Fálkinn


Fálkinn - 09.02.1935, Page 12

Fálkinn - 09.02.1935, Page 12
12 F Á L K I N N Njósnarar Skáldsaga eftir William le Queux. Villiers liefir pressað þá betur en jeg hjelt hann gæti. Jæja, þegar þessi mánuður er liðinn, skuluð þjer vera tilbúnar til að fara til Róm. Claudia glenti upp augun, forviða. — Til Róm!? át hún eftir. Salmon hinn slungni, þagði nokkrar sekúndur áður en hann sagði nokkuð. Nú ætlaði hann að spila út trompinu. — Já, þjer verðið þar í nokkrar vikur, og þaðan ætla jeg að senda yður lil París. Svo komið þjer hingað aflur með erlenda frægð, og komist að stóru leikhúsunum hjerna. Hvernig finst yður þetta? Er það ekki gott? En stúlkan gat ekkert sagt — hún sat að eins með spentar greipar, og vissi ekki, hvað hún átti að segja. Salmon var hreykinn yfir þessum álirif- um, sem orð hans höfðu liaft á hina tilfinn- inganæmu Suðurlandastúlku. Hann liló vin- gjarnlega. — Þjer sjáið, að við, sem eigum í því stærra, getum gert eitthvað, þegar við för- um af stað. Komið þjer liingað á morgun um sama leyti og þá skal jeg gefa yður samning við Salone Margherita með fjór- um sinnum þvi kaupi sem þjer hafið nú. Hann hafði slegið tromijinu á borðið og Claudia fjekk svima við þessar frjettir. Sa- lone Margherita var aðal-söngleikahúsið í Róm. Og ferfaldað kaup! Hvað ætli þau myndu nú segja Maudie, Beppo gamli Og gamli Ferrari, sem hafði sagt henni, að hún kæmist aldrei upp úr meðallagi! Hún stóð upp og rjetti fram höndina, með augun full af tárum. — Jeg get ekki þakkað yður eins og vert væri núna, sagði hún, skjálfandi rödd. — Það er eins og alt hringsnúist í liöfðinu á mjer — jeg get ekki komið orðum að neinu. Á morgun ætla jeg að segja yður hversu þakklát jeg er, og jeg skal vera dugleg, til að bregðast ekki þvi trausti, sem þjer hafið á mjer. Salmon klappaði vingjarnlega liönd henn- ar. — Jeg er viss um, að þjer verðið góð stúlka, og gerið mjer sóma. Verið þjer sæl- ar á meðan. Stúlkan fór í hálfgerðri leiðslu út um hlið- ardyr og komst út á götuna. Hún gat enn ekki skilið, að þetta væri satt. Salone Marg- herita og ferfalt kaup! Hún hefði með á- nægju sungið þar fyrir ekkert annað en heiðurinn! Hún náði í síma og liringdi til vinkonu sinnar ungfrú Farrel, sem hjó með annari leikhússtúlku í Camden Town. — Jeg hef svo dásamlegar frjettir að segja þjer, sagði liún. — Hittu mig hjá Lu- igi eftir klukkutíma og borðaðu með mjer hádegisverð. Jeg er svo spent, að jeg veit, að jeg verð frá mjer ef jeg næ ekki í ein- hvern til að segja frá því. Maudie lofaði að koma. Hún komst líka í spenningu við þessar fáorðu fréttir. Claudia var komin í matsöluliúsið rúmum hálftima á undan stallsystur sinni. Hún fjekk hlek og penna hjá þjóninum og skrif- aði hrjef, og setti það i póst. Það var til hr. Cliarles Laidlaw, Eaton Place. Það var stutt- orð frásögn af því, sem skeð liafði um morg- uninn. Það var rjett komið að hádegisverðar- tíma þegar Levi lcom í skrifstofuna í Green Street. — Er húshóndinn við? spurði hann unga manninn í fremri skrifstofunni. — Já, og einn síns liðs, lir. Levi. Gerið þjer svo vel að ganga inn. Levi opnaði dyrnar og kinkaði kolli til vinar síns . — Þú hefir talað við rauðu stúlkuna, sem svo er kölluð? — Já, liún kom snemma. Jeg er búinn að semja við liana. Hún er í sjöunda himni, og veit í augnablikinu ekki hvort hún á að ganga á höfði eða fótum. Og alveg að springa af þakklátssemi. — Það er óvenjulega falleg stúlka, finst þjer ekki? spurði Levi. — Jú, þar er jeg á sama máli. Mjer liefði þótt gaman að gefa henni dálitið undir fótinn, en hún virðist alls ekki vera neitt fyrir það. — Nei, eftir því, sem jeg hefi heyrt, er hún dálítið hausstygg. Til skamms tíma hefir hún aldrei sjest nema með kvenfólki. — Þegar hún kemst i gott skap, er hún fjandans lagleg, sagði Salmon hugsandi. Og jeg er ekki viss um, frá fagmannsins sjónarmiði, að hún verði svo slæm. Þegar hún kemst í almennilega stöðu, ætti hún að geta gengið í augun á fólki. Vel á minst, hefirðu nokkuð heyrt hvernig gengur með Laidlaw? — Það er í fullum gangi. Hann fer með hana á matsöluhús, sýknt og heilagt. Fer mjög varlega með hana, fylgir henni altaf heim á kvöldin og afhendir hana föður hennar. — Það má búast við, að hann giftist henni, þegar hann er húinn að hugsa sig nægilega um, sagði Salmon. — Það virðist alment álitið, að það sje tilgangur hans. Hann er alls ekki líkur venjulegum nautnasegg. Hann er göfug- lyndur, listhneigður og hangir litið i siðun- um. Afi lians giftist líka leikhússtjörnu. Salmon brosti. — Leikliúsin eru dálítið annað en sönghallirnar, er það ekki? Nú, en ástin getur farið langt með suma. Hann stóð upp og seildist eftir hattinum sínum. — Við skulum fara niður í klúhb- inn og fá okkur hressingu. Þau geta kyst hvort annað i næði þegar þau koma í „Borg- ina eilífu“. Annars held jeg, að jeg hafi lok- ið góðu dagsverki í dag. IV. KAPÍTULI. — Þjer eruð óvanalega snemma á fótum, hr. Charles. Sir Francis er farinn fyrir hálf- tíma. Jeg átti að segja yður, að hann borði ekki heima i kvöld. — Þakka yður fyrir, Pritchard. Jeg verð heldur ekki heima. Sá, sem talaði var Charles Laidlaw, lag- legur og fyrirmannlegur maður, tuttugu og sjö ára gamall. Pritchard, sem var gamall maður með mikið úlfgrátt hár var hryti hjá Sir Francis Laidlaw. Ilann liafði komið í þjónustu húsbónda síns, er hann reisti hú fyrir þrjátíu árum, og var í miklu afhaldi hjá hinni fámennnu íjölskyldu. Sir Francis Laidlaw hafði verið ekkju- maður meir en tuttugu ár. Hann átti tvær dætur, Emilíu og Evu, sem háðar voru ó- giftar, og einn son. Hann var háttsettur emhættismaður í Utanrikisráðuneytinu Charles var ritari í sendisveitinni í Róm og var nú heima i leyfi sínu. Laidlaw-ættin var gömul, því hróðir Sir Francis, greifinn af Densleigh, var sjöundi greifinn. Þeir frændur höfðu annars ekkert skarað sjerstaklega fram úr, heldur voru rjett meðalmenn, sem stóðu sómasamlega í stöðu sinni, án þess að nokkuð sjerlega hæri á þeim. Enginn þeirra hafði verið framúrskarandi stjórnmálamaður eða hers- höfðingi. En framúrskarandi virðingar- verðir menn, engu að síður. Einu sinni liafði þó komið babb í bátinn, og var það sjötti greifinn, afi Cliarles, sem varð þess valdandi. Þessi maður, sem fjekk titilinn áður en hann varð myndugur, sýndi óvenjulegar tilhneigingar til að verða full- orðinn. Hann afhenti eigurnar umhoðs- mönnum og lögfræðingum til umráða, og kom sjaldan i lávarðadeildina, heldur spil- aði hann fjárhættuspil og veðjaði á hesta, þannig, að öllum ofbauð. Virðingarverðu skyldmennin lians hristu höfuð sín yfir honum, og liörmuðu það, að titillinn skyldi ekki lieldur hafa gengið til næstelsta hróð- urins, sem hafði á sjer öll liin virðingar- verðu æltareinkenni og var sannur Laid- law, en ráðsvinnur og varkár í öllu fram- ferði sinu. Þessi sjervitri aðalsmaður setti kórónuna á verkið með því að velja sjer konuefni úr leikhúsaheiminum, enda þótt hann hefði getað fengið dætur helstu lávarða landsins. Vinir hans fórnuðu upp höndum í skelf- ingu, og fóru að hugsa um, hvaðan hann eiginlega hefði þessa eiginleika sína. Á þessum tíma voru aðalsmenn enn ekki farnir að giftast leikkonum, svo teljandi væri. Unga greifafrúin var ekki einasta dygðug kona, lieldur líka mjög töfrandi. Og sá tími kom, að hún sigraði fordóma ættingjanna og komst í uppáhald lijá þeim sem áður höfðu amast við henni. Hún eign- aðist fjögur börn með manni sínum, sem öll líktust hinum virðingarverðu forfeðrum sínum en alls ekki dutlungafulla föðurnum nje móðurinni frá leikliúsinu. Sir Francis, yngsti sonurinn, var ekta Laidlaw, skemtilegur og góður í sjer, en varkár og nákvæmur og hafði ekki í sjer eina einustu upprunalega hugmynd, sem kæmi í bága við almennar siðareglur. Hann var eins og sniðinn eftir ættarfyrirmynd- inni, vandvirkur og eins og fólk flest. Hann kvæntist konu, sem var honum samboðin að öllu leyti, og naut heimilisfriðar og á- nægju til dauðadags. Stúlkurnar tvær, Emilía og Eva voru laglegar, hlátt áfram og heiðarlegar ungar stúlkur, vel birgar af al- mennri greind en vantaði alveg að vera fjörugar eða skemtilegar. Charles líktist eigi all-lítið sjötta greifan-

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.