Fálkinn


Fálkinn - 17.03.1934, Blaðsíða 8

Fálkinn - 17.03.1934, Blaðsíða 8
8 F A L K I N N Á Cuba er enn mikil úkyrð éftir bylt- inguna í haust og eiga yfirvöldin fult í fangi með að verjast óeirðaseggjun- um, sem altaf eru að stinga upp höfði. Safna þeir að sjer altskonar æfintýra- lýð, sem þeir lofa gulíi og grænum skógum undir eins og þeir hafi komið stjórninni frá völdum. En allar þess- ar nýju byltingatilraÚnir hafa verið kveðnar niður jafnóðum með mestu harðneskju, enda er stjórnih á verði og hefir jafnan á takteinum vopnað herlið og „brynjaðar bifreiðar“ eins og þá, sem sjest hjer á myndihni. Er það gamall vörubíll, sem smíðað hef- ir verið á hvolfþak úr jdrnþlötum, til þess að verja hann skothríð fjand- mannanna. í Kaliforníu er verið að smiða eiha af stærstu vatnsvirkjunarstöðvum heims- ins og sýnir myndin hjer að heðan vjelina, sem steinsteypan er hrærð i. Eigi fylgir það sögunni hve. stór hún sje, en stærðina má marka af saman- burði við bifreiðarnar, sem standa hjá henni. Leikendurnir í hinum frægu píslar- sögu- sjó) nléikum í Oberammergau i Bayern stunda margir hverjir trje- skurð, enda kveður mikið að þeirri iðn viða í Suður-Þýskalandi. Á mynd- inni hjer að neðan sjást þrír af leik- endunum, sem eiga að leika i píslar- leikjunum í sumar, við vinnu á trje- skurðarstofunni. Eru það Willi Bier- Hng (Jóhannes), Anni Rutz (María) og Klara Meyr (Magdalena), sem hafa vinnustofu í sameiningu og græða of fjár á iðninni. Því allir sem koma til Oberammergau að sjá þau, kaupa muni eftir þau til þess að hafa iil minja um komu sína. Þessi mynd er tekin i spilabankanum í Monte Carlo skömmu eftir nýárið, þegar bankinn setti í umferð á ný spilapeninga úr gulli, í slað spilapen- inga úr ódýrum málmi, sem notaðir hafa verið síðan á ófriðarárunum. Iiefir bankinn sjerstaka myntsláttu og af því að hann átti gnægð af ómótuðu gulli setti hann það í umferð, vitandi það, að þetta mundi draga- fólk að bankanum. i

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.