Fálkinn


Fálkinn - 08.05.1937, Blaðsíða 15

Fálkinn - 08.05.1937, Blaðsíða 15
F Á L K I N N 15 ÉG HVET ALLA, SEM HAFA CTSLÁTT (EKSEM) til þess að snúa sjer til mín, því að jeg hefi merkileg tíðindi að segja þeim. Hvort heldur burðar- gjald undir svar fylgir brjefi þeirra eða ekki, skal jeg láta þá heyra nánar frá mjer. N. JENSEN, Jydsk Forniklingsanstalt. Frederiksgade 24, Aarhus. Danmark. Stcína duErgarnir ríki í Unguerjalandi. Nýlega komu fulltrúar dverga úr öllum álfum heims saman á fund i Budapest og samþyktu þar að kveðju til alheimsþings með þvi markmiði að koma á fót sjálfstæðri dverganý- lendu i Ungverjalandi, þar sem dvergar frá livaða landi sem er geti tekið sjer bólfestu, og komið sjer fyrir eins og þeim hentar best. Við dvergarnir, segir frömuður þess- arar ráðagerðar, sem heitir Júlíus Gont og er 100 sentimetrar, — krefj- umst þess að fá stað, þar sem við get um lifað í samræmi við það, sem stærð okkar hentar. Hvernig ættum við að geta lifað hamingjusömu lífi, þegar við reynum að samræma lífs- venjur okkar við skökk hlutföll"? Við viljum eignast lítil hús með smá- um stigaþrepum sem við getum geng- ið á, baðker sem við druknum ekki í, lilbúin föt, sem eru mátuleg á okk- ur og dvergaveitingahús þar sem \ið getum jetið dvergamáltiðir fyrir dvergaverð. Þegar við fáum þetla finnum við minna til smæðar okkar en nú. Við viljum eignast um 400 fer- kilómetra af góðu landi og byggjum afkomu okkar á forvitni almennings og mikilli aðsókn skemtiferðamanna. Fjárhagshlið málsins ætlum við að sjá borgið með fje þvi, sem við fá- um f'rá skemtiferðafólki. Við ætlum ekki að sýna okkur fyrir peninga eins og kynbótagripi, og jæssvegnn seljum við ekki inngangseyri. En við krefjumst þess, að allir sem hcim sækja land vort liafi áritað vegabrjef, sem staðfest er af stjórnarvöldum dvergaríkisins. Og áritunin verður ekki ókeypis. llla zr íariö mEÖ kafíiö. Brasiliumenn framleiða mest kaffi allra þjóða í heimi og um eitt skeið var framleiðslan orðin svo mikil, að kaffiverðið fjell ofan i smámuni á erlendum inarkaði. Þá var stofnað kaffisölusamlag undir forustu stjón- arinnar, til þess að halda kaffiverð- inu uppi. Og þegar framleiðslan varð meiri en svo að heimsmarkað- urinn torgaði henni, þá brendi samlagið því, sem umfram var. Það brendi ekki kaffið, eins og við ger- um heldur brendi kaffing — upp td agna. Nú hefir samlagið komið sjer upp nýtisku vjelum til þess að brenna kaffinu — því sem afgangs verður. Þessar vjelar brenna 100.000 sekki af kaffi á dag — eða sem svarar kaffisekk á hvert mannsbarn á (slandi, svo að þetta er ekki smá- ræðis tortíming. Það væri ekki að undra þó einhver gömul og góð kaffikona hjer á landi tárfeldi er hún heyrir um þessa viðurstyggð eyðileggingarinnar. ÞEKKIRÐU LANDIÐ? 6. HVAÐA STAÐUR ER ÞETTA? Þar var rænt. Vefnaðarvö rur. ! ■ 8 Útvega frá Þýskalandi allskonar vefnaðarvörur, smávörur, pappirsvörur, ritföng. — Ennfremrr ■ allskonar járnvörur og búsáhöld o. fl. FRIÐRIK ERTE ■ ■ LSEN í Hafnarstræti 10—12. Sími 2872. fiðalútsölustaðir: VERSL. EGILL JACOBSEN, REYKJAVÍKUR APÓTEK, VERSL. HARALDAR ÁRNASONAR, KAUPFJELAG REYKJAVÍKUR, MARTEINN EINARSSON & CO. AÐALVMBOÐSMENN: Nathan & Olsen Maður einn í London hefir sólL um skilnað við konu sína vegna þess að hún gerir ekkert allan dag- inn nema að stæla Gretu Garbo. .Jeg giftist látlausri og alúðlegri stúlku, segir maðurinn, og þó jeg hafi gaman af að sjá Gretu Garbo á bió þá kæri jeg mig ekki um að hafa stælingu af henni á he'imiiinu. Jeg get fyrirgefið þó að konan min fari og skoði allar inyndir Gretu Garbo, stæli hana i liárliðun og klæðaburði, en síðan hún fór að tala eins og Garbo get jeg ekki þolað hana.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.