Fálkinn - 10.12.1932, Side 3
F Á L IC I N N
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjórar:
Vilh. Finsen og Skúli Skúlason.
Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested.
Áðatskrifstofa:
Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210.
Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7.
Skrifstofa í Oslo:
Anton Schjöthsgade 14.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
^skriftarverð er kr. 1.70 á mánuði;
kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Vllar áskriftanir greiðist fyrirfram.
Augíýsingaverð: 20 aura millimeter
Herbertsprent, Bankastræti 3.
Skraddarabankar.
Aldrei verður sú vísa of oft kveð-
in, sem snýr að því einfalda máli,
að íslendingar verði að efla meira
innlendan iðnað og gera fram-
leiðslu sína fjölbreyttari en hún hef-
ir verið. Að vísu breytist á hverju
ári sem líður margt til batnaðar í
þessuin efnum, en þó er þjóðin enn
á bernskuskeiði í öllu því sem iðn-
aður heitir, svo að betur má ef
duga skat.
Það er eiginlega ekki fyr en nú
á þessu ári, að alvarlegt atvinnu-
leysi hefir orðið hjer á landi, og
vitanlega gerir það einkum vart við
sig í höfuðborginni. En er nokluir
áminning kröftugri til en þetta um
að nota betur en áður þá mögu-
leika sem til eru fyrir þvi, að is-
íenskar hendur taki við af útlend-
um og vinni ýms verk, sem áður
hafa verið unnin erlendis? Jafnvel
þó að „hráefnið“ sje ekki til í land-
inu þá borgar. sig betur að kaupa
það en að borga útlendingum vinn-
una. Verslunarvelta íslendinga er
að jafnaði hagstæð, en hún getur
orðið miklu hagstæðari ef rjett er
á haldið. íslendingar eiga sín ríku
fiskimið og þeir eru mestu matar-
framleiðendur í heimi, að tiltölu
við fólksfjölda. Þeir kalla sig fá-
tæka þjóð, en það er fyrir eigin
handvömm, að þeir eru það. Og nú
á neyðin að kenna þeim að iifa,
þannig að hjer verði ný og mikil
bjómaöld á næstunni. íslendingar
geta orðið rík þjóð og mikil, ef
rjett er á haldið. Þeir eiga óunnið
land, sem hægt er að nota og þeir
þykjast vera vel gefin þjóð, sem að
kunni að nota möguleikana.
Kreppan getur líka verið gagn-
leg. Hún á að kenna mönnum að
þekkja greinarmun á tímunum, svo
áð það skiíjist betur en ella, hvers
virði þeir eru, þegar þeir eru það
sem við köllum góðir. og kreppan
hefir þegar sýnt hversu miklu bet-
ui' íslendingar erú staddir en svo
margar aðrar þjóðir, þegar eitthvað
alvarlegt bjátar á. Þó að framleiðsla
íslendinga sje einhæf þá er hún
samt þannig, að þjóðin á stórum
hægra um vik, en svo margar aðr-
ar. Hún er ekki iðnaðarþjóð, sem
á alla afkomu sína undir því, hvort
óætar vöruf seljast vel eða illa. Hún
er matarframleiðsluþjóð, sem fram-
leiðir kjöt og fisk — vörur sem
altaf eru útgengilegar á erlendum
markaði og miklu verðmeiri en sú
aðalvara, sem kaupa þarf: kornið.
En framleiðslan .þarf að verða
fjölbreyttari og smáiðnaðurinn að
aukast. Þar er verkefni, sem getur
sjeð margfalt fleiri höndum fyrir
vinnu, en þeim, sem nú eru at-
vinnulausar.
Bæjarsímastúlkurnar kvjeðja
Aðfaranótt 1. desember gerðist sögu-
legur viðburður i símamálum hjer
ú landi. Þá hætti gamla miðstöðin
i Regkjavík og Ilafnarfirði störfum
en sjálfvirka miðstöðin var tekin til
afnota. Er hún af allra fullkomn-
ustu og nýjustu gerð og er líklega
ein allra fullkomnasta sjálfvirka
stöð i heimi eins og stendur. Líkar
mönnnm slöðin prýðilega og furðu
lilið hefir borið á misfellum á
henni, sem þó hefði mátt búast við
fyrstu dagana. „Fálkinn“ hefir áð-
ur birt fjötda mgnda af stöðinni
og vísast til þeirra. Hinsvegar birt-
um vjer nú mgndir af símastúlkun-
um, sem flestar hafa kvatt símann
um sinn. Á annari myndinni sjest
allur stúlknahópurinn en á hinni
stúlkurnar sem voru síðast á verð-
inum og er myndin tekin þegar
verið er að gefa sefnustu sambönd-
in. — Ráðar myndirnar eru eftir
Kaldal.
GullbrúÖkaup áttu <S. desember María Ólafsdóttir og Eyvindur
Eyvindsson á Njálsgölu A7.
Tuttugu barna möðir.
í Danmörku eru enn lil heimili
þar sem hjónin binda sig ekki við
að eiga ekki nema tvö börn, eða
jafnvel fleiri. Dæmi um þetta eru
hjón ein i Tune við Hróarskeldu,
þar sem húsfreyjan var að ala tutt-
ugasta barnið hjerna um daginn.
Öll börn hjónanna lifa og eru ell-
efu komin upp og farin að vinna
fyrir sjer hjá vandalausum, en niu
eru heima í föðurgarði og er það
elsta þeirra 12 ára. — Faðirinn hef-
ir verið atvinnulaus lengi og er þvi
þröngt í búi á heimilinu. En þegar
sveitungarnir frjettu um að luttug-
asta barnið væri i vændum skutu
þeir saman og gáfu hjónunum mynd
arlega peningagjöf. Ög verður þvi
ekki neitað, að hjónin hafi verið
vel að henni komin.
----x-----
Rjarni iVI. Gíslason rithöfundur
heldur skemtun í Nýja Bíó á morg-
un. Les hann þar upp kvæði eftir
sig en Páll Stefónsson kvæðaniaður
kveður vísur eftir hann.
----x-----
Málverkasýningu heldur Ólafur
Tubals þessa dagana og verður hún
opin til mánudagskvölds ó Kirkju-
torgi 4. Eru 80 myndir á sýningunni,
fró ýmsum stöðum hjer sunnan-
ands, t. d. Þingvöllum, Heklu,
Fljótshlíð og Fjallabaksvegi.
:>
Frú Þórunn Richarðsdóttir Si-
vertsen i liöfn varð sjötug h.
þ. m.
Sigm. Guðmundsson, Brekku-
stíg 5, verður 70 áira 15 þ. m.
Góð jólagjöf!
BOMGIN ,
EILIFA
O Q ASHAR F E R Ð A.M INNINOAR
BÓKAVERSLUR SIOURÐAR KRlSTjANSSORAR
Mbl. segir um hana þ. 1. þ. m.:
. ...Höf. segir einsiaklega skemti-
lega frá. Bókin er full af smellnum
athugasemdum, margvíslegum fróð-
le'ik og upplýsingum um þá staði, sem
hann ferðast um.
Það er ekki of snemt
að hugsa utn að kaupa
JÓL AG JAFIR:
Falleg og góð gleraugu, stækk-
unargler, loftvogir, hitamæl-
ar, hnifar og skæri, rakáhfiid,
teikniáhfild, litakassar, móta-
leir, seðiaveski, allsk. blý-
antar og gulllindarpennar.
Gleraugnabúðin, Laugaveg 2
— við Skólavðrðustigshornið —