Fálkinn


Fálkinn - 16.10.1937, Side 2

Fálkinn - 16.10.1937, Side 2
2 F Á L K I N N -------- GAMLA BÍÓ ------------- „Þú ert mjer alt“. (Du bist mein Gliick). Stórfengleg og fögur þýsk söng- mynd. Aðalhutverkið leikur frægasli söngvari heimsins BENJAMINO G I G L I Aðalhlutverkið í mynd þeirri sem nú er sýnd á Gamla Bió- er leikið af hinum heimsfræga söngvara Benjamino Gigli, sem er talinn fræg- astur allra tenorsöngvara, sem nú eru uppi. Er þetta þriðja kvik- myndin, sem Gigli leikur í, og kent- ur öllum sarnan um ]jað að þetta sje langbesta mynd hans. Auk hans leika og aðrir nafnkunnir söngvarar og söngkonur i myndinni, svo að lijer er óvenjulega gott tækifæri fyr- ir sönglistarvini og aðra til þess að verða góðrar skemtunar og ánægju aðnjótandi, ekki síst þar sent efni myndarinnar er líka injög skemtilegt. En leikurinn fer fram i Genua og Miinchen. Hinn frægi tenórsöngvari Mario Montif Gigli) var fyrst múr- ari, en italski söngkennarinn Carlo Scarpa, veitir athygli hinum ágætu liæfileikum Montis og tekur hann á heimili sitt til kenslu. Það verðui' Jionum lió örlagaríkt, þvi að Bianca, hin unga og fríða kona hans, verður ástfangin af Monti og hann af lienni, og fara svo leikar, að Scarpa rekur Monti burtu, en einn góðan veðurdag Ukur Bianca sig upp og skilur við mann sinn, en fer til Montis. Þau gifta sig og eru hin hamingjusöm- ustu, en það skortir þó á hamingju hennar, að dóttir hennar verður eftir hjá föður sínum, en hún unni h.enni mikið,. Eftir nokkurn tíma frjetti hún, að dóttir sin væri dáin og tók sjer l'erð á hendur til Miinc.hen, en þar hafði Scarpa sest að, til þess að komast eftir þvi, hvar dóttir hennar væri greftruð. Scarpa segir henni ]iá, að dótfir þeirra sje lifandi, og hann hafi gefið hana hjónum nokkr- um, en |)íið fæst hann með engu móti til að segja, hvar lnin sje nið- urkomin og verður Bianca að halda heim við svo búið, þótt henni þyki íeði súrt i brpti. En ])á tekur Monti til sinna ráða og fer til Múnc.hen sjálfur til þess að komast fyrir þa'ð, livar stúlkan sje niður komin. Kemst hnnn þár í ýms ævintýri, en svo fer, að honum tekst að finna hana og færa hana móður hennar, og verður þar heldur fagnafundur. Leikfjelag Reykjavikur: „Þorlúkur þreytti“ Skopleikur i 3 þáttum í staðfærslu hr. Emils Thoroddsen. Aðallilutverk leikið af hr. Haraldi Á. Sigurðssyni Sýning í kvöld (föstudag) kl. 8. Næsta sýning verður sunnudac,- inn 17. þ. m. PROTOS GEISLAOFN SNOTUR OG STERKUR RAFMAGNSOFN Ýmsar stærðir: 500, 750, 1000 watt o.s.frv. SIEMENS Guðmundur Böðvarsson, stór- kaupm., varð 75 ára 12. þ. m. Magnás Jónsson, lyfjafræðingur Freyjug. 10, varð 65 ára 12. j>. m. í NÆSTA BLAÐI FÁLKANS L'irtist grein um Flensborgarskólann i Hafnarfirði, hið veglega nýja skóla- hús, scm vígt var þann 10. þ. m., og um stofnunina sjálfa. Er þar ná risið upp eitt af veglégustu skóla- húsiim landsins á fegursta stað i Firðinum. Þá verður einnig fróðleg grein am tónskáldið frœga Franz Liszl. Sagan í nœsta blaði heitir Loia eftir Arthur Vaughan. Af þeirri sögu má m. a. læra það, að tala varlega um þann, sem maður þekkir ekki. Auk þess birtast ýmsur aðrar greinar til fráðleiks og skemtunar að vanda. Frú Þórey Sigurðardóttir, IJað- arstíg 8, varð 75 ára þ. 9. þ. m. ROBERT TAYLOR, sem sjest hjer á myndinni er einn hinna vinsælustu af yngri kvikmynda- leikurum vestan hafs. Ilann er fyrir skömmu kominii til Englands til þess að leika þar' í kvikmynd og sjest hjer um borð i skipinu „Ber- engaria". Hvað á þetta að þýða, þjónil? Jeg bað um tólf ostrur og hjer eru ekki nerna ellefu. Það var með vilja gert. Jcg hjelt að þið vilduð síður vera Jirettán við borðið. ------- NÝJA BlÓ. ------------ Fósturdóttir vitavarðarins. (Captain January). Fögur og bráðskemtileg amerisk kvikmynd frá Fox. Aðalhlutverk- ið leikur undrabarnið SHIRLEY TEMPLE ásamt skopleikurunum frægu GUY KIBBEE og SLIM SUMMERVILLE Innan skamms verður sýnd bráð- skemtileg, ný Shirley Temple mynd i Nýja Bíó, og þarf svo sem ekki að sökum að spyrja, að þangað kom- isl færri en vilja til þess að sja Sbirley litlu. Efnið í myndinni er i sluttu máli þetta: Janúar uppgjafa skipstjóri er vitavörður. Svo ber við í óveðri einu, að skip fórst nálægl vitanum og komst enginnii af skips- höfninni lifs af nema lítil telpa (ieikin af ShirleyTemple), sem vita- verðinum tókst að bjarga. Sömu- leiðis tókst honum að ná i koffort eitt og vildi svo til, að í því voru föt og munir, sem móðir litlu stúlk- unnar hafði átt. Þar á meðal var i myndaalbúmi heimilisfang eitt, sem benti til þess, hverra inanna litla stúlkan var. En með þvi að Janúar gamli var litt skrifandi og vildi einnig gjarnan hafa telpuna hjá sjer. ])á hirti hann ekki um að skrifa ætt- ingjum hennar. ílentist svo telpan hjá vitaverðinum, og gekk hann henni bæði í föðurstað og móðui og unni henni mikið. Drífur nú margt á dagana í vitanum. Tclpan lærir ýmsa hætti al' sjómönnum, syngur og leikur sjer, æfir sig í því að spýta langt og svo framvegis. En einn góðan veðurdag ber kenslu- konuna ::ð garði, en hún var býsna ströng og afskiptasöm og heimtaði að telpan færi í skóla. Janúar gamli fór nú ásamt öðrum fjelaga sínuni að búa hana undir inntökuprófið, og gerist margt spaugilegt í sam- bandi við það, því að sjálfir voru karlarnir heldur fákunnandi. Hún stenst ])ó prófið. En nú fær Janúar gamli slæmar frjettir. Það á að breyta vitanum hans í rafmagnsvita, og við ])að á hann að missa stöðuna. Hann tekur nú það ráð að skrifa ættingjum telpunnar og var móður- bróðir hennar ræðismaður í Mar- okkó og áhrifamikill maður. Kemur hann nú til hjálþár, því ofan á alt annað hafði kérislukonan ætlað ð svipta Janúar gamla öllum rjetti sín- um yfir telpunni. Sigla þau nú burt með frænda hennar —- og Janúar gamli þarf engar áhyggjur að hafa af stöðumissinum. O ■*«*• O 'Hk O «U*-0 O ■**•• O ■***■ O •’%*■ O •'O*' o -"III. : DrRkkið Egils-öl irO-IU^O-VrO-'IV'O-'W <V0'*'0'HH#«

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.