Fálkinn - 17.10.1936, Síða 2
2
F Á L K I N N
----- GAMLA BÍÓ ---------
Sýnir innan skamms
Upubotið mikla.
(MYTTERI PAA BOUNTY).
Stærsta mynd, sem hefir verið
búin til síSustu 10 árin, tekin af
Metro Goldwyn Mayer undir
stjórn Frank Lloyd, sem stjórn-
aði töku myndanna „Haförnin“
og „Cavalcade“. Aðalhlutverkin
Ieika:
CHARLES LAUGHTON,
CLARK GABLE,
FRANCHOT TONE.
Arið 1787 var gerður út leiðangur
til Tahiti í Kyrrahafi til þess að
sækja þangað brauðvið og ýmisíegt
annað, sem ætlunin var að reyna að
gróðursetja á Vesturheimseyjum.
Leiðangursskipið hjet „Bounty“ en
skipstjórinn hjet William Bligh. Var
hann kunnur sæfari og hafði m. a.
tekið þátt í liinni frægu ferð James
Cooks um suðurhöfin 1772—3. Síð-
ar varð hann herkapteinn og tók
meðal annars þátt í orustunni í
Kaupmannahöfn 1801. — En þessi
leiðangur til Tahiti varð með sögu-
legustu sjóferðum. Því að í ferðinni
gerðu skipverjar uppreisn gegn skip-
stjóranum undir forustu Fletcher
Christian og tóku Bligh skipstjóra og
þá fáu skipverja, sem reyndust hon-
um trúir, settu þá í opin bát og
skildu við þá. „Bounty“ fór til
Tahiti og þaðan til óbygðrar eyju,
sem Pitcairn heitir og eru íbúar
eyjarinnar afkomendur skipverja
þessara.
Þessi raunverulegi atburður var
færður í söguform fyr:r nokkrum
árum af Charles Nordhoff og J. N.
Hall og í fyrra gerði Metro Goldwyn
mynd eftir sögunni. Tekur hún fram
öllum þeim myndum, sem fjelagið
hefir gert á siðustu tíu árum, bæði
hvað stærð snertir og fullkominn
frágang. Enda hefir ekki önnur mynd
hlotið betri aðsókn í Ameríku en
þessi. Henni er helst jafnað við stór-
myndirnar „Ben Hur“ eða „Quo
Vadis““, en þykir þó fara fram úr
þeim. Það er hinn frægi leikstjóri
Frank Lloyd, sem sjeð hefir um töku
þessarar myndar — sami maðurinn
sem tók „Cavalcade" og „Haförninn“.
Og leikendurnir eru ekki valdir af
verri endanum. Þar eru í aðalhlut-
verkunum þessir: Charles Laughton,
sem Bligh skipstjóri, Clark Gable
sem stýrimaðurinn og Franchot Tone
sem ungur hefðarmaður, sem er með
skipinu. Hann er á vegum liins al-
kunna vísindaunnanda sir Joseph
Banks, þess sem kemur svo mjög við
sögu Jörundar hundadagakonungs og
gerði sjálfur út íslandsleiðangur. Er
hann leikinn af Henry Stephenson
Af öðrum leikendum má nefna Her-
bert Mundin, sem margir muna úr
„Cavalcade" og fleiri myndum.
Mestur vandinn hvílir i myndinni
á Charles Laughton. En hann hefir
Asta Norðmann og
Signrðnr Gndmnndsson
voru um eitt skeið vinsælustu dans-
kennarar höfuðstaðarins og hafði
skóli þeirra jafnan mikla aðsókn.
Þessa dansskóla hefir verið saknað í
undanfarin ár, en nú i haust rís hann
upp á ný. Hefir Sigurður Guðmunds-
son dvalið erlendis í sumar, einkum
í Danmörku og Þýskalandi til þess
að kynna sjer síðustu nýjungar í
dansi og nú eru æfingar skólans að
hefjast í Oddfellowhöllinni, en þar
er besta dansgólf bæjarins, að því
er oss er hermt.
Þau frú Ásta og Sigurður kenna
alla venjulega samkvæmisdansa m
auk þess kenna þau ballettdansa og
plastik. Frú Ásta liefir sem kunnugt
er lagt mikla stund á ballett og mun
vera fremst allra íslenskra kvenna i
þeirri grein.
Unga fólkið — og börnin — munu
nota sjer þennan endurvaknaða
skóla. Kennararnir eru bæði svo vel
kynt meðal bæjarbúa, að ekki mun
aðsóknina skorta.
F'immburarnir í Kanada dafna al-
veg ágætlega. í ágústmánuði einum
komu 141.342 gestir til sjúkrahússins,
þar sem þeir búa enn, til þess að
sjá þá. Og langflestir skilja eftir
nokkrar krónur handa móðurinni.
Foreldrarnir eru orðnir vellauðugir
og hver fimmburanna hefir sína
bankabók með mörg þúsund doll-
urum í.
bætt við sig einum stórsigrinum í
þessari mynd. Að vísu er hlutverkið
ekki vel fallið til þess að vekja sam-
úð með persónunni. En list Laugh-
tons er söm þar og í öðrum hlut-
verkum, sem hafa gert hann heims-
frægan. Þessi mynd mun tvímæla-
laust vekja mikla athygli, þegar
hún kemur fram á sjónarsviðið í
GAMLA BÍÓ.
Dagbjartur Einarsson, óðals-
bóndi og útgerðarmaður, Ás-
garði, Grindavík, verður 60 ára
á morgun.
Jón Ásbjörnsson, Njálsgötu 43 A
verður 60 ára 20. þ. m.
Eiríkur Guðmundsson, Byggð-
arenda, Grindavík, varð 65 ára
í gær.
FROSIÍUR JETUR FUGLA.
I Ameriku er til froskategund, sem
nærist ekki aðeins af skordýrum og
allskonar sníglum, heldur lika af
andarungum og kjúklingum, sem þeir
komast í tæri við. Gleypir liann ung-
ana með húð og hári. Þessi froskur
er kallaður uxafroskur og er að jafn-
aði ekki nema 30Ó grömm á þyngd,
en lappirnar á honum eru alt að Ví
metri á lengd. Nafnið hefir hann
fengið af hljóðinu sem hann gefur frá
sjer, og líkist einna mest nautsöskri.
Frosktegund þessi lifir nær ein-
göngu í vatni og veldur miklu tjóni.
Er hún veidd í net og gildrur, af
íbúum þeirra hjeraða, sem hún er hjá,
ekki til þess að hafa gagn af kroppn-
unum heldur til þess að útrýma
þessu skaðræðisdýri.
------ NÝJA BlÓ. ------------
Orlagaleiðin.
(BACK STREET).
Átakanlegur ameríkanskur sjón-
leikur, gerður eftir hinni frægu
sögu , Back Street“ eftir Fannie
Hurst, af Universal Pictures,
undir stjórn John M. Stahl. Að-* 1
alhlutverkin leika:
IRENE DUNNE og
JOHN BOLES.
Mynd þessi fjekk verðlaun fyr-
ir góðan leik og efnismeðferð
enda með afbrigðum góð, að
fegurð og listgildi.
Sýnd um helgina.
Þessi kvikmynd er bygð á skáld-
sögunni „Back Street“ eftir Fannie
Hurst. Er sú saga fræg orðin og
myndin, sem Universal hefir gert
eftir henni undir stjórn John M.
Stahl hefir fengið verðlaun fyrir
góðan frágang og afburða leiklist.
Það er tilgangur myndarinnar að
sýna, hvernig smávægileg atvik geta
orðið til þess að gerbreyta lífsferli
manna hvað tilviljunin getur ein-
att ráðið miklu. Hjer er um ástir að
ræða. Ungur og ríkur maður hittir
stúlku sem heitir Ray Sclimidt
(Irene Dunne) og verða þau þegar
ástfangin hvert af öðru og afráða að
giftast, þó að hann sje trúlofaðui-
annari stúlku. Þau aftala að hittast á
hljómleikum um kvöldið og þar ætl-
ar hann að kynna hana fyrir móður
sinni. En nú vill svo til, að systir
hennar kemur á samri stundu til
hennar, og þarf að fá hana til að
hjálpa sj(?r úr klípu og það verður
til þess að hún kemst ekki á hljóm-
leikana. Ungi maðurinn heldur að
hún hafi gabbað sig og fer á burt í
bræði úr. bænum. Hann giftist svo
stúlkunni, sem hann var heitinn áð-
ur. Svo líða fimm ár. Þá hittast þau
á ný af tilviljun og undir eins bloss-
ar ástin upp á ný. Um löglega sam-
búð þeirra getur ekki orðið að ræða,
en stúlkan segir upp stöðunni og fer
með elskhuga sínum til New York
og gerist hjákona hans. En sú sam-
búð fullnægir henni ekki. Hún á í
sífeldu stríði við sjálfa sig og það
stríð er meistaralega sýnt af Irene
Dunne, svo að leikur hennar gleymist
ekki. Og átakanleg eru lokaatrjði
myndarinnar þegar elskhuginn deyr.
Ög hún er þá orðin skar, sem ekk-
ert er eftir af. Þegar hann er fallinn
frá hefir hún ekkert að lifa fyrir og
hún deyr með mynd elskhuga síns
við brjóst sjer.
Hinn ríka elskhuga leikur John
Boles, sem kunnur er að þvi að geta
túlkað sárar tilfinningar svo, að á-
lirifin verði niikil. Enda er samleikur
beirra Irene Dunne og hans svo til-
þrifamikill og töfrandi, að aðeins fyr
ir hann einan verður þessi mynd
ógleymanleg. þó ekki væri annað.
En myndin er sem heild sannkallað
meistaraverk. Þetta er engin yfir-
borðsmynd heldur djúp saga með
sígildum lífssannindum. Saga lífs-
leiðarinnar verour fyrir örlítið at-
vik sífeld raunasaga, örlögin dimm,
sem hefðu getað orðið björt ef smá-
vægilegt atriði hefði ekki komið
fyrir. Það er gamli sannleikurinn um,
að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi.
„Örlagaleiðin“ verður sýnd um
helgina í NÝJA BÍÓ.
ítalir eru farnir að gefa út blað í
Addis Abeba. Það er sumpart ritað
á ítölsku og sumpart á máli hinna
innfæddu. Blaðið birtir einnig aug-
lýsingar. M. a. sjer maður, að það
kostar 2 lira að láta raka sig, 5 lirá
að skera hárið og 2 lira að láta rak-
ara þvo hárið.