Fálkinn - 11.01.1936, Page 11
FÁLKINN
11
Fjelagið Ingólfur, senr slofnað er
i þeim tilgangi, að safna og gefa út
söguleg skilriki um landnám Ing-
ólfs Arnarsonar, hefir nú gefið úl
l'yrsta rit sitt. En áður hefir það
haldið hjer sýningu á gömlum
Heykja víkurmyndum (í Barnaskól-
anum) og haft skuggamyndasýniug-
ar á samskonar myndum, með skýr-
ingum á þeim.
Þetta fyrsta hefti i safni til sögu
landnáms Ingólfs flytur 128 bls. af
hinni fróðlegu lýsingu Skúla land-
fógeta á Gullbringu og Kjósarsýslu.
Er þar margvíslegan fróðleik að
l'inna um þessar sýslur, eins og þær
voru íyrir nálægt liálfri annari öld,
og furðu ítarleg athugun á ýmsu,
sem ætla mætti að látið væri liggja
milli hluta í slíkri lýsingu, svo sem
dýralífi og náttúrufyrirbærum, t. d.
mismuni flóðs og fjöru á ýmsum
stöðum. Má yfirleitt segja að höí-
undurinn láti sjer ekkert óviðkon;-
andi, jafnvel segir hann til uin, að í
sýrublöndu sje einn hluti sýru
hafður móti 11 af vatni og er það
lil marks um, hve itarlega hann lýs-
ir lifnaðarháttunt fólks.V Er lýsing
]>essi því ótæmandi fróðleiksnáma
um aldarfar og ástæður þess hluta
| jóðarinnar, sem lifði í Guíibringu-
og Kjósarsýslu á þeim tíma, sem
lýsingin f.jallar um.
Sjerlýsingu hinna einstöku sókna
í umdæminu lýkur þar, sem hann
er að byrja að lýsa Reykjavíkur-
sókn, sem þá tatdi aðeins G jarðir,
nfl. Skildinganes, Arnarhóll, Reykja-
vík, Effersey, Sel og Hlíðarhús. ,,Á
þessum (i jörðum búa 8 bændur, að
með töldum kaupmaúninum og for-
stöðumanni fangahússins, 24 hjá-
leigubændur og 59 þurrabúðarmenn
að með töldu starfslólki klæðaverk-
smiðjunnar. AIls verður það 91 fjöl-
skylda. En mannfjöldinn í sókn-
inni var árið 1781: 394 og búfjár-
l'jöldinn sama ár: G9 kýr, 1 kvíga,
1 naut, 2 kálfar, 20 ær, 9 sauðir, 106
hestar, hryssur og ótemjur.“
Um útgerðina segir svo: „Árið
1780 var sjór sóttur um vetrarvertíð
a bátum úr sókninni sjálfri, lOferær-
ingum og 25 tvíæringum. Áhöfn
þeirra var G0 heimamenn, G Austan-
menn, 17 Sunnlendingar og 7 Norð-
lendingar........ Alls nam veiðin
14040 fiskum; verða það 78 skp.
harðfisks".
— — Fjelagið Ingólfur á mikið
og þarft verk fyri'r höndum. Um
framkvæmdir ])ess fer vitanlega
eftir því, hversu margir gerast fje-
lagsmenn. Með sæmilegri þátttöku
almennings í Reykjavik og ná-
grenni ætti fjelagið að verða þess
megnugt, að auka bókaútgáfu sína
frá því sem hún hefir verið í ár,
og væri vel við eigandi, að fólK
streymdi í fjelagið á þessu ári, sem
er 150. ár höfuðstaðarins sem kaup-
staðar. Árgjaldið er aðeins G krónur.
Stjórn fjelagsins er þannig skipuð:
(ieorg Ólafsson bankastjóri (form.).
Gíuðni Jónsson níag. art. ritari.,
Steindór Gunnarsson prentsmiðju-
stjóri gjaldkeri og meðstjórnendur
Matthías Þórðarson fornmenjayör.ð-
ur, Ólafur Lárusson prófessor, Pjel-
ur Halldórssoh borgarstjóri og
Sveinn Jónsson kaupmaður. En for-
maður fulltrúaráðs er dr. Jón Helga-
son biskup.
Forstjórinn (við skrifstofustúlk-
una) — Hafið þjer nokkuð sjerstak-
lega að gera á sunnudagskvöldiö,
ungfrú James?
Nei, jeg er laus. Var það nokk-
uð?
—- Já. Þá ætlaði jeg að biðja y'5-
ur um að gera tilraun til þess, að
koma stundvíslega á mánudagsmorg-
úninn.
DONSK PLUGVJEL FERST.
Flugvjel nr. 84 úr danska sjóhern-
um týndist fyrir skömmu i flug-
ferð. Gerðu flugvjelar leit að henni,
en árangurslaust en loks fundu
sænskir sjómenn hana nokkru fyrir
austan Salthólm. Hafði hún hrapað
en flugmennirnir druknað. Á annári
myndinni sjest flugvjelin og flug-
mennirnir tveir .. lautinant Holger
Petersen (t. v.) og Erling Pries. Á
neðri myndinni er tundurduflaskip-
ið „Quintus" að draga leifarnar af
flugvjelinni inn á þilfarið.
KONUNGURINN Á DÝRAVEIÐUM. þar fer Kristján konungur á veiðar og sjest konungur þar ásamt fylgiliði
Myndin hjer að ofan er tekin í á ári hverju. Er myndin lekin i sínu. Efirtekjan varð niu refir, 28
dýragarðinum við Fredensborg, en hausl, daginn sem veiðarnar hættu rádýr og tveir hjerar.