Fálkinn - 11.11.1933, Blaðsíða 2
F Á L K I N N
GAMLA B I O
Nótt eftir nótt.
Talmynd frá Paramountfjelag-
inu i 8 þáttum, spennandi og
vel leikin mynd.
Aðalhlutverkin leika:
GEORGE RAFT,
CONSTANCE CUMMING.
MAE WEST.
Myndin sýnd bráðlega.
EGILS
PILSNER
BJÓR
MALTÖL
HVlTÖL.
SIRIUS
GOSDRYIÍKIR,
9 tegundir.
SÓDAVATN
SAFT
LlKÖRAR, 5 teg.
Nöfnin ,EGILL‘ og ,SIRIUS‘
tryggja gæðin.
H.f. Ölgerðin
Egill Skallagrimsson
Sími 1C90.
Reykjavík.
Best að auglýsa i Fálkanum
Viljið þjer ferðast
EILIFA
00 ADRAR FERÐA.MINNIKOAK
ÖÓKAVERSLUN SIÓURDAR KRISTJAN5S0NAR
um Flensburg, Berlín, Kiel, þar sem
ein stærsta skipasmíðastöð heimsins
er, í Borgina eilífu, þar sem geymd-
ur er 275 ára gamall líkami katólska
prestsins Bobola og viljið þjer fara
í heimsókn hjá páfa, fara flugleiðina
Iteykjavík—Seyðisfjörður, til Borgar
hinna ellefu þúsund meyja og Roth-
enburg hjá ánni Tauber, þar sem jól-
n, enn í dag, eru haldin hátíðleg eins
og á miðöldum? — Þá skuluð þjer
lesa „Borgin eilífa og aðrar ferða-
minningar" eftir Guðbrand Jónsson.
Bók:n er 188 blaðsíður að stærð,
prýdd fjöld'a mynda og prentuð á
ágætan myndapappír og auk þess
bráðskemtileg, en kostar samt ekki
meira en fimm krónur heft og sjö
krónur innbundin. Hún er seld hjá
bóksöium og í bókaverslun Sigurðar
Xristjánssonar, Bankastræti 3.
Sjóvátrygoingar.
Brunatryggingar.
Alíslenskt fjelag.
Sjóvátryggingarfjelag íslands h.f.
Eimskip 2. hæö. Reykjavík.
er bragðgott, drjúgt og gott til
bökunar..
Hljóm- og talmyndir.
NÓTT jcFTIR NÓTT.
Mynd þess er gerð eftir Para-
mount eftir alkunnri skáldsögu eftir
Louis Bromfield. Er efnið einkar
vel fallið til kvikmyndunar, enda
hefir myndin tekist mæla vel. Leik-
stjórinn segir hlutina í hálfkveðinni
vísu, svo að áheyrandinn hefir jafn-
an nóg að gera, að liugsa i eyðurn-
ar. Gerist myndin í næturklúhb í
New York og aðalpersónurnar eru
Joe Anton, eigandi klúbbsins og fyr-
verandi boxari — leikinn af mikilli
snild af George Raft — og Jerry
Healy, ung stúlka sem kemur í
klúbbinn kvöld eftir kvöld en situr
jafnan ein við horð út af fyrir sig.
Hún er af ríkum ættum og hefir
fæðst í höllinni sem næturkiúbbur-
inn er til liúsa í, og kemur þvi
þarna af gamalli trygð við staðinn.
Efni myndarinnar verður ekki rak-
ið hjer, en það er hugnæmt og
snildarlega með farið, svo að unun
er að sjá myndina. Constance Cumm
ings og Wynne Gibson leika þarna
tvö stór kvenldutverk og Alison
Skipworth roskna konu, sem Joe
Anton liefir fengið til að kénna
sjer „mannasiði“, því að mesta þiá
hans er að komast í finni manna
tölu. Mte West Ieikur og skemlilegt
hlutverk.
Myndin verður sýnd á Gamla
Hió á næstunni.
ÚTLAGINN.
Þelta er nýjasta myndin eftir Luis
Trenker, sem frægur er orðinn fyrir
hinar tignarlegu og grípandi mynd-
i sínar úr Alpafjöllum, síðast hina
stórkostlegu mynd „Björg í báli“.
í þessari mynd, sem ekki er farið
að sýna á Norðurlöndum enn, ieik-
ur hann sjálfur aðalhlutverkið og
hefir sjeð um leikstjórnina ásand
Kurt Bernhardt. En hin stóru hlut-
verkin leika Luise Ullrich, Victor
Varconi og Fritz Kampers.
Myndin gerist árið 1809. Tyrolar-
stúdentinn Severin Anderlan er á
heimleið frá Jená og kynnist á leið-
inni Eriku amtmannsdóttur í Bay-
ern, sem er í þann veginn að flytj-
ast til Tyrol. En þegar hann kemur
heim er þorpið sem hann býr í
brent til ösku af her Napoleons en
móðir hans og systir dánar. Severin
verður örvita af iiræði og drepur
tvo af hermönnum Napoleons og
flýr síðan til fjalla, en þar hafa
safnast fyrir ýmsir flóttamenn, cr
hafa komist i missætti við Bayers-
menn og Napoleonsliðið. Nú er sett
fje til höfuðs Severin en honum tekst
að ieynast í seli uppi í fjöllum og
Erika hefir þó jafnan samband við
hann og hjálpar honum. Loks ræð-
ur hann al' að safna saman ölln
liði Tyrolmanna og hefta innrás
Napoleons. Horfir vænlega um sig-
ur fyrst, en enginn má við rnargn-
um og uppreisnarmenn fara liall-
oka og myndinni lýkur með því að
Severin er handtekinn og drepinn.
Mynd þessi er fagur óður um
hina frelsiskæru Tyrolbúa, sem
þorðu að leggja gegn ofureflinu ti!
að vernda land sitt gegn erlendum
ágangi og ofbeldi. En hún er jafn-
framt fögur saga um ástir útlagans
og embættismannsdótturinnar, hug-
næm og töfrandi saga. Og hún er
ennfremur dýrðleg náttúrumynd úr '
hinum tignarlegu fjöllum Tyrol,
sem annáluð er fyrir fegurð og a
hverju ári heimsótt af þúsundum
skemtiferðamanna, sem undrast dá-
semdir hinnar tignarlegu náttúru.
Alt þetta gerir myndina töfrandi
hverjúm manni sem hana sjer.
Utlaginn verður sýnd í Nýja Bió
um helgina.
Hitler hefir nú skipað svo fyrir,
að hin gamla höll Hohenzollernkeis-
aranna, Hohenzoljernburg skuli end-
urbætt og gert við hana. Þykir þetta
benda á, að Hitler muni ætla að
bjóða Vilhjálmi keisara að koma
til Þýskalands og setjast þar að.
------------------x-----
Maður einn í Barcelona vekur al-
menna athygii um þessar mundir.
Hann tók þátt í styrjöldinni í liði
Þjóðverja og var flugmaður þar,
en hrapaði til jarðar og lá nær
dauða en iífi í marga mánuði á
eftir. Þegar hann loksins náði sjer
aftur var hann alveg tilfinningar-
laus. Hefir hann farið frá lækni til
læknis árangursíaust og að síðustu
tekið til bragðs að nota tilfinning-
arleysið sjer til lífsppeldis. Sýnir
hann sig nú opinberlega í Barce-
lona og lætur pynta sig á ýmsan
hátt, t. d. negla nagla gegnum hend-
ur sínar og fætur, án þess að
kveinka sjer nokkuð,