Fálkinn


Fálkinn - 09.02.1935, Side 14

Fálkinn - 09.02.1935, Side 14
14 F Á L K I N N Sunnudags hugleiðing. Eftir Pjetur Sigurðsson. Vinaval. 2. „Til er ástvinur, sem er tryggari en bróSir". Árið 1905 ávarpaði keisari Japans skólapilta á þessa leið: „Sé vatni lielt í bikar, bolla, skál, það breytir lögun i . ir kringumstæðnm; á vinaten.gd vjer töpum eða græðnm, því til bins verra og betra — eftir gæðum — af þeirra vali mótast mannleg sál“. „Þjer ungu vinir, vonir þessa lands, í vinakjöri takið skyn tit ráða, en forðist svipi, stormi’ og straumi háða, en stórum sál- um tengist fast — til dáða þær knýja fram með svipu sann- leikans“. — Kvistir, bls. 45. Æskan er framtíðarvon allra þjóða, en á þvi v'eltur mikið, að æskan „taki skyn til ráða“ í vinavali sínu, því eins og vatn- ið fær lögun eftir ílátinu, sem því er helt í, eins mótast skap gerð æskumanns inikið eftir því umhverfi, scm liann velur sjer, ýmist til „liins verra og betra“. Á því tapa menn eða græða. Keisari Japans hvetur ungu mennina til að forðast „svipi, stormi’ og straumi liáða“ — forðist þessar reikulu stefnu- lausu sálir, sem eru eins og gufan eða þokuský, er hrekst fyrir livaða vindblæ sem er; að forðast þá menn, sem eru eins og svipir, sem eiga enga festu, enga skýra mynd, ekkert haldgott, sem hægt er að styðja sig við, — en í stað þess eiga ungu mennirnir, að „tengjast stórum sáilum fast“, því þær „knýja fram til dáða með svipu sannleikans“. Æskulýðurinn getur tengst þessum „stóru sálum“ í „sam- fjelagi“ við þá lifandi og dána, í fjelagslífi, í bókmentum, í æfisögum þeirra, í listaverkum þeirra og afreksverkum. Marg- ar stórar sálir hafa verið og eru jafnan á vegum manna, en einn er þó allra stærstur þar — Kristur. Aldrei getur ungur maður tengst hans göfugu og „stóru sál“ of fast. Þeir sem næst honum hafa komist, hafa allir orðið dáðrikir menn. Hann lyftir vinum sínum upp í reg- inliæð andlegs víðsýnis, mann- dóms og mikilleiks. Sá sem er í för með Kristi, veit livert liann stefnir. Takmarkið er fullkomn un. „Verið fullkomnir, eins og faðir yðar á himnum er full- kominn". Það er nautn lians að gera Guðs vilja, starfið er þjón- usta, liugsunin fórnfýsi, liásæt- ið krossinn, veldissproti hans er hin „ægilega“ auðmýkt. Hann er elskulega mannlegur og guðdómlegur. Hann er sá „ástvinur, sem er tryggari en bróðir“. Hann umvefur vini sina áslríki, umburðarlyndi og Lif og heilsa. I. Mjólk. Eftir Dr. G. CLAESSEN. Nú tala höfuðstaðarbúar ekki um annað meir en mjólk. All- ir blaðadálkar eru fullir af mjólkurgreinum. Frá útvarp- inu er þrumað úl til allra lilust- enda um mjólk. Sveitafólkið, sem framleiðir mjólkina lianda okkur hjer á mölinni, stend- ur víst líka á öndinni. Það er margt orðið oftalað, og mis- jafnlega hugsað, í þessu mjólk- urstríði, þótt allir partar sjeu vitanlega barðánægðir með sinn málstað. Eitt er raunalegt — sem sje að blessaðar kýrnar vita ekki að þær, og mjólkurdropinn úr þeim, æsir svona lýð landsins. Ef svo væri, mundi mikið baul- að á básunum! Mjer befir oftar en einu sinni, þessa dagana, komið í bug ein spurning, með sjálfum mjer: Mundi ekki ýmsum af þeim, sem hæst tala og mest skrifa verða svarafátt, ef þessari mein- leysislegu spurningu væri varp- að fram fyrir þá: Hvað er mjólk? Það gæti verið gaman að rifja upp livað mjólkin geymir í sjer, og hversvegna er sóttst eftir henni til mann- eldis. Enginn eðlismunur er á mjólk ýmsra spendýra. Brjóst- ið og júgrið hefir hvorttveggja í sjer kirtla. Þeir gefa frá sjer mjólkina, sem kemur úr geir- vörtunni eða spenanum. Brjóstamjólkin og kúamjólkin er mest notuð til manneldis, en reyndar segja vísindamenn- irnir, að ösnumjólk sje líkust konumjólkinni. En það hefir ekki praktiska þýðingu, því asnar í þeim skilningi eru ekki á hverju strái! Náttúran er ekki sein á sjer að koma mjólk í brjóstin. Það er algengt, að mjólk komi í brjóst lijá nýfæddum börnum, jafnt piltum sem stúlkum. Sú mjólk er kölluð „gjörningur”, og hverfur eftir nokkra daga. En þegar konan verður ófrísk þrútna brjóstin, og allt er búið undir að hún geti lagt barnið sitt á brjóst, þegar þar að samúð, hann skilur þá auð- veldlega og í návist háns og undir tilsögn hans „brenna hjörtu“ allra þeirra, er tengj- ast honum, af heilögum vona- eldi. Iiann opnar skilning þeirra á lífinu, hjörtu þeirra fyrir Guði og breytir nótt vonleysis- ins í bjartan dag trúar og vona. Æskulýður íslands! í Kristi sjálfum eigið þjer yðar sann- asta og hollasta vin. „Tengist“ honum „fast“, en forðist „svipi, stormi’ og straumi háða“. kemur. Það er margsannað, að brjóstamjólkin er nngbörnum lang-hollust, þótt vitanlega geti pelabörnum reitt vel af, ef þau fá óskemda og rjett meðfarna kúámjólk. En það er miklu vandameira mál, að fóstra upp barn á pela, heldur en að bafa það á brjósti. Hvað er nú það sem gerir mjólkina svo ómissandi handa hvítvoðungunum? Því er fljót- svarað: Mjólkin geymir í sjer öll þau efni, sem ungbarnið þarf til þess að dafna, og liefir að því leyti yfirburði yfir all- an annan mat eða drykk. Þá er að atlniga liver þessi efni eru. Það þykir kannske sumum kynlegt, að það efni sem mest er af í mjólkinni er vatn. í einum lítra (1 þúsund grönnn) af mjólk eru nálægt því 900 grömm valn. Það er nauðsynlegt fyrir kroppinn að fá í sig nóg af því, vegna þess að um % af líkamanum er ekki annað en vatn. En það er þó vitanlega vegna föstu efnanna í mjólkinni, sem sóst er eftir lienni til manneldis, og þá er að segja frá þeim. Það vita allir livernig mjólk er á litinn. Hún er þó ekki livít vegna þess að hún liafi í sjer neitt litarefni, heldur af ]>ví að í mjólkinni sveimar ó- tölulegur grúi af ofursmáum fitukornum, sem gerir hana ógagnsæja og hvíta. Það er að sínu leyti eins og þegar vatn er látið buna í glas og loftból- urnar gera vatnið livítt. Gæði mjólkurinnar eru venjulega miðuð við fituna, enda eru settar reglur um live sölumjólk skuli vera fiturik. Áður fyr var notað einfalt ráð til að skilja fituna (rjóm- ann) frá undanrennunni. Ný- mjólkin var látin standa i trogum. Fituagnirnar leita þá upp, vegna þess hve þær eru ljettar í sjer, og svo má fleyta rjómann frá. Nú eru notaðar skilvindur í þessu skyni. 1 nýmjólk er líka ostefni eða eggjahvítuefni, sem hægt er að ná úr mjólkinni með hleypi. Þessi breyting verður lika í maganum. Ungar mæður eru slundum áhyggjufullar út af því, að ystingur komi upp, ef eitthvað af mjólk spýtist upp úr maga ungbarnsins. En þetta er óþörf áhyggja. Það er eðli- legt, að mjólkin hlaupi í drafla þegar liún kemur ofan í mag- ann. Það er ostefnið sem hleypur saman. Hitt er annað mál, að draflinn úr brjósta- mjólkinni er miklu fíngerðari, og þvi auðmeltari í ungbarn- maganum, lieldur en þegar barnið fær pela. Þetta er eitt af því, sem gerir brjóstamjólk- ina hollari og auðmeltari en kúamjólkina. Ostefnið i mjólkinni kemur lílca fram við annað tækifæri — þegar mjólkin er flóuð. Þá sest skán eða börkur ofan á. Fyrst eftir burð eru ostefn- in mikil og annars eðlis, en þegar líður frá burði. Það sjest m. a. á því, að broddurinn frá nýbærunni hleypur í kökk, þegar liann er soðinn; það eru ábrislir, sem mörgum þykir herramannsmatur. Það sem gerist þegar broddurinn er soðinn, er hliðstætt því sem á sjer stað, þegar egg er soðið. Þá storknar eggjahvítan, mis- jafnlega mikið eftir því hvort eggið er harð- eða linsoðið. En mjög fljótt eflir burð breytist ]>etta, og mjólkin hleypur þá ekki saman, þó hún sje flóuð, nema að lítilsháttar skán sest ofan á liana. — I osti er bæði eggjabvítuefni og fita. Mjólkin hefir í sjer sykur- efni, sem nefnist mjólkursykur, en auk þess steinefni eða sölt. Hið merkasta þeirra er kalk- salt, og kemur það sjer vel fyrir ungbarnið, þar sem svo mikið brjósk í líkama þess þarf að beingerast. Fnllorðnir þurfa lika kalk, bæði í beinin og blóðið. Enn eru ótalin fjörefnin eða vitamínin. Brjóstamjólkin lief- ir i sjer öll fjörefni, sem ung- barnið þarf til þess að dafna. En fjörefnin fara forgörðum þegar mjólkin er soðin. Það hefir stundum komið fyrir, að ungbörn hafa fengið skyrbjúg vegna þess að mæðurnar hafa þrautsoðið pelamjólkina, af ótta við sóttkveykjur. Við pastörs-hitun spillast fjörefnin, en liún á að vera trygging gegn sóttnæmi. Því er lialdið fram, að „stassanisering“ spilli síður fjörefnunum. Æskilegt væri, að fjörefnai)rófun yrði gerð á sölu- mjólk lijer á landi. Vafalaust er hollust lireinlega meðfarin mjólk úr heilbriðgum kúm, í góðu fjósi, án þess að „kúnstir“ sjeu gerðar við hana. Mjólk vill súrna, vegna þess að gerlar úr loftinu komast í liana. Þá breytist mjólkursyk- urinn í mjólkursýru. Mjólk er yfirleitt erfilt að geyma ó- skemda. Hún tekur auðveld- lega í sig sóttkveykjur, sem dafna vel í henni. Hættan staf- ar frekar frá fólkinu, sem með liana fer, heldur en frá skepn- unum. A. m. k. er það svo hjer á landi. Þrifnaður og aftur ])rifnaður, er það sem þarf við mjólkurílátin, mjaltirnar og geymslu mjólkurinnar. Mjólk- ina þarf að geyma á svölum stað. Mjólkurvinsla og mjólk- urmeðferð byggist á vísinda- legri þekking. Stjórnmála- mennirnir, úr hvaða flokki sem er, mega ekki halda að þeir geti ráðið viðunandi fram úr mjóllcurmálinu, án þess að hafa sjer við lilið lækna með vís- indalegri sjerþekkingu á þessu sviði lieilsufræðinnar, og svo góð ráð dýralæknanna. Mjólk er noluð með mjög

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.