Fálkinn - 13.08.1932, Blaðsíða 12
12
F Á L K 1 N N
Z E B 0
í>erir ofna og
eldavjelar skín-
andi fallegar.
Hraðvirkur Gljá-
inn, dimmur og
blæfallegur
Fæst í öllum verslunum.
Kviðslit
Monopol kviðslitsbindi,
amerísk teg., með sjálf-
virkum loftpúða og gúmí-
belti. Notað dag og nótt
án öþæginda! Sendið
mál með pöntun. Einfalt
14 kr., tvöfalt 22 kr.
I Frederiksberg kem. Laboratorium
Box 510. Köbenhavn N.
Fyrir eina
40 aura á viku
Oetur þú veitt þjer og heim-
iii binu bestu ánægju tvo
daga vikunnar, iaugardag og
sunnudag. Ekkert blað er
skemtilegra og fróðlegra en
Alll meö islenskiiin skipmn* 1 *fi
Munið Herbertsprent. Bankastr.
l'álkinn birti nýlega myndir al
tveimur kjólum úr norsku efni,
sem hafa verið valdir til fyrir-
myndar af fjelagið því, sem beitir
sjeu fyrir eflingu norska iðnaðarins.
Iljer koma önnur tvö sýnishorn
Ilvenœr kemur sá tími, að farið
verói að framleiða svo margvisleg
kjólaefni hjer á landi, að ekkert
jmrfi að flytja inn?
Burt með tðbakið.
Iljer á árunum var stoínað í
Reykjavík Tóbaksbindindisfjelag, en
fremur litið hefir áhrifa frá þeim
fjelagsskap gætt hingað til. Reyking-
ar l'ara mjög í vöxt og einmitt sú
legund reykin'ganna, sem skaðlegusl
er talin: sigarettureykingarnar, sem
jafnframt ganga mest út yfir þá sem
síst skyidi: kvenfólk og börn.
í öðrum löndum er víða hafin
sókn gegn notkun tóbaks, einkum
sígarettureykingum. Þær sannanir
hafa komið fram á skaðsemi þeirra,
að fjelögin sem starfa að útrýmingu
sígarettunnar hafa góð gögn á reið-
um höndum. Börn, sem konrast und-
ir manna hendur fyrir óknytti eða
glæpi, eru nær undantekningarlausl
sigarettureykjendur. Og börn sem
fæðast í heiminn óheilbrigð eiga að
jafnaði mæður, sem gera mikið að
reykingum og hafa reykt meðan á
meðgöngutímanum stóð.
Stúlkur, sem iðka íþróltir hafa
orðið þess varar, að reykingar eru
þeim mjög skaðlegar. Danska sund-
konan Else Jaeobsen, langfreinsta
sundkonan í Danmörku hefir gefið
sláandi dæmi uin skaðsemi reyking-
anna fyrir íþróttakonur, og kemst að
þeirri niðurstöðu, að þær sjeu óholl-
ari en áfengi. Ótal dæmi, sem gefa
eigi aðeins líkur heldur beinar sann-
anir, gefast dags daglega og eru ó-
spart notuð í baráttunni gegn tó-
bakinu.
Fyrir 20—25 árum voru reykingar
barna mjög tíðar í Noregi. Fjelaginu
„Burt með tóbakið“, sem starfar þar
í landi, hefir orðið svo vel ágengt,
að nú eru barnareykingar mjög sjald-
gæfar í landinu. Sumstaðar hefir ver-
ið reynt ítð draga úr reykingum
barna með löggjöf, en það hefir tek-
ist misjafnlega, því að forboðna epl-
------ VIKURITIB ----------------
Útkomið:
I. Sabantini: Hefnd , . . 3.80
II. Bridges: Rauða húsið . 3.00
III. — Strokumaðurinn 4.00
IV. Horler: Dr. Vivant . . 3.00
V. C. Hamilton: Hneyksli . 4.00
í prentun:
Ph. Oppenheim: Leyniskjöiin.
Zane Orey: Ljóssporið.
Biðjið bóksala þann, sem þjer
skiftið vió, um bækurnar.
ið reynisl jalnan sætast. Alberli
reyndi á sinni tíð a'ð koma á löggjöf
um tóbaksbann fyrir unglinga, en
það tókst ekki, því að a'ðrir litu svo
á, að það’ mundi ekki stoða. Enda
hefir fræðslustarl'semin gengið miklu
betur, þar sem livortveggja hefir ver-
ið reynt.
í Ameríku hafa kirkjufjelögih tek-
ið upp baráttuna gegn tóbakinu og
vi'ð það hefir hreyfingin fengið á sig
einskonar trúarlegt snið, sem vafa-
samt er hvort til góðs er eða ekki.
Guðspekissinnar eru ákveðnir and-
stæðingar tóbaks og sömuleiðis jurta-
ætur. En víðast hvar starfa tóbaks-
ándstæðingafjelögin án tillits til ann-
ara skoðana. Og kvenfólkið hefir tek-
ið-mikinn og góðan þátt í því starfi,
I. d. á norðurlöndum.
Og svo ætti einnig að vera hjer.
Kvenfólkið hefir að mestu leyti veg
og vanda af uppeldi barnanna og
heilsufar nýfædds barns, er eins og
áður er sagt mikið undir því komið,
hvorl móðirin hefir reykt meðan
hún gekk með það. Læknir einh í
Wien hefir rannsakað mörg hundr-
uð konur og komist að jieirri niður-
stöðu, að tóbakið hafi skaðað líffæri
þeirra og að það hafi líka bein á-
hrif á íóstrið.
Hjer á landi væri full þörf að
hefjast handa gegn frekari útbreiðslu
tóbaksins en orðin er. Einu hömlurn-
ar sem hjer eru á barnareykingum
eru þær, að sígaretlur eru svo hátt
tollaðar, að börn hafa síður ráð á
að kaupa þær en ella. Og óvíst er
hvort bann gegn sölu tóbaks til
unglinga mundi koma að nokkrum
iiotum. Hinsvegar má vænta mikils
árangurs af skipulagsbundinni
fræðslu um skaðsemi tóbaks og færi
best á, að öflug fjelög beitti sjer fyr-
ir þá starfsemi og notaði til hennar
skólana og aðrar þær leiðir, sem til-
tækilegastar þykja.
DÝRGRIPIR NELLIE MELBA.
Þegar söngkonan Nellie Melba dó
fyrir tveimur árum suður í Ástralíu,
voru skiftaráðendur skipaðir í búi
hennar og áttu þeir að sjá um eignir
hennar þangað til dóttir hennar,
Pamela að nafni, yrði fullveðja. Nú
hefir þessum skiftaráðendum brugð-
ið ónotalega í brún, því að hin fræga
demantsetta ennisspöng Melbu og
aðrir dýrgripir hennar, sem áhorf-
cndur hennar dáðust að ekki síður
ei> söng hennar, og sein virtir voru
mn liálfa miljón dollara, eru horfnir
og sjest ekki urmull eftir.
Þessum dýrgripum hafði verið
komið fyrir til geymslu í hanka ein-
um i Melbourne i Ástralíu. Skifta-
ráðendurnir hjeldu hvarfinu leyndu
lengi vel, og ætluðu að liafa upp á
dýrgripunum sjálfir, en hafa nú lagl
árar í bát og tilkynt lögreglunni
hvarfið.
í Mount Vernon í New York-fylki
hel'ir lögreglustjórinn skipað öllum
lögregluþjónum, sem honum finst
vera of feitir, að megra sig. Hann
hótar þeim brottrekstri ef þeir ekki
„leggi af“. Það sje svo ljótt að sjá
íeita menn í einkennisbúningi, seg-
ir hann.