Fálkinn


Fálkinn - 08.05.1937, Blaðsíða 6

Fálkinn - 08.05.1937, Blaðsíða 6
6 F Á L K I N N jp Bstag=B . I °-SKAR BBAATEN: í GÓÐUM FJELAGSSKAP I jj^l || n | | n Q |||. ■■ ■■ ,| # Hún leggur körfuna með bögglunum af sjer í stólinn og liendir sjalinu á rúmið. — Er liann pabbi ykkar ekki kominn enn? spyr hún. — Nú, svarið þið krakkar! En krakkarnir þrír hafa eng- an tima til að svara, þau ryðj- asl á körfuna og bögglana og fara að rífa upp pokana.. -— Iss, af hverju keyptirðu ekki neitt gott, mamma, lijerna er ekkert nema fnatur! — Jeg á dálítið golt í skápnum, en það geymum við þangað til í kvöld! segir mamma. — Bara að liann pabbi ykkar færi nú að koma! — Nei, ]iað var ekki nema sjálfsagt, að hann væri ekki kominn. Það var ekki við því að búast, að liann kæmi heim á sæmilegum tíma, þó það væri afmælisdágurinn hennar! Þo liann hefði lofað því svo statt og stöðugt í morgun! — Klukk- an fjögur kem jeg, Fanny! sagði hann. Og allsgáður eins og prestur, kelli mín! Það hefir aldrei komið fyrir, að jeg hafi smakkað neitt þennaji dag! Hún hafði ekki svarað, liún vildi ekki koma honum í ilt skap. Og' tvún vildi reyna að gleyma þvi sem gerðist í fyrra og svo oft áður. — En vísl var þetta reglulega skítmannlega gert af honum. Hún sem hafði undirbúið alt svo vel. Krakkarnir nýþvegnir og snurfusaðir, maturinn lilbú- inn á hverri stundu, borðið skreytt með hvítum dúk og' blómum, og eldurinn snarkaði í ofninum. En honuni mundi líða enn notalegar ]var sem hann var------með fjelögunum. - En í þetta skifti ætlaði hún ekki að taka þessu þegj- andi. 1 kvöld skyldi hann alla <iaga vera heima hjá konu og börnum. Það var ekki á hverj- um degi, sem hún varð ferlug, það skyldi hún láta hann vita! Ileim skyldi hann, þó hún svo yrði að gera svo lítið úr sjer að sækja liann! Öllu má ofbjóða! Nú verðið þið að vera þæg og ekki snúa öllu á annan end- ann meðan jeg skrepp úl! sagði hún við börnin, og fór í falleg- ustu káp.una og setti á sig hattt- inn. Ekki skyldi hann geta sagt að hún elti bann á röndum eins og flökkukerling. Hann var svo nákvæmur og viðkvæmur í því íilliti, engum er alls varnað. Og þegar hún dubbaði sig upp vissi hún að hún þurfti ekki að líta niður þó hún sæi fólk. Hún bar árin vel, það hafði hann altaf sagt. Og i dag bafði hún meira að segja verið bjá hárgreiðslu- konunni! Iírakkarnir litu ekki einu sinni upp þegar liún fór, hún liafði stungið að þeim pappírs- poka ofan úr hyllu og nú lágu þau í brúgu á gólfinu og slóust um innihaldið. — Klifrið þið umfram alt ekki upp í glugg- ann og i guðanna bænum snert- ið þið ekki eldspíturnar! — Jájá, mamma, við skulum gera það, farðu bara! sögðu krakk- arnir, það var rjett svo að þau gátu talað, þau voru með full- an gúlinn af sykurkúlum. Hún strunsaði göturnar á fieygiferð, staðnæmdist ekki á liornunum í vafa um hvert hún ætti að fara, nei, hún fór beina leið, þangað til hún staðnæmd- ist fyrir utan kaffihúsið með stóru rúðunum. En hvað var nú þetta, Iivað átti þetta að þýða? Hurðin var aflæst og enginn kom til dyra þó hún berði! Ónei, þeir skyldu nú ekki leika á hana, hún sá ljós bak við vinduljöldin, heyrði margar raddir og að glösum var klingt. —- Það er fult hús í kvöld, hugs- aði hún. Þessvegna vilja þeir ekki opna! En ef þeir halda að þeir geti lokað mig úti þá skjátl ast þeim. Jeg fer bakdyrameg- in! Jeg hefi farið þá leiðina fyr. Gætlu nú að þjer Andrjes! Nú kem jeg! Hún þreifaði sig áfram gegn- um koldimt portið að bakdyr- unum, þar brann eitt Ijós á veggnum, hún staðnæmdist við liurð; Trondsen veitingamaður. Privat, stóð þarna á skilti úr fægð-u látúni. — Jú, ætli ekki það! Privat! Ójú, hún vissi hve „privat“ þessi inngangur var, þegar einhver kom eins og þjóf- ur og ætlaði að fá sjer glas eftir iokunartíma! — Hún barði ekki að dyrum, hún gekk beint inn í ganginn og að stóru vængjahurðunum, sem vissu að veitingasalnum. Þar nam hún staðar og snýtti sjer og lagaði á sjer hárið. Bara að hann Andrjes yrði nú ekki svo reiður, að kvöldið færi í hundana! En hún ætlaði að tala blítt við hann og ná honum með sjer með góðu. Og þá mundi hann koma og verða góður drengur. Hann hlaut þó að muna, hvða dagur var í dag! Það er best jeg flýti mjer áður en hann sullar of miklu í sig! — En hvað í ósköpunum var nú þelta, hafði henni skjátlast? Nei, hún >'ar í stóra salnum með steinflísagólfinu og ölaug- lýsingunum á veggjunum og disknum með messings-tappa- vjelinni á öðrum endanum. En bvað var orðið af öllum litlu borðunum og kollustólunum, og livað var orðið af öllum karl- mönnunum i skitnu vinnuföt- unum, sem voru vanir að sitja þarna á kvöldin? Núna stóð þarna aðeins eilt einasla borð, langt borð á miðju gólfi. með hvítum dúk og blómum og' kert- um og glösum og diskum og skeiðiun og göflum úr púra silfri! Og mennirnir sem sátu þarna voru í svörtum fötum með livítar slaufur, og kven- fólk i silkikjólum og stássi. — Nú er jeg alveg hissa, hugsaði hún. Það er best jeg hypji mig út aftur, svo að ekki verði tek- ið eftir mjer! En hún varð nú samt of sein i vöfum, þeir böfðu komið auga á liana þarna við borðið, einn þeirra spralt upp og kom vagg- andi til hennar það var hann Trondsen sjálfur, nú þekti hún hann, þó hún hefði aldrei sjeð hann svona uppdubbaðan áður. Hún ætlaði að skjótast út, en bann var kominn áður en liana varði, hann stakk nef- inu alveg upp i andlitið áhenni, og það lagði af bonum væmna og sykraða lykt. — Hvað eruð þjer að vilja hingað? spurði hann. Hann leit á kápuna og andlitið, skrambi lögulegur kven maður, virkjamikil og föngu- leg, en verkamannskona var hún, hann þekti tegundina, hann var ekki fæddur í gær! — Svarið þjer! sagði hann. Er- uð þjer að leita að einhverjum? Það var orðið hljótt við borðlð, glamraði ekkerl í glösum og diskum, heit og rjóð andlit horfðu forvitin á þöglu konuna við dyrnar. Jeg er að leita að manninum mínum! sagði Fannv liún talaði lágt, það mátti ekki lieyra það fólkið. Jeg hjelt að hann væri hjerna! sagði hún. En mjer hefir skjáltast, þjer afsakið, jeg skal ekki trufla, lofið mjer úl! — Hjerna? Átti maðurinn yð- ar að vera hjerna? — Það var eitthvað ljólt, sem brá fvrir i augum Trondsens, en það bvarf undir eins aftur, hann lagði hendina alúðlega á öxlina á Fanny og kinkaði kolli. Við verðum að reyna að finna liann fyrir yður! sagði liann. — Nei, bíðið þjer við, þjer skiljið víst að þjer fáið ekki að fara undir eins og þjer hafið rekið nefið ið inn úr gættinni! Herrar mínir, á nokkur ykkar þessa konu hjerna? sagði hann og brosti kampakátur til rauðu andlitanna við borðið. Þið verð- ið að koma lijerna og athuga hana betur, bún er víst dálítið óframfærin, jeg fæ bana ekki til að koma í birtuná. — Menn- irnir við borðið stóðu upp, þeir voru beitir og rjóðir eftir allan feita matinn, þeir umkringdu þau tvö úli við dyrnar og gláptu. — Er það nokkur af þessum beiðursmönnum hjerna? spurði Trondsen. — Verið þjer ekki hræddar, segið ])jer bara eins og er. Þessi langa hengilmæna hjerna er Mortensen lorstjóri í Samvinnufjelaginu, hann scgisl vera piparsveinn, en jeg gæti best trúað að bann ljúgi því, jeg' hefi lengi liaft h'ann gnmaðan um að eiga konu einhverslaðar í laumi. — Þessi feita billjard- kúla er Larsen lögreglupjónn, liann telst til yfirvaldanna jg er hirðumaður og hefir kellu sína með sjer, svo varla er það liann. Og þessi snyrtilegi hrokkin- liærði maður er Venásen rakari, liann er líka með konuna, lnin situr þarna, svo jeg vil ekki- seg'ja meira í bili! En takið þjer þann sem yður list, kona góð, bjerna standa þeir kringum yð- ur í röð, allra besta úrvai, lakið þjer utan um hálsinn á þeim sem er maðurinn yðar og látið smella vel í, við hinir getum snúið okkur undan þangað til það versta er afslaðið! Fanny stóð þarna og hvítn- aði af blygðun og reiði, hana klæjaði svo skrítilega í aðra liendina, liana langaði til að láta hana smella á einhverju votu og feitu og dauninum sem lagði að vitum hennar.En hún hafði reiðsl svo oft áður, hún liafði lært að halda sjer í skefj- um, þar hafði hún fengið góðan skóla. —- Já, jeg er að leita að manninum mínum, sagði hún lágt og horfði beinl i augun á Trondsen. Og jeg sje að bann er hjer ekki nájia. En svo mikið veit jeg, að hann hefir setið hjerna á knæpunni yðar kvöld eftir kvöld meðan jeg og börn- in biðu bans lieima! Og svo mikið veit jeg að hann hefir skilið lijer eftir marga krón- una, sem jeg og börnin míii höfðu meiri þörf fyrir en þjer. Þessvegna kom jeg hingað til að gá að honum, því að jeg hjelt að jeg liefði rjett til þess! En nú skal jeg ekki ónáða sam- kvæmið lengur, þokið þjer bara úr vegi fyrir mjer, jeg vil kom- ast út! Þeir litu hvor á annan, allir hálffullu og samkvæmisklæddu karlmennirnir, þeir yptu öxl- um, voru í hálfgerðum vand- ræðum i augnablikinu. Og rjett

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.