Fálkinn - 10.12.1932, Side 1
16 sfAur 40 anra
FRÁ AUSTURGRÆNLANDI.
Málareksturinn í deilu Dana og Norðmanna um Austur-Grænland stendur nú sem Jiæst, fijrir alþjóðadámstálnum í Haag og
eru fjölmennar sendinefndir beggja landa komnar á vettvang. Eru þar ekki aðeins hinir eiginlegu málaflutningsmenn land-
anna heldur fjöldi manng, sem sjerfróðir eru um landshætti. Þannig eru þar m. a. af Norðmanna hálfu Hoel dásent, for-
maður ,,íshafsráðsins“ norska og Halvard Devold, en af Dana hálfu má nefna dr. Knud Rasmussen, Lauge Koch og Einar
Mikkelsen. Tilefnið er, sem kunnugt er það, að Norðmenn liafa helgað sjer tvær stárar landspildur af austurströnd Græn-
lands, en þar hafa þeir rekið dýraveiðar i mörg ár. Hinsvegar halda Danir því fram, að þeir eigi landið samkvæmt at-
þjóðalögum, og að landnám Norðmanna sje átöglegt. Dómur á að falla í málinu í febrúar. — Hjer að ofan er mynd úr
einum firðinum i Austur-Grænlandi.