Fálkinn


Fálkinn - 11.01.1936, Blaðsíða 3

Fálkinn - 11.01.1936, Blaðsíða 3
F Á L K 1 N N 3 Afmælisfagnaður Ármanns. Hjer birtist mynd af sljúrn Glímufjelagsins Ármann. Efst: Jens Guð- björnsson form. Siðan talið frú vinstri: Jón Guðmann Jónsson vara- form., Kristinn Hallgrimsson gjaUlkeri, Rannveig Þorsteinsdóltir rii- ari, Þórarinn Magnússon, Jóhann Jóhannesson og Ólafur Þorstensson fjehirðir. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Aðalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavík. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—H2 og 1—6. Skrifstofa í Oslo: A n t o n Schjöthsgade 1 4. Blaðið kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.50 á inánuði; kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millimeter. Herbertsprent prentaði. Skraddaraþankar. Fortunat Strowski heitir prófessor einn í frönskum bókmentum við há- skólann í París. í bók, sem hann gaf út fyrir nokkrum árum og nefnir „L’ Homme Moderne", gerir hann að umtalsefni hugsunarhátt nútíma- mannsins og viðhorf hans, og leit- ítst jafnframt við að sýna fram á livað það sje, sem einkum valdi hinni miklu breytingu, sem orðið á mannkyninu á síðustu áruni, einkum jieirri sem lýsir sjer í ýmsum lista- stefnum. Hjer á þessum stað er eigi rúm til, að birta heila kafla úr þess ari ágætu bók, en eigi að síður lang- ar Fálkann til þess að gefa lesend- ummi nokkur sýnishorn við og við, og fer hjer á eftir eitt þeirra, sem lekið er úr upphafi bókarinnar. En sá kaflinn fjallar um „Ósamræmi nútímans": „Nútímakynslóðinni líður illa. Þeir sem þetta er ljósast á eru liræddir við framtíðina, og jafnvel þeim sem lítilþægastir eru, finst nútímaástand- ið vera misráðið. í þessu liggur mis- ræmi það, sem Pascal kallaði „óró;‘ og taldi vera eðlilegt ástand hjá manninum. Á okkar dögum hefir þetta mis- ræmi aukist mjög. í öllum löndum, frá Þýskalandi til hinna auðgu Bandaríkja Vesturlieims, er almenn- ingi órótt. Hann skelfist hvað lít- inn þokubakka sem dregur upp við sjóndeildarhringinn og undir eins og hann eygir liættu, gengur hann af göflunum. Inn á við kvelst einstakl- ingurinn af tilhugsuninni um eigin örlög og óvissumeðvitundin verður að meðvitund um allsherjar kreppu. Þetta ástand hefði mannkynið get- að sparað sjer, því að nútiminn hefir fjarlægt eða minsta kosti brotið odd- inn af gömlu, beinu orsökunum til þeirrar óvissu sem ræður. í þjóðfje- lagi, sem með meiri gaumgæfni og röggsamlegar en áður berst gegn óáran, lögleysum og glæpum, hefir lekisl að draga úr þeim, þó ekki hafi þeim verið hnekt að fullu. Mennirnir eru eigi framar varnar- laus fórnardýr liallærisáranna og hræðast eigi hungursneyð á sama hátt og fyrr. Þeir standa eigi óbrynj- aðir gegn farsóttum og hallæri, og flýja ekki land þessvegna. Líkam- legar þjáningar eru orðnar Ijettari; sjúklingurinn á slcurðarborðinu verð- ur ekki var við hníf læknisins og með deyfimeðulunum er jafnvel eytt kvíða liins dauðadæmda fyrir högg- stokknum". Og andlegar kvalir eða ástæður til þeirra, eru þó margar úr sög- unni. Hirtingarvöndur trúbragðanna og hræðslan við eilífan dauða og eilifar kvalir, þjá ekki nútimamanr,- inn. F.n samt líður honum illa. Síðastliðinn þriðjudag hjelt Glímu fjelagið Ármann hátíðlegt 30 ára afmæli sitl i Iðnó, hófst það með samsæti kl. 9 og sátu það á 4. hundrað manns. Eftir að Jens Guð- lijörnsson form. félagsins hafði sett samsætið og minst Pjeturs heitins Jónssonar, hlustuðu menn á út- varpsræðu Helga Hjörvars um ís- lenska glimu. Því næst söng karla- kór nokkur lög. En þá var kominn Páll ísólfsson, óbeðinn, með Lúðra- sveit Reykjavíkur, sem ljek þar nokkur lög og árnaði fjelaginu allra heilla. Hlaut Lúðrasveitin mikið þakklæti allra fyrir komuna. Því næst fór fram glímusýning 8 Ár- menninga, sem tókst prýðilega og siðar sýndu 9 piltar úr Urvalsflokki fjelagsins, fimleika undir stjórn Jóns Þorsteinssonar og tókst sú sýning eigi síður en sú fyrri. Er livort- tveggja gott sýnishorn um það hvar Ármenningar standa i þessum tveim íþróttagreinum. Eftir þetta söng Marínó Kristinsson kvæði sem ort hafði verið til fjelagsins. Ræður fluttu Hermann Jónasson forsætisráðherra fyrir minni fjelags- ins, Jens Guðbjörnsson, Hallgrímur Benediktsson (er færði fjelaginu að gjöf fánaskjöld úr silfri frá nokkr- um stofnendum), Helgi Hjörvar, Kristinn Pjetursson, Lárus .1. Rist, Sigurjón Pjetursson, síra Helgi Hjálmarsson og Benedikt Waage frseti í. S. í. Færði hann fjelaginu að gjöf fagurlega útskorna vegg- hillu frá íþróttasambandi íslands er gjört hafði Rikarður Jónsson. Einnig afhenti hann Jens Guðbjörs- syni silfurpening fyrir mikið og gott 10 ára starf í þágu fjelagsins. Á Iiessum degi átti fyrsti formaður fjelagsins, Guðm. Guðmundsson frá Eyrarbakka 00 ára afmæli. Mælti formaður fjelagsins ,1. G. fyrir minni hans og færði syni hans að gjöf handa honum Ármanns fánann á áletraðri fánastöng, að honum und- anteknum voru i samsætinu formenn fjelagsins i 29 ár. F'jöldi heilla- skeyta bárust fjelaginu þar á meðal frá forsætisráðherra, rektor Menta- skólans, Knattspyrnufjel. Rvíkur, íþróttafjel. Rvíkur og fl. Eftir að borð voru tekin upp var dans stiginn fram til kl. 4 og er óhætt að full- yrða að viðstaddir muni lengi minn- ast þessa prýðilega afmælisfaðnaðar. Frúin: Ef þú hefir eitthvert augnablik aflögu, góði, langar inig til að minnast á ýmislegt smávegis við þig, sem við þurfum til heimil- isins. Hann: Hvað er það? Hún: — Jæja, til að byrja með þá þurfum við nýjan kjól. Hafið þið heyrt ? að i Indianola við Mississippi fæddist nýlega stúlka, sem heitir Carrie Elisabeth Bianca, og á bæði mömmu, ömmu, langömmu, langa- langömmu og langalangalangömmu á lífi. Mamman er 19 ára, amman 40, langamman 59, langalangamman 74 og langalangalangamman 99 ára. ----------------x----- uð enskur maður, sem heitir James Hosie og misti sjónina i heimsstyrjöldinni, rakst nýlega á steinstólpa i skraddarabúð og varð alsjáandi á söinu stundu. En eng- inn læknir hafði getað hjálpað hon- um. að nærskyrta spámannsins Mú- hamds, sem er ein af dýrmætustu helgileifum Múhameðstrúarmanna, var seld nýlega hollensku fjelagi fyrir fimm miljón gyllini. Var all- ur kóraninn skrifaður á skyrtuna. að átta hundruð prestar vestur i Bándaríkjunum hafa gerst seljarar fyrir stórt ameríkanskt verslunar- hús. Þeir bjóða söfnuðunum vörur óg skruma af þeim við kirkjuna. Tveir af hundraði af andvirði því sem selst renna í kirkjusjóðinn. ----------------x——- að prófessor Rodomsky við Moskvaháskólann segir, að ef fólk fáist til að drekka súra mjólk að staðaldri þá geti það hæglega orðið 150 ára. Byggir hann þetta á rann- sóknum sínum í Kákasus. Þar hefir líann hitt fyrir marga 150 ára öld- unga, sem allir lifðu að mestu Ieyti á súrmjólk. að stjórnin í Egyptalandi hefir ákveðið að friða pýramídana. Framvegis mega engir ferðamenn ganga upp á pýramídana og þvi siður pára nafnið sitt á þá. Verða nöfn sem þegar eru á pýramídun- iim afmáð. ----x----- að i sumum hjeruðum Ástraliu hafa bændur vanir kýrnar sinar á, að vikja úr vegi þegar þær mæta hifreið — og meira að segja víkja ti! rjettrar hliðar. Gæti Búnaðar- fjelagið lijerna ekki komið upp samskonar kenslu hjerna? ---x----- að málaflutningsmaður einn i Stokkhólmi fjekk stúlkuna sina til að taka upp „drengjakoll“. Svo slitnaði upp úr trúlofuninni og krafðist stúlkan þá 10.000 króna skaðabóta fyrir hárið, sem hún hafði mist. ---x----- að hæsti maður lieimsins er nærri því heilum meter hærri en Jóhann að norðan, eða rúmir þrír metrar, tvítugur að aldri og vegur 220 kíló. Var það austurriskur pró- fessor sem „uppgötvaði" þennan risa austur í Persíu. Risinn var eins og önnur börn þangað til hann varð átta ára, en fór síðan að vaxa svo gífurlega, að nú rekur hann sig allstaðar uppundir. að í „Normandie" er rúm fyrir 2170 farþega og 1387 manna áhöfn. Þaraf starfa 292 við vjelina, 30 við raflagnir skipsins og 7 við loft- skeytastöðina. Skipið er talið 79.280 smálestir að stærð. ---x----- að eldhúsið i „Normandie“ — slærsta skipi heimsins, er 220 feta langt og 119 fet á breidd. Þar eru 72 matsveinar og 76 hjálparkokkar, en 628 þjónar bera farþegunum matinn. Ennfremur eru þar 12 bak- arar, átta slátarar og þrír menn sem ekki gera annað en búa til ís- rjóma.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.