Fálkinn


Fálkinn - 06.06.1931, Blaðsíða 14

Fálkinn - 06.06.1931, Blaðsíða 14
14 F A L K I N N XLTS 32 -IO Valið er anðveltJJ ff f\ Sápan sem allar konur kiósa^er _J i LUX ILm/ SAPA LEVER BROTHERS LIMITED. PORT SUNLIGHT. ENGLAND. AtvinnuleysiS og glæpafarganið þykja tvö verstu mein Bandaríkjanna nú á tímum, og í sambandi við það er þessi saga sögð: Kvöld eitt í myrkri stöðvaði bófi mann einn á förnum vegi, miðaði á hann skammbyssu og skipaði honum að afhenda sjer fje sitt. Maðurinn afsakaði sig, sagðist hafa verið atvinnulaus og ekki eign- ast eyri i síðuslu þrjá mánuði. „Þá hafið þjer afsökun og jeg ætla að láta hjá liða að drepa yður núna“, svaraði hinn, „þvi að síðustu þrjá mánuðina hefi jeg ekki eignast eyri til þess að kaupa skot í skammbyssuna mina“. -----------------x----- Greifafrú de Moustier i Palermo, ein af ættstærstu og ríkustu aðals- frúm þar í börg, tilkynti nýlega lög- reglunni að stolið hefði verið frá lienni gimsteinum, sem virtir voru á nálægt hálfa miljón lira. Þjófsins var leitað en árangurslaust og frúin var úrvinda af sorg. Og ekki bælti það um er uppáhalds hundurinn hennar varð snögglega veikur og drapst, rjett eftir gimsteinahvarfið. Dýralæknin- um þótti þetta fár svo einkennilegt, að hann krufði hundinn. Fann hann þá i maganum á honum gimsteinana, sem frúin hafði mist, svo að von- andi hefir hún huggast. Hefirðu nokkurntfma óskað þjer að þú hefðir þriðju höndina? WESTINGHOUSE ljósa- og orku- stöðin er yður á við tylft handa. Auk þess sem hún lýsir upp heimili yðar sjer hún fyrir orku til þess að dæla vatn- inu, brýna verkfærin — gera alt það marga, sem nú tekur orku yðar frá áríðandi störf- um. Og hið undursamlegasta við Westing- house ljósa- og orkustöðina er það, hve auð- velt er að hirða hana — og hve ódýr hún er í rekstri. Kynnið yður Westinghouse ljósa- og orku- stöðina þegar í stað. Undirritaður aðalum- boðsmaður á íslandi veitir yður fúslega all- ar nauðsynlegar upplýsingar. Eiríkur Hjartarson Laugaveg 20B Reykjavík Sími 1690 Westinghouse — „þú talar rósamál. Hvað áttu við með „maðurinn fyrir utan“. „Hjerna hefir maður verið fyrir utan í marga daga, labbað upp og niður götuna, en aldrei mist sjónar á dyrunum. I gær- kvöldi var kominn nýr maður.. Sá fyrri er með harðan hatt, hinn með linan flókahatt. Hann var þar þegar jeg leit út um gluggann kl. 2 í nótt, og hann hvarf rjett mínúturnar, sem lögregluþjónarnir gengu fram hjá. Svo kom hann undir eins aftur“. „Er hann þar núna? spurði Jimmy. „Jeg býst við því“, svaraði hún og gekk út að glugganum. Dagstofan vissi út að torginu og er hún hafði horft út augnablik benti hún og sagði: „Þarna er maðurinn, sem gætir dyranna á daginn“. Jim horfði þangað sem hún benti. Rjett við póstkassastólpann stóð maður í blárri regnkápu með hendurnar í vösunum. Vareins og hann stæði þarna í þönkum og væri að góna á umferðina. „Ertu viss um að það sje þessi deli, sem var hjer í gær?“ Hún kinkaði kolli. Sláninn var svo langt undan, að ekki var liægt að greina andlits- drætti hans, en Jimmy sem var minnugur á fólk, kannaðist þegar við hann. „Þetta er vist einn af kunningjum mínum“, sagði hann kæruleysislega, „og það er víst best að jeg fari út strax og tali við hann“. Skömmu síðan fór hann út og reikaði yfir að póst- kassanum, en þegar þangað kom sneri mað- urinn undan og gekk burt i hægðum sínum, þangað til hann kom að næsta götuhorni og sneri þar undan, þannig að hann sneri baki við Jimmy þegar hann færi fram hjá. En Jimmy fór ekki framhjá; hann stað- næmdist og klappaði á öxlina á landeyð- unni, og maðurinn sneri sjer við með sak- leysislegum undrunarsvip. „Hvernig er heilsan, Farringdon?“ spurði Jim. „Jeg hjelt að þjer væruð í tugthúsinu". „Yður skjátlast víst“, svaraði maðurinn með uppgerðar yfirlæti. Jeg heiti Wilthorpe og er hjer að bíða eftir kunningja mínum“. „Jeg er hræddur um, að hans verði skramhi langt að bíða“, svaraði Jimmy kald- ur. „Og á meðan skuluð þjer stytta yður stundir og koma með mjer, og ef þjer reyn- ið að skjóta, þá drep jeg yður“. „Yður hlýtur að skjátlast", sagði maður- inn og hreyfði sig ekki. En svo sá hann augu Jimmys og skifti um tón. „Hvað er nú að, Sepping? spurði hann fýlulega. „Hafið þið þefararnir ekki annað að gera en ofsækja mig, saklausan manninn, þó að jeg hafi lent í steininum?“ „Jæja, æthð þjer að koma?“ spurði Jimmy. „Vitanlega" svaraði Farringdon Brown og geklc áleiðis við híið lögreglumannsins. Maðurinn var þreklegur, dökkur á liör- und, fæddur i Ástralíu og kunnur lögregl- unni í þrem Evrópulöndum sem hættulegur glæpamaður. „Fólk af yðar tagi er aldrei á- nægt néma það geti komið öðrum i bölvun“, sagði hann. „Aldrei gefið þið okkur vesling- unum tækifæri til að komast á rjettan kjöl aftur. Undir eins og maður reynir að fá sjer atvinnu, komið þið og spillið þvi“. „Þegið þjer!“ sagði Jimmy. Þeir gengu nú um fáfarna götu og að und- antekinn stúlku, sem var að sópa dyraþrep við eitt húsið, var hvergi sál að sjá. Snögg- lega og fyrirvaralaust rjetti Farringdon frá sjer hnefahögg og munaði ekki nema þuml- ungi, að það hitti andlitið á Jimmy, en á næstu sekúndu hafði hnefi Jimmys hitt rjettan stað og Farringdon lá kylliflatur á götunni. Áður en hann hafði raknað úr rot- inu liafði Jimmy snúið honum á magann og sett á hann handjárn. „Þú ert viðbjóðslegur fantur“, sagði Jim og kipti honum á fætur. Farringdon var ringlaður og sagði ekkert. Þégar hann var rannsakaður á lögreglustöð- inni fundust tvær hlaðnar Browning- skammbyssur á honum, hvor i sínum vasa, og er læknirinn hafði bundið um höfuðið á honum var hann settur í klefa, og yfirheyrði Jimmy hann þar. „Jeg ætla að senda kæru á yður, sem grunsamlegan mann“, sagði hann. „Og það þýðir, að þjer fáið þrjú ár. Ef þjer eruð skynsamur, Brown, þá skuluð þjer leysa frá skjóðunni“. „Hvað ætti jeg svo sem að segja?“ rúuldr- aði hann.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.