Fálkinn


Fálkinn - 11.01.1936, Síða 7

Fálkinn - 11.01.1936, Síða 7
FÁLKINN 7 t | Ameríkumönnunum W. S. Stewens og Orville liefir tekist aö setja nýtt háloftsmet og komust þeir í 22 km. hæð. Hjer sjásl þeir og flugkúla þeirra. Afí neðan er Stewens kapteinn. KERL KIRKJUMÁLARÁÐHERRA nazista á ekki sjö dagana sæla, því að þýska klérkastjettin hefir verið Hitlersveldinu einna óþægastur Ijár i þúfu, allra andstæðinga hans, og er honum spáð hættu af mótspyrnu prestanna. Hafði Hitler fengið þjarkinn Muller, ríkisbiskup til þess að berja niður alla mótspyrnu klerkanna, en það mistókst. Nú hefir verið sjerstök „ríkiskirkju- nefnd" til þess að hafa forustu kirkjumálanna og reyna að na friði, en Kerrl ráðherra hefir skor- að á ríkisbiskupinn að segja af sjer. Hjer er rnynd af Kerrl, tekin á l'undi í Berlín. Myndin er af Ijótu bílslysi á Sjálandi, sem þó ekki kostaði neinn lífið, þvi að bílstjórinn slapp, en í bílnum var — flesk. —■«»isa—8 Til öryggis fyrir bílum í myrkri er ráðlagt að ganga m an vasaklút sjáanlegan, til þess að bílstjórinn veiti eftirtekt. LIDJ YASU heitir maður, sem var kéisari i Abessiníu 1914—16. Er hann sonar- sonur Meneliks annars, keisara og komst til ríkis aðeins 17 ára gam- all. Hefir hann setið í fangelsi i Abessiníu síðan, í bænum Harar. En þegar ítalir fóru að nálgast borgina var hann fluttur suður í land til þess að forða því, að hann kæmist í hendur Ítala, sem vitan- lega hefðu notað hann til þess að (ala máli sínu, því að hann er liat- ursmaður Haile Selassie, eins og bú- ast má við, þár sem keisarinn liefir haldið honum i varðhaldi i 19 ár. Nú segir sagan, að hann hafi látist á þessum síðustu hrakningum, enda var hann mjög farinn að heilsu eftir hina löngu fangelsisvist. Hjer sjest Lidj Yasu i konungsskrúða. ZIGAUNARAÞING í BÚKAREST. Fyrir stuttu var allsherjarþing zigaunara haldið í Bukarest, en zi- gaunarar eru mjög fjölmennir í Rú- nieníu. Margar konur mættu á þingi þessu og höfðu þær skrúðgöngu um horgina. Hjer sjást nokkur andlit úr skrúðgöngunni. NIKOULAS HORTHY heitir einn af sonum Horthy ríkis- stjóra í Ungverjalandi. Hann hefir engan áhuga fyrir stjórhmálum, en mikinn á kvikmyndum og er nú í þann veginn að stofna kvikmynda- i.ielag i Ungverjalandi. Býst hann við að fá hinn fræga leikstjóra Al- éxander Korda, sem einnig er Ung- verji og hefir stjórnað fjölda ágætra mynda, i lið með sjer. í ÍTÖLSKUM SKÓLUM segja kennararnir börnunum dag- lega frá gangi ófriðarins í Abessf iníu og sýna þeim á uppdrættinum hvar ítalir sækja fram í það skiftið: Sennilega er eitthvað minst á hetju- (iáð þjóðarinnar við þau tækifæri.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.