Fálkinn - 11.11.1933, Blaðsíða 5
F Á L K I N N
nú er þolinraæðin þrotin, eigi
sist í Þýskalandi, við hina beru
misbrúkun páfadómsins á trú
almennings á aflátssöluna. Hinn
31. október 1517 festir Lútlier
hinar frægu 95 setningar sínar
upp á kirkjuliurðina í Witten-
berg. Þó að þær væri samdar á
latinu og fyrst og fremst beint
til lærðu mannana urðu þær
einskonar heróp til allrar þjóð-
arinnar og urðu í einu vettfangi
kunnar eigi aðeins um Þýska-
land heldúr um alla Evrópu.
Þar er það staðhæft, að páfinn
hafi eigi rétt til að gefa upp
aðrar refsingar en þær, sem hann
hafi sjálfur lagt á, þ. e. kirkju-
bann og því um líkt; en þá refs-
ingu sem mestu varðar: reiði
Guðs yfir syndum mannanna,
getur páfinn ekki gefið upp, og
liún fæst aðeins afplánuð með
iðrun og einlægri trú á náð
Guðs fvrir tilverknað Jesú Krists.
Syndafyrirgefningin er samvisk-
unnar mál, en getur aldrei orð-
ið liáð sjálfspyntingum eða pen-
ingum.
Þeir voru margir sem fanst
þetta vera talað út úr sínu hjarta
en aðrir reiddust af einni eða ann
ari ástæðu og einkum þeir, sem
mestu réðu. Og nú vaknaði
kaþólska kirkjan sjálf, sem í
fyrstu hafði látið „munkaraus-
ið“ eins og vind um eyrun þjóta.
í fyrstu var reynt að fara vel
að Lúthcr og fá hann til að
þegja með góðu — en þegar
það ekki stoðaði kom bannfær-
ing eftir bannfæring yfir Lúth-
er, en það stoðaði lítt því að
fjöldinn sneri ekki við honum
bakinu að heldur. Árið 1521
lieldur Karl keisari hinn fræga
rikisdag sinn í Wiorms og er
Lúther hoðaður þangað. Hann
fer til Worms þrátt fyrir að-
varanir vina sinna og þó að alt
skrautið og viðhöfnin kringum
hina tvö hundruð höfðingja fái
í fyrstu mjög á hann, J)á lýkur
þó með þvi, að hann lieldur
l'ast við stefnu sína og rökstyður
liana. Og nú hefir hann hrotið
allar hrýr milli sín og páfa-
dómsins að baki sjcr. Friðrik
vitri kjörfursti í Saxlandi skilur
að líf Lúthers muni vera i
hættu og lætur taka hann og
flytja til Wartburg, þar sem
hann dvelur nærri því ár undir
dulnefninu „Georg junkari" og
vinnur að ritstörfum þrátt fyrir
sjúkdóma og sálarstríð. Á Warl-
hurg semur hann eigi aðeins
djörf ádeilurit gegn páfadóm-
inum heldur semur hánn einnig
„þýsku postilluna" og byrjar á
þýðingu sinni af bibliunni af
hebresku á þýsku. En 20. maí
1521 er hann lýstur í ríkisbann,
1). e. útlægur og rjettdræpur.
Meðan þessu fer fram vex
siðaskiftunum ásmegin um land
alt. En draumóramenn, sem
hyggja á verslega byltingu í
sambandi við siðaskiftin reyna
að ná völdum og lendir i blóð-
uga baráttu og up'pþot verða víðs
vegar. Það er hið svo nefnda
Yndisþokkinn er dýrmætasta
eign konunnar.
Aallstaðar þar sem
fólk kcmur saman þyk-
ir mest tll þeirra
kvenna koma, sem
hafa þannig litarhátt
að hann ber vott
um heilbrigði og ljær
andlitinu fegurð. Konur
nútímans prýða þess-
veuna litarhátt sinn með
„Khasana Sunerb“-Rouge
og fegra munninn með
„Khasana Superb“-vara-
stifti. „Khasana Superb“
breytir litblænum á
sjálfu hörundinu í sam-
ræmi við litarhátt hvers
einstaklings. . þessvegna
eru áhrif þess svo eðli-
leg. Hinn ljetti og mjúki
iitur „Khasana Superb“
helst allan daginn og
þolir bæði hvassviðri
vatn og kossa“. Notið
Ivhasana Superb til þess
að auka og viðhalda
fegurð yðar.
KHASANA
SUPERB
DR.M.ALBERSHEIM, FRANKFURTA.MVPARIS u.LONDON
Aðalumboð fyrir ísland: H. Ólafsson & Bernhöft.
bændastríð. Lútlier er íhaldssám-
ur í stjórnmálum og hefir megn
ustu óbeit á þessum uppþotum.
Hann afræður því að fara frá
Wartburg til þess að skerast í
leikinu, þó að þetta sje honum
slórhættusamt, og með hinum
djörfu ræðum sínum tekst hon-
um að eyða uppreisninni. Eftir
jjetta dvelur hann oftast í Mr,itt-
cnberg undir vernd kjörfurst-
ans og nú kemst skipulag á siða-
kiftastarfið í Saxlandi, undir
stjórn Lúthers sjálfs.
Það vakti mikla athygli þeg-
r Lúther — strokumunkurinn
sem ýmsir kölluðu hann
kastar munkakuflinum og gift-
ist fyrverandi nunnu, sem hjet
Kalharina von Bora. Þótti þetta
hin mesta ósvinna, því að kirkj-
unnar menn áttu jafnan að lifa
ókvæntir. Katarina von Bora
er fyrsta prestskona sögunnar.
Lúther og kona hans eignuð-
usl (i hörn og lifðu fjögur þeirra
föður sirin. Geta má þess, að
karlleggur Lúthers dó út 1759
með Martin Gottloh Lúther, lög-
l'ræðingi í Dresden.
Lúther er þannig lýst í al-
kunnri æfisögu: í Wittenberg,
þar sem þúsundir manna leit-
uðu hans og spurðu hann ráða
var hann vinsæll ræðumafeur
og óþreytandi i umhyggju fyrir
söfnuðinum. einlægur og alúð-
legur vinur, sem kom sjer að
'ifnaði vel við alla, spriklandi
af fjöri og kátínu. Hann kunni
ekki að hræðast. Honum var
ljúft að berjast og andstæðingar
lians voru eigi aðeius menskir
menn heldur og vítisvöldin. Og
Jjegar óvissan kom upp í honum
þá lifði hann bitrar kvalastund-
ir og hann kvartaði oft undan
sálarstríði. Auk þess átti hann
við líkamlegar þjáningar að
slríða, blóðþrýsting, blóðsótt og
steinsótt. En samt lijelt hann ó-
skertu vinnuþreki. Alt sem hann
ljel frá sjer fara af ritum var
isvikið hvort lieldur það voru
.æður, samningar eða játning-
ar. Þessvegna varð hann þjóð-
!;gasli rithöfundur Þjóðverja.
Þó maður þessi ætti í stríði
við allan heiminn og ofl við
sjálfan sig lika, þó að hann ofl
lyfti risatökum og ætti persónu-
leg skifti við bæði Guð og djöf-
ulinu var heimilislif hans frið-
samt og ástúðlegt. Börnin voru
i hans augum æðsta blessunin
og tryggasta band kærfeikans.
Hann liafði mjög gaman af liljóð-
færaslætti og stundaði hann sjálf
ur heima hjá sjer.
Á siðari árum urðu lífskjör-
lians sæmileg og hafði j)á mikla
risnu við vini sína og fátækl-
inga. Stóð hús hans þeim opið.
En páfadóminn hataði hann til
æfiloka. Jafnvel í sjúkdóms-
köstunum mátti sjá þetta. Þar
um má nefna sem ótvírættmerki
heitið á riti því sem hann ljet
frá sjer fara árið áður en hann
dó: „Páfastóllinn stofnaður af
djöflinum".
Ýmsum kann að virðast lieitið
ósmekklegt, en þess er að gæta,
að andstæðingar Lúthers notuðu
líka sterk orð. Þegar Lúther
var setur í hann i W,orms 1521
var svo komist að orði í hrjef-
inu: „hver sem hlevpir inn í
hús sitt eða liýsir Lúther, hýsir
djöfulinn dulbúinn sem manns-
mynd i munkakufli".
Lúther var bændaættar og
sjálfur líkastur gildum stór-
bónda í útliti og framgöngu.
Hann var enginn friðarins mað-
ur. Hann var geðríkur og oft
vanstiltur.
Árið 1537 var Lúther staddur
í Schmalkalden og varð alvar-
iega veikur. Honum hatnaði að
vísu nokkuð aftur, en þó hafði
hann tekið sjúkdóm þann sem
dró hann til dauða. Hinn ö. jan-
úar 1542 gerði hann arfleiðslu-
skrá síua. Árið 154(5 varð Iiann
mjög veikur á ný og nóttina
eftir hafði hann áköf kvalaköst
og þuldi þá liátt ritningarstaði.
Hann andaðist 18. febrúar 184(5
klukkan 3 að morgni.
Filippus MelanJvton lijelt lík-
ræðuna vfir honum: „Doktor
Lúther hefir leitt í ljós liina
sönnu og hreinu kristilegu trú,
sem hefir verið afskræmd og i
myrkri. Hann hefir sýnt livað
hið sanna afturhvarf er og livað
það er sem er viss og sönn lmgg-
un samvisku þeirri, sem skelfist
af ótta við reiði Guðs. Hann hef-
ir skýrt kenningar Páls postula,
sem segir, að maður réttlætist
elvlci nema af trúnni. Hann lief-
ir afmáð hjá oss myndadýrkun
og áköllun mynda og afguða úr
tré og steini. En hann hefir liins
vegar aldrei þreyst á að kenna
oss að setja alt vort traust á
Krist, sem er vor eini meðal-
ingari, guðs sou, sem situr við
’ ægri hönd föðursins og biður
fyrir oss. Hann liefir með sí-
feldri alúð skýrt fvrir okkur,
hvaða sönn og góð verk þókn-
ist Guði. Þessvegna skulu öll
sönn og fróm hjörtu aldrei
liætta að þakka Guði um alla
cilífð fyrir þær velgerðir sem
liann hefir gert kirkju sinni,
með því að fá lienni þennan
trygga þjón“.
Bandaríkin hafa eignast fasista-
flokk, sem kallar sig' „khakískvrí-
urnar". Heitir foringi þeirra Arthur
Smith og er frá Fíladelfiu. Ætlluðu
fasistar þessir að fara í krfu-
göngu lil Washington 12. október
og gera Roosevelt forseta að ein-
valdsherra Bandaríkjanna. Um eiii
miljón manna kvað hafa innritað
sig i þessa kröfugörigu.
----x------
I Mohenjo Doro, skamt frá Bam-
hay var verið að grafa upp forn-
rústir og fundust þar skálar og
krukkur með svokölluðum nnuniu-
hveiti, sem hefir legið þarna i rúst-
unum í riærfelt 5000 ár. Hveitinu
var sáð til reynslu á tilraunastöð
húnaðarskólans í Umedpurs og gaf
bestu uppskeru. Hveiti þetta þekkist
ekki fyr en nú, er talið ákaflega
næringarmikið.