Fálkinn - 27.06.1931, Blaðsíða 6
6
F Á L K I N N
Á þessari mynd sjest fjallabraut, sem lögff hefir veriff upp á einn fjalls-
tindinn á Madeira. En uxasleffarnir komast þá leiö líka, þó að þeir
ef til viX'I sjeu nokkru lengur á teiffinni.
til lækninga, ekki síst tæringar-
veikir menn. Þúsundir manna
hafa farið þangað sjer til heilsu-
bótar og komið þaðan aftur
heilir heilsu- Enda má segja, að
ferðamennirnir sjeu mesta
tekjulind Madeirabúa. Sykur-
rækt og bananarækt er mikil í
landinu og talsvert flutt út af
þessum vörum, en þó kveður
meira að vínyrkjunni, þó að
rnenn hinsvegar megi ekki
halda að nenra lítill hluti þess
vins, sem selt er í heiminum
undir nalninu ,Madeira‘ sja það-
an komið. Vínyrkjan var sem
sje afar mikil fram yfir miðja
síðustu öld, en þá eyðilagðist
vínviður þeirra eyjaskeggja al'
svepptegund einni, svo að þeir
tóku að rækta sykurreyr í stað
vínviðarins og gekk svo um
hríð, þangað til það sýndi sig,
að loftslagið var ekki eins hent-
ugt til sykurræktar eins og vín-
yrkju. En á meðan höfðu aðrar
þjóðir stolið nafninu og nota
það síðan á vín.—Verslun eyja-
skeggja og mest af siglingunum
er í höndum Breta.
1 gamla daga vöktu sam-
göngutæki Madeirabúa mikla
athygli allra komumanna. Þeir
notuðu sem sje ekki kerrur eða
vagna, heldur einskonar sleða,
scm dregnir voru af uxum.
Voru það seinfær samgöngu-
tæki, eins og nærri má geta. Nú
hafa bifreiðarnar vitanlega lagt
Madeira undir sig að mestu leyti
en þó má enn sjá hina fornu
uxasleða á fjallvegum, sem enn
eru ófærir bifreiðum. Eru þeir
kallaðir „carro“ á máli Mad-
eirabúa.
Gestagangurinn er mestur á
Madeira mánuðina desemher til
mars. Þá er snjór og kuldi i
norðlægum löndum en besta
sumarveður á Madeira. Hins-
vegar þjkir norðurlandabúum
of heitt á Madeira á sumrin,
enda er þá stundum 24 stiga
hiti á nóttunni.
Höfuðstaðurinn, Funchal, er
á sunnanverðri eyjunni og ligg-
ur að sjó. Er bærinn tæplega
eins fjölmennur og Reykjavík,
en náttúrufegurð er viðbrugðið
þar, enda dvelja flestir ferða-
langar er til Madeira koma í
liöfuðsaðnum. Þar er fult af
gestum allan veturinn og gisti-
húsaeigendurnir raka saman
fje.
Eyjaskeggjar eru talsvert af-
skektir og flestar lireyfingar og
hræringar, sem fara um löndin,
lcoma þar ekki við. Þó fór Mad-
eira ekki alveg varhluta af
heimsstyrjöldinni. Portugals-
menn tóku þátt í henni með
Bandamönnum, þó litlar sögur
færi af afrekum þeirra, og þess-
vegna skutu þýskir kafbátar á
Funchal. Annars hafa það verið
innlendir viðburðir, snertandi
atvinnuvegina, sem mest hafa
snert eyjarskeggja, eins og t. d.
árið 1852, þegar vínviðarsvepp-
Hjer sjást sjómenn á Madeira. Þeir eru aff slœgja túnfisk, en af hon-
um veiðist mikiff viö Madeira.
urinn hafði eytt nálega allri
vínuppskeru á eyjunum, eða
1878 þegar vínviðarlúsin (fylox-
era) gerði það sama.
En nú í vor varð uppreisn á
Madeira. Hvort hún á sjer djúp-
ar rætur skal ósagt látið. Lík-
legra er, að hún standi í sam-
bandi við uppreisnina og byll-
inguna, sem um líkt leyti varð
í Portugal. En Portugalar urðu
að senda herskip til Madeira til
þess að bæla niður óróann og er
það fágætt, því að jafnaði eru
Madeirabúar miklu meiri
skilckelsismenn“ en Portugálar
sjálfir.
Sunnudagshugl, í'ramh. af bts. 5
fjelagi við Jesú Krist í trúnni;
lifa í stöðugu samfjelagi við
hinn sanna mann og aðra, er
bera liinn heilaga anda í hrjósti.
„Hver dregur dám af sínum
sessunaut“. Ef vjer rækjum það
samfjelag af alliuga, þá skal
það alls ekki bregðast, að oss
verður eðlilegt að trúa á Guð
sem föður, en sjálf oss og aðra
'sem börn hans; trúa á eigið eðli
og verða auðsveip hinum liljóðu
röddum hjartans í nafni .Tesú
Krists. Þá munum vjer verða
liæf til að vaxa í trúnni á hið
föðurlega örlæti, sem ævi Jesú
sýnir glöggast, að á sjer i raun-
inni engin takmörk. Því að það
skulum vjer ekki láta oss til
hugar koma, að hið föðurlega
örlæti sje að eðli sínu takmark-
að við þann eina soninn, sem
fram að þessu hefir kunað að
])iggja það i skýlausri trú. Held-
ur skulum við lesa upplýsingu
um hið sanna eðli sjálfra vor
og um framkvæmd framtiðar
mannkynsins i þessum orðum
Jesú: „Sannlega sannlega segi
jeg yður: sá sem trúir á mig
mun einnig gera þau verk, sem
jeg geri; og hann mun gera enn
meiri verk en þessi“. (Jób. 14,
12).
Fagnaðarerindið býr yfir
takmarkalausri von vegna Jesú
Krists og ósegjanlegum stórhug.
Auðsveipni hins heilaga anda
hefir þegar leit't í ljós að nokk-
ur raunveruleg æfintýri liins
mannlega lífs, en ósegjanlega
miklu meiri heilög ævintýri
eygjast framundan gegnum þok-
ur þess ástands, sem enn er ríkj-
andi á jörðinni.
Kom þú, Drottinn Jesú“,
(Op. Jóh. 22, 20). Amen.
Þegar „Titanic“ fórst 1912, tóksl
skipinu „Carpathia“ aS bjarga 705
manns, sem áreiðanlega hefðu farist
ef skipstjórinn á „Carpathia“ hefði
ekki brugðið svo fljótt við. Nú, 1!)
árum seinna, var skipstjóranum af-
lienl að gjöf i þakldætisskyni 750.000
krónur. Því er þannig varið að þeg-
ar eftir slysið var skotið saman
Jiessu fje til verðlauna haiula skip-
stjóranum. En eigendur skipsins
bönnuðu honum að taka við þvi.
Nú er lianii liætur sjómensku, og þá
fjekk hann peningana.
----x----
Um daginn tóku meiin eflir því að
mörg hundruð roltur fluttu sig sani-
eiginlegá úr gamall.i niylnu, sem
verið var að rífa í Skanderborg á
Jótlandi. Rotturnar gengu í fylkingu
og var gríðarstór rotta í fararbroddi.
Fjöldi fólks horfði á þetta, svo það
mun vera satt.
----x——-
Lindþergh, liinn frægi ameriski
flugmaður, ætlar í sumar að fara i
flugleiðangur kringum hnöttinn.
lvona hans verður með honum í ferð-
inni. Þau koma ekki við á íslandi.
Maður nokkur, Fernando að nafni,
hefir sett heimsmet í dansi. Hann
dansaði samfleytt i 200 klukkustund-
ir og við 2800 mismunandi stúlkur.
----x----
Paramount-kvikmyndafjelagið hef-
ir boðist til að borga Clara Bow
mörg þúsund dollara fyrir að
liætta að teika í kyikmyndum. Clara
liefir þótt leika frekar ilta upp á
síðkastið og fjelagið vill losna við j
hana.
----x----
Kvikmyndaleikarinn Murnau, sem
uin eitt skeið var frægur, átti ekki
fyrir útför sinni er hann ljesf.
----x----
í Arabiu er konum, sem halda t'ram
lijá mönnum sinum, hegnt á alveg
sjerstakan hátt. Það ber auðvitað
ekki oft við, þar sem konurnar
venjulega eru undir stöðugu eftir-
liti. En það kemur þó fyrir, að þær
stelast út og halda fram lijá manni
sínum. Éiginmaðurinn tekur |iá kon-
una, bindur hana á höndum og fót-
uin, og lætur hana standa einhver-
staðar á fjölförnum vegi eða lorgi i
einn sólarhring, svo að hún fái
tækifæri til þess að iðrasl og blygð-
ast sín.
----x----
Samkvæml síðustu skýrslu eru nú
freldega tíu miljónir útvarpsnotenda
í Norðurálfu.
----x----
I London á að fara að reisa nýja
háskólabyggingu. Hún mun alls
kosta um 3 miljónir punda og það er
gert ráð fyrir að það taki 30 ár að
reisa bygginguna.
----x----
Sænskur skrifstofumaður, sem ný-
lega var uppvís að þvi að hafa stol-
ið frá húsbónda sínum og þessvegna
var tekinn fastur, reyndi að fremja
sjálfsmorð með því að gleypa tvö |
rakblöð. Hann var undir eins send-
ur á sjúkrahús og skorinn upp
og bæði rakvjelablaðabrotin lekin úr
honum.
----x----
Amerískur liershöfðingi, Ilubert
Jardley, hefir nýlega ritað bók um
Wilson Bandaríkjaforsela og held-
ur því fram að bandamenn hafi
byrtað lionum eilur, er hann sal frið-
arráðstefnuna í Versölum. Bókin
hefir vakið feikna eftirtekt allstað-
ar uin heim.
----x----
Ameríkumaðurinn Hill fór nýlega
I stáltunnu niður Niagarafossinn og
komst heilu og höldnu niður fljótið.
Þetta hat'a margir fleiri reynt, en
aðeins einn maður á undan honum
komist lífs af.