Fálkinn


Fálkinn - 05.03.1932, Síða 1

Fálkinn - 05.03.1932, Síða 1
16 situr 40 aura FISKIMENN Á LEIÐ TIL LÓFÓT. Við Lófót hafa löngum verið frægustu fiskimið Norðmanna ug eru enn. Frá því að sögur liófust hefir veiðiskapur verið meiri þar en nokkursstaðar annarsstaðar í Noregi. Vertíðin er örlítið fyr á árinu en hjer á suðurlandi, hefst að venju í janúar og stend- ur fram undir aprillok og sækja þá þangað sjómenn nr öllum áttum, líkt og til Vestmannaeyja. Vegna þess hve óhæg markaðs- kjör fiskveiðarnar búa við nú er þátitakan minni í ár eri verið hefur, svo að í vertíðarbyrjun í ár voru ekki komnir þangað nema 2000—3000 sjómenn, en voru i hittifyrra um tíu þúsund á sama tíma og hafa verið þar ali að 20.000. Lófót er samheiti á eyja- klasa og heita stærstu eyjarnar Austur- og Vestur-Vogey. Þarna æyir allskonar skipum saman, alt frá gömlum áttæringum upp í línubáta. Vertíðin gaf að jafnaði rúma 700 fiska í hlut þangað til að vjelbátum og eimknúnum skipum fjölgaði; síðan nemur aflinn venjulega yfir 1000 fiskum á munn, sem teku'r þátt i vertíðinni en hluturinn eða ágóði hvers einstaklings hefir ekki hækk- að fyrir því, vegna þess að lilkostnaður er meiri.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.