Fálkinn


Fálkinn - 21.10.1933, Síða 3

Fálkinn - 21.10.1933, Síða 3
F Á L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. fíilstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Iljaltcsted. Affalshrifstofa: BanKastrœti 3, Reykjavík. Sfmi 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—7. Skrifstofa i Oslo: A n t o n S c h j ö t h s g a d e 11. Blaði'ð kemur nt hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.70 á mánuði: kr. 5.00 á ársfjórðungi og 20 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Augh'isingaverfi: 20 aara millirveter Herbertsprent, Bankastræti 3. Skraddarabankar. Að hata er að sóa tíma og hugs- un. Hjerna hefi jeg brjef frá manni sem alls ekki kærir sig um mig. Hann hel'ir lesið nokkrar greinar eftir mig og er hjartanlega óánægður með þær og með mig. Og hann var kominn á það stig, að nú varð hann að draga andann og segja mjer, að jeg væri gjörsamlega ó- nauðsynlegur og gerði ekkerl nema ógagn. Nú er jiað skrítnasta, að ef j)'ssi maður, sem jeg ekki liekki, og jeg hittustum á stóru farjiegaskipi og færum að tala saman, segja hvor öðrum sögur og rökræddum, mundi líklega falla vel á með okkur og við verða kunningjar. „Þjer skuluð ekki kynna mig jiessum manni“, sagði Sidney Smith einu sinni, „það er skylda mín að hata hann og maður getur ekki hatað þann, sem maður jiekkir". Eu jiegar á reynir er jiað ekki maðurinn sem við hötum. Mannssál- in, sjerhver sál er svo fögur, að ef við kynnumst henni hljótum við að ejska hana. Það er ástæðan til að „Guð elskaði heiminn“; það er vegna þess að Guð þekkir manns- sálirnar út og inn. Það sem við raunverulega hötum er stjettir, skoðanir, sjerkreddur, klikur, jiessar niannlegu tilstofn- anir og skoðánir. Það er hatur milli hins kristna og Gyðingsins, kaþólska mannsins og hins lúterska, auðs og vinnu, milli hvítra og svartra. En þetta hatur sprettur af ókunnugleik, vöntun á þekkingu á manninum eins og hann er, þvi sem við ekki sjáiim vegna |iess sem kringum er. Jeg tel víst, að eitthvað goll sje iil í öllum stofnunum, sjertrúar- flokkum og fjelögum; en það er mannkynið sjálft sem jeg elska og jjuð er einstaklingurinn, sem jeg reyni að kynnast. Þessvegna er mjer svo litið um öll þessi „hús“, sem menn eru að loka sig inni í. Hatur er heimska, dreggjarnar sem ltoma fram við flokkaskipun- ina. Maður hatar aðeins mennina þegar maður skiftir þeim i flokka. En ef við höldum okkur aðeins við einstaklinginn þá hlýtur okkur að jjykja vænl um hann. Franl; Crane. Heitmann's kaldur litur til heimalitunar. Skipstjórafjelagið Aldan átti fjörutíu ára afmæli í þessum mánúði. Var hún stofnuð 7. október 1893 af 24 mönnum, sem rjettindi höfðu fengið til skipstjórnar og stýrimensku á þilskipum. Stýri- mannaskólinn var þá svo til ný- stofnaður og gengu þá hinir fyrstu er útskrifuðust jjaðan inn i fje- lagið á næsta fundi eftir stofnun jjess. En stofnendurnir sjálfir höfðu ýmist gengið á sjómanhaskóla i Danmörku, eða lært hjá Markúsi Bjarnasyni síðar skólastjóra, sein þá hafði um nokkurt skeið haldið skóla fyrir stýrimannaefni. Og enn aðrir voru sjálfmentaðir. Um þetta leyti færðist kútteraútgerð mjög í> aukana og skipurium fjölgaði nær árlega og þá jafnframt mönnum nfeð stýrimannsprófi. Fór fjelaga- tala „Öldunnar" þvj sívaxandi og eru fjelagsmenn nii yfir hálft ann- að hundrað. Þegar á fyrsta ári slofnaði fje- lagið styrktarsjóð fyrir ekkjur og börn og var ákveðið fast tillug fje- lagsmanna til sjóðsins, en honum auk jjess aflað tekna á annan hátl. Er sjóður þessi nú um 40 þúsund krónur, en byrjað var að veita styrki úr honum undir eins og hann nam þúsund krónum og hafa alls verið veittar úr honum 30— 4j) þúsund krónur á umliðnum ár- um. Fjelagið hefir starfað sem fulltrúi stjeltar sinnar að ýmsum velferðarmálum siglinga og sjó- mensku alment; má þar nefna efl- ingu vitakerfisius, lendingabætur, öryggisráðstafanir ýmiskonar og því um líkt, og hefir fjelagið' átt upptökin að ýmsum umbótum í jjessum greinum og barist fyrir breyttri löggjöf um þær. Kaupdeilur hefir fjelagið ekki látið sig skiíta, enda hafa fjelagsmenn jafnan verið úr hópi beggja aðila, vinnukaup- enda og vinnuseljanda í senn. Stjórnmál hefir það einnig látið af- skiftalaus en lagt mesta stund á að efla samhug fjelagsmanna að sam- eiginleguin velferðarmálum. Fjelag- ið hefir upplifað að mestu hinn merka og fróðlega þátt íslenskrar fiskiveiðasögu, þilskipaútgerðina, sem nú er liðin undir Iok, en varð undirstaða og undirbúningsskóli togaraútgerðarinnar. Sá skóli var strangúr og ól upp afreksmenn, sem nú eru komnir undir græna torfu sumir hverjir, en þó má svo lieita, að ending þeirra manna, sem stund- uðu hina hættulegu atvinnu hafi verið furðu góð, því að enn er rúm- ur helmingur lifandi þeirra 24. manna er fyrir fjörutíu árum stofn- uðu „Ölduna“ og sumir enn í fullu fjöri. Er það eftirtektarvert atriði, jjví að stofnendurnir fyrir 40 árum voru allir fullvaxnir menn, og 1 jcssí góða ending er ótvíræð sönn- un Ijcss, að jjeim hafi ekki verið fisjað saman. Mynd sú er hjer birtist, er tekin af stofnendum fjelagsins fyrir 40 árum. Birtast hjer nöfn- þeirra, en (d) sett við ]já, sem dánir eru. í efstu röð eru (talið frá vinstri): Bergur Sigurðsson (d), Þorsteirin Þorsteinsson í Þórshamri, Markús Bjarnason skólastjóri (d), Þorvald- ur Jónsson, nú netagerðarmaður, Þorlákur Teitsson (d), Pjetur Þórð- arson frá Gróttu, Bergur Jónsson, Marteinn Teitsson (d). Miðröð: Guðmundur Stefánsson, síðar lög- Hjánin Helga Sigurðardótiir og Jón Vigfússon, Njálsgötu .35, áttu W ára hjúskaparafmæli 17. />. m. Vigfús Giiðmundsson frá Keld- um, verður 65 ára á morgun. regluþjónn, Páll Hafliðason, Guð- mundur Kristjánsson (d), Hannes Hafliðason (d), Jens Nýborg (d), Pjetur Þórðarson (frá Glasgow), Sigurður Símonarson (d). Fremsta röð: Finnur Finnsson, Sigurður Jónsson í Görðunum, Jón Þórðar- son (d), Stefán Pálsson (d), Ás- geir Þorsteinsson (d), Magnús Magnússon framkvæmdastjóri, Ell- ert Schram, Stefán Snorrason og Björn Sveinsson. Eins og jjeir sjá sem lil þekkja, eru iiálega allir jjessir menn Reykvíkingar að upp- runa. Fyrstu stjórn fjelagsins skipuðu Ásgeir Þorsteinsson (formaður), Stefán Pálsson (ritari) o« Marteinn 'I'eitsson (gjaldkeri). Ýmsir menn, sem of langt yrði upp að telja hafa selið í stjórn fjelagsins árum saman. Nú skipa stjórnina Haf- steinn Bergþórsson, Ingólfur Lárus- son óg Kristinn Magnússon. BÆKUR ritfOng Allar fáanlegar islenzk- ar bækur og erlendar bækur um margskonar efni fyrirliggjandi eða útvegaðar fljótt. Sömu- leiðis öll erlend blöð og tímarit. allskonar, fyrir skrif- stofur, skóla og heimili, sjálfblekungar o. m. <1. Allar panlanir utan af landi af- greiddar fljótt gegn póstkröfu. E.P. BRIEM Bókaverzlun, Austur- s!r. 1. — Simi 2726. — REYKJAVÍK. Mikið úrval af fermingargjöf- um i Gleraugnabúðinni, Lauga» veg 2. — Komið og skoðið vorurnar. Drekkið Egils-öl 0-»tu.- o -*'U|. o “tb.'O -<

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.