast oft hættu- lega. M % . V. - 'O/iX A SfiJíÍ » * " : • ......... i I v: wyi vi * .í w JS | ";v sk;;;æ Nú er farið að nota flugvjelarnar til þess að drepa skaðleg skorkvikindi, er leggjast á akra. Flugvjelarnar eru látnar spúa brennisteinsgufu og öðrum eiturefnum yfir akrana, þar sem kvikindin hafa sest að. 1 síðasta mánuði var þetta risavaxna minnismerki, sem mynd- in er af, afhjúpað á Monte Calvario í Camonicadalnum, um 100 km. frá Mílano. Er líknesldð Kristmynd, gerð af hinum fræga ítalska myndhöggvara Timo Tortolotti, og er tíu metra hátt og er úr kopar, nema höfuð og hendur úr bronsi. Reyndist mjög erfitt að flytja líkneskið frá Mílano til Monte Calvario. Líknesk- ið er afar fagurt og tilkomumikið og í fjarlægð sýnist það vera eins og kross, því að handleggirnir eru útrjettir. Það var gert til minningar um sáttina milli páfans og Italíurikis er gerði „fang- ann í Vatíkaninu“ frjálsan mann aftur. Ítalíukonungur og helstu menn páfaríkisins voru viðstaddir afhjúpunina. — Það þykir eitt af mestu stjórnmálaverkum Mussolini að koma þessum sátt- um á og afleiðingar þeirra urðu, að Mussolini situr miklu fastar l sessi en áður. Ýmsir höfðu reynt þetta á undan honum, en það ekki tekist í yfir fimtíu ár. Stjórninni er mikill styrkur að sáttunum, jafnvel þó að samkomulagið milli hinna tveggja stór- velda sje stundum hálf stirt ennþá, og páfanum finnist Musso- lim stundum ekki taka nægilegt tillit til páfaríkisins. Áhaldið sem sýnt er á þessari mynd hafa menn nefnt „slajja- ritvjelina". Með henni er hægl að varpa bókstafamyndum neð- an frá jörðu upp í ský, sem eru í alt að 2000 metra hæð yfir jörðu og eru stafirnir þar um 400 metra á hæð. Vjelinni er komið fyrir á bifreið og Ijósgjafinn svarar til 1\2 miljarð kerta. Vjel þessi verður vitanlega einlcum notuð til auglýsinga, en jafnframt til leiðbeininga fyrir flugmenn, í sambandi við flugvita.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.