Fálkinn


Fálkinn - 05.03.1932, Blaðsíða 11

Fálkinn - 05.03.1932, Blaðsíða 11
F Á L K í N N 11 Yngstu lesendurnir Sögnin um miðgarðsorminn. Ef þíð lial'ið lesið Eddu kannist þið sjálfsagt við söguna um Þór og Miðgarðsorminn. En þessi saga, eða rjettara sagt það, að í höfunum sje einhvert ferlíki, sem enginn maður þekki til fullnustu, er lil enn í dag og árlega má sjá í litlendum hlöðum ummæli sjómanna, sem þykjast hafa orðið varir við þetta íerlíki. Ekki her þeim þó saman .um hvernig sköpulngið sje á því, en á myndun- um getið þið sjeð, hvernig þjóð- trúin hefur hugsað sjer það. Þcss- ar sögur um miðgarðsorminn eru að sínu leyti eins og sögurnar um sæ- skrimsli og Þverárslcötuna; þar sfendur vitnisburður gegn vitnis- burði og énginn veil rjett. En vis- indamennirnir telja allar liessar sögur uppspuna einn eða imyndun og vilja alls ekki bæta sjóskrýmsl- unum við upptalninguna sina í dýra- fræðinni og það er nú líka rjettast. Jfinsvegar hala vísindamennirnir stundum neitað því, sem seinna hef- ur sannast. Um aldamótin 1800 neituðu visindamennirnir því á- kveðið, að loftsteinar gætu borist til jarðar. En árið 1808 fjell svo mikið íoftsteinaregn í Frakklandi, að eftir það hlandaðist engum hugur um, að loftstéinar væri til. Og siðan hafa menn fundið loftsteina víða, og sann.að uppruna þeirra ineð efna- samselningu þeirra. Þessvegna má. Hka húast við, að visindin eigi eftir að leiða í ljós ýmislegt sem enn er ósannað og finna riýjar tegundir dýra, sem nú eru talin hugmyndafóstur manna. Svona hefir „skrýmslity líklega verifí. voru upp úr. Ferlíki þetla stakk sjer von bráðar aftur. •lafnvel þó enginn gæti gert sjer grein fyrir þá, hvaða dýr þetta hafi verið, sem Hans Egede sá, vóru a 11 - ir á cinu máli um, að þetta hefði verið mjög sjaldgæft dýr, því að enginn vændi hánn um osanrisögli, enda var hann viðurkendur áreið- anlegur maður og athugull. En mönnum hefir tekist að ráða gátuna af teikningu, sem annar trúboði sem var með í ferðinni, gerði af þvi. Það sem að trúboðinn hefir kallað haus á dýrinu hefir verið afturpart- ur af kolkrabba. Kolkrabbinn hreyf- ir sig þannig, að hann sprautar vatni aftur úr sjer, eins og.sjá má al' l'yrri myndinni. Sæskrýmsli Ilans Egede, eins hann Igsti því. Sjómenn nú á dögum þykjast oft sjá Miðgarðsorminn, þetta fræga skrýmsli og hafa margar sögur af því að segja, þó engum takist að koma frani með sannapir fyrir sögunum. Öllum ber þeim saman um, að þetta kvikindi sje í ótal hlykkj- um, og sjáist margar kryppurnar samtimis. Ýmsum hefir dottið í húg að skýra þelta þannig, að hjer sje um að ræða marga höfrúnga, sem syndi í röð hver á eftir öðrum. Þeir synda þann ig að annað veifið sjest ofan á bak- ið á þeim en hitl hverfa þeir undir yfirborðið og ennfremur eru þeir vanir að synda í röð hver á cftir öðrum. Er því ekki ósennilegt, að menn h'afi hausavíxl á þessum dýr- nm og sæskrýmslunum. Um miðja síðustu öld sáu skip- verjar af enskri freigátu sæskrýmsli, sem var 20 metra langt og synti með hausinn fyrir ofan vatnsborðið. Synti það afar hart. Ekki frgnilegt. Síldarkongurinn er sjaldgæfur l'iskur, vegna þess að han.n lifir á svo miklu hafdýpi. Stundum rekur hanri og er hann til á ýinsum söfn- um, m. a. hjer í Reykjavík. Hann er silfurlitur á roðið, mjög þunnur en um 50 cm. hár og gctur orðið scx tnetra langur. Þá sjaldan að hann kemur upp á yfirborðið sem oft- ast stafar af þvi að hann er að fíýja undan óvinum, er svo mikil lerð á h'onum að framparturinn ke'mur langt ttpp úr sjónum. Hann syndir í ótal bugðum og hlykkjum og þess- vegna er ekkert ósennilegt, að sjó- menn seiri hafa sjeð hann, haldi að hann hafi verið Miðgarðsormurinn. Það er til fjöldinn allur af sæ- skrímslasögum en nú hafið þið heyrt nokkrar. Það er mjög vníasamt, hvorl þið fáið nokkurntíma að sjá sæskrýmsli. En hitt er er víst, að í sjávardjúpunum er til mörg dýr, sem vísindin hafa ekki náð til enn og ef til vill kemur síðarmeir eitt- hvert dýrið í dagsljósið, sem engan hefði grunað að væri til. Tóta frienka. Anderson og Jonsson eru í róðri og Jonsson dettur lyrir borð. Þá spyr Anderson: Kantu að svnda, Jonsson'? Já! — Það er gott. Þá ætla jeg að róa í land. Ilans iigede, hinn danski prestur, sem fengið helur nafnið „postuli Grænlands" vegna þess að hann hóf fyrstur trúboð meðal eskimóa, þótt- ist hafa sjeð sæskrýmsli á einni ferð sinni til Grænlands. Hefir hann teikn að mynd af þvi og segir frá því í dag bók sinni. Hinn 6. júlí 1734 segist hann hafa sjeð hræðilega ófreskju, sent stakk hausnum svo hátt upp úr sjónúm, að hann nam við reiðann og hljes úr sjer vatnsstrók eins og hvalur. Nefið vur langt og mjótl, skrokkurinn alsettur griðarstóru hreistri, kviðuggarnir mjög breiðir, en afturparlurinn líkastur höggormi og var á að giska skipslengd milli hans og frampartsins þegar þeir Ekki ósútþað höggormi. Framhald af bls. 5. er ranglátur heimur, sem við lif- um i“. „Heimurinn er eins og við gerum hann“, sagði jeg. „Og' ekki ætti hann að vera ægilegur í yðar augum, þegar-------“ Hann tók lram í: „Já, — jeg veit ckki hversvegna jeg geri yður að trúnaðarmanni, — eða — hvernig á jeg að byrja . . . .“ „Þjer þurfið ekki að segja neitt". mælti jeg rólega. „Jeg skil vel að þjer eins og vinur miun i sög- unni, sem jeg var að segja — viljið seljtt gæfu yðar fyrir mannvirðing- ar. Þjer tim það, það kemur elcki mjer við, en —“ Jeg ypti öxlum. „Foreldrar mínir l'yrirgefa mjer það aldrei", sagði hann hikandi. „Þjer vitið ekki hvað það er, að vera elsti sonur ættarinnar og vera af metnaðargjörnu fólki kominn. Að vera af einni göfugustu ættinni í landinu. Jeg er eins og fangi — og hún er aðeins vjelritari í versl- un. Þjer fyrirlitið mig auðvitað — jeg skil það svo vel. .leg tók blaðið mitt og fór að lesa. en var þó öðru hverju að gela hon- um auga. Hann horfði i sifellu út um vagngluggann og hnyklaði brun- irnar. Við nálguðumst Loridon. Ilvorki jeg eða hann sögðu neitt fyr en lest- in staðnæmdist. Þá tók hann tösk- una mína úr hillunni og bar hana út á gang til mín: „Jeg þakkn yður innilega fyrir“, sagði hann. Mig langaði til að spyrja hann að hvítða niðurstöðu hann væri kominn en gat ekki fundið nein orð. Jeg varð að viðurkenna, að hann liefði tekið afskiftum mínum af hans högum mjög alúðlega og rjetti honum þvi höndina og sagðist vona, að hann lyrirgæfi mjer slettirekuskapinn. Hann þrýsti höndina: „Jeg hefi ekkert að fyrirgefa", sagði hann. feiminn eins og drengur. „Þjer haf- ið gert mjer mesta greiðann, sem nokkur maður gat gert mjer, eins og á stóð“. „Hvernig þá?“ spurði jeg. Hann þrýsti hönd mína enn fast- ar: „Jeg fer aftur til hennar á morg- un og ef þjer viljið gefa mjer nafn yðar og heimilisfang, langar mig lil þess að bjóða yður I brúð- kaupið okkar — ef hún þá vill hafa mig enn“. En jeg liristi höfuðið. „Nei, vinur minn', sagði jeg, „nú þurfið þjer ekki l'ramar á mjer að halda. Nú skiljum við að fullu og öllu — og jeg er glaður, ósegjanlega glaður". Og svo skidum við. Nokkrum mánuðum seinna var jeg að blaða í vikuriti með myndum og meðal mynda af ýmsu hefðarfólki rak jeg mig á myndina af ungum manni og stúlkri, sem mjer fanst jeg þekkja; það voru unga stúlkan með fallegu augun og hann sainferðamaður minn. Svo leit jeg á nöfnin. Hann var sonur, .. . nei, jeg held annars að það sje best að segja ekki frá því. Svisslendingar liafa samþykt ný hegningarlög og vekur ein grein þeirra sjerstaka athygli. Ilún bann- ar öllum svissneskum borgurum að ráðast í herþjónustu til erlendra þjóða. Er þessu ákvæði að likind- um beint gegn hinum „erlenda her" Frakka i Al'ríku, þvi að þangað hafít margir Svisslendingar ráðist síð- ustu árin. En tvennum sögum fer nf því, hve vistin sje holl þar. Þrir glæpamenn í Massaschusetts voru náðaðir um síðastliðin ára- mót og höfðu þá*setið 30 ár í fang- elsi allir dæmdir fyrir að hafa myrt konur sinar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.