Fálkinn - 29.04.1933, Blaðsíða 1
Reykjavík, laugardaginn 29. april 1933
16 siðnr 40 aara
nn
SKÓLAFLUG í ÞÝSKALANDI.
Engin Evrópuþjóð hefir lagl eim mikla siund á að efla flugferðir lil mann- og póstflutninga eins og Þjóðverjar og eink-
um urðu framfarirnar mildar í þessari grein eftir að hin mörgu og smáu flugfjelög i landinu sameinuðust í fjelagið „Luft-
Hansa“ sem nú er langstærsta flugfjelag Evrópu. Berlín er nú miðstöð allra flugferða um Evrópu, enda kjörin til þess sök-
um legu sinnar og ganga flugvjelgr þaðan daglega austur um Pólland og Rússland, suðaustur um Balkan til Miklagarðs,
suður til ftalíu, vestur til Frakklands, til Englands og norður í Skandinavíu. Hermálafræðingar slórveldanna hafa henl
á, að Þjóðverjar leggi svo mikla áherslu á flugið til þess að fá færi á að æfa fjölda flugmanna, sem þeim geli komið að
gagni ef til hernaðar dregur. Og vist er um það að Þjóðverja-r leggja mikla stund á, að koma sjer upp dugandi flugmönn-
um og efla áhuga fólksins fgrir flugi, og sýna í þessu hina alkunnu þýsku nákvæmni og gerhygli. Þannig láta þeir börnir\
i skólunum kynnast fluginu bæði með því, að lofa þeim að fljúga og sýna þeim vjelarnar. Hjer á myndinni að ofan sjest
fjöldi skólabarna kringum vjelar flugskóla eins.