Fálkinn


Fálkinn - 16.10.1937, Síða 11

Fálkinn - 16.10.1937, Síða 11
F A L K I N N 11 Falleg belti úr sellófan. Hjerna er skemtileg handavinna, sein jeg ætla að kenna ykkur og á- rangurinn verður sá, að þið eignist fallegt belli, en hvort það reynist haldgott að sama skapi skaí jeg ekki ábyrjast. Efnið i beltið er sellófan, sem nú er mikið farið að nota i um- búðir og verður það að vera nokk- uð þykkt. I>ið ráðið hvort þið haf- ið það gagnsætt eða litað. Þið sker- ið sellófanið i stykki, sem eru 10,2 sinnum 9 sentimetrar ( sjá mynd 1) og síðan brjótið þið stykkið sam- an eins og mynd 2 sýnir og þar næst eins og mynd 3 sýnir og er það nú orðið ferfalt. En ekki er ait búið enn, þvi að nú brjótið þið það saman einu sinni enn, eins og sýnt er á mynd 4, svo að nú er það orð- ið áttfalt og ekki nema mjó ræma á breiddina, en þið l'innið sjálfsagt að þyktin er orðin talsverð og styrk- leikinn líka.. Lítið nú á mynd 5, sem sýnir að ræman hefir verið lögð saman um mðjuna, og mynd f> sýnir að endarnir hafa verið beygð- ir inn. Nú er fyrsti liðurinn búinn og nú búið þið til annan lið, alveg eins og þann l'yrri. Þegar tveir liðir eru búnir leggið þið þá saman eins og sýnt er á mynd 7 og eftir því sem liðunum fjölgar lengist beltið i þá áttina sem örvarnar á mynd 8 sýna, ef þið hafið byrjað við A. Þegar beltið er orðið mátulega langt á þann sem ætlar að nota það er sett á það sylgja, eins og sýnt er á mynd 9. Festið sylgjuna vei við beltið og notið lil þess nál og enda. Fanga- og flaggleikur. Þetla er skemtilegur útileikur og þátttakendúrnir gela verið svo marg- ir sem vera vill. Leikvellinum er skift í tvo jafnstóra hluta, með því að strengja snúru yfir hann þveran eða marka linuna m'eð krítarstriki en aftast í hvorum reit er sett upþ flagg og kringum hvort flagg se\ steinar. Þessir steinar eiga að tákna l'anga. Nú á hvor flokkurinn um sig, að reyna eftir megni að verja fangana sína og réyna að ræna föngum and- slöðuflokksins (einum í einu). Þeg- ar leikmaður er kominn á völl and- stæðinganna, er hann eltur alveg eins og í venjulegum skollaleik. Og ef cinliver nær að snerta hann þá er hann orðinn fangi og verður nú að standa kyr bak við flaggstöng ó- vina sinna, og ekki taka neinn þátt i leiknum fyrst um sinn. En takist honum að komasl alla leið að slein- unum án þess að hann sje snertur, ]>á tekur hann einn steininn og get- ur þá gengið óáreittur til sinna manna, því að enginn má snerta hann á leiðinni. Svona er barist um steinana þangað til annar flokk- urinn hefir náð þeim öílum og sið- an er barist um flöggin sjálf, en flaggstengurn.ar mega ekki vera fast- ar í jörðinni. Á sama hátt er bar- ist um lifandi fangana. Takist manm að komast ósnertur framhjá and- slæðingunum og grípa í hendina á fjelaga sínum, þá geta þeir labbað li! sinna manna óáreittir, þvi að enginn má snerta þá. , Ef margir þátttakendur eru í leiknum verður leikvöllurinn að vera nokkuð stór og þá er líka gotl. að annar flokkurinn hafi bindi um handlegginn til auðkennis, svo að misgáningur verði ekki. Leikurinn er úti ]>egar annar flokkurinn hefir fengið bæði flöggin og alla stein- ana 12. Hnetnr sniðuga stráksins. Hjerna kemur sniðugi strákurinn al'tur með nýja reikningsþraut. Hann hefir einhvern veginn komist yfir poka með hnetum og ætlar að skifta þeim á milli fjelaga sinna ]>riggja. Sá elsti af þeim á að fá eina hnot og fjórða hlutann af afgang- inum svo á sá næsti að fá eina hnol og fjórða hlutann af afgang- inum og á sama hátt á sá yngsti að fá eina hnot og fjórða hlutann af afganginum. En gjafarinn sjálfur er svo hæverskur, að hann ætlar sjer að lokum eina hnot og fjórða hlut- ann af afganginum. Skiljið þið? Það kemur á daginn, að sá elsti og yngsti hafa fengið til samans nákvæmlega 10(1 linetum meira en sá næstelsti og gjafarinn sjálfur gelið þið níj reiknað út hve margar hnetur voru eftir i pok- anum eftir að skift var? HÁÐNING: Það hafa alls verið 1021 hnot i pokanum. Elsti dreng- urinn hefir fcngið 256, sá næsti 192 og sá yngsti 144, en sniðugi dreng- urinn sjálfur fjekk 108 við skiftin. Þannig urðu 321 hneta eftir í pok- anulm, eða með öðrum orðum, að hæverski gefandinn fjekk alls 429 hnetur í sinn eigin hlut. Ef þið ráðið þessa reikningsþraul á tíu minútum þá eruð þið dugleg. x- > Þegar þið hafið athugað þessar tvær teikningar vel, ]>á verður ykk- ur sjálfsagt ofur Ijóst, að hjereftir haldið þið altaf bókinni eins og drengurinn á mynd 2 gerir, ef ]>ið viljið forðast að ljósið endurvarpist beint í augun á ykkur. Tóla frænka. Barna- bækur, sem öll börn þnrfa að lesa: Litlir flóttamenn Róbinson Krúsóe Sesselja síðstakkur Röskur drengur Heiða I. og II. Karl litli Kátir krakkar Dýraljóðin Bernskan I. og II. Dýrin tala Má jeg detta? Áfram Skeljar I.—IV. Seytján æfintýri Þrjátíu æfintýri Berðu mig upp til skýja Bæknrnar fásf hjá bóksölum um land alt. ALFONS FYRRUM SPÁNARKON- UNGUIt sjest hjer á myndinni kyssa sonar- dóttur sina Maria del Pilar, sem að- eins er ársgömul. Myndin er tekin i kirkju í Lausanne eftir að brúð- kaup prinsessu Marie Dolores af Bourbon-Orleans, frænku Alfons og pólska prinsins August Czartoryski hafði farið fram. Sigga og Öli hafa fengið kanínur og fylgjast vel með því, sem gerist i l'úrinu þeirra. Einu sinni kom göm- ul frænka i heimsókn í liúsið og lyrsta spurning barnanna til lienn- ar er þessi: Frænka, áttu nokk- urt harn? Nei, svarar frænkan. Og eignast aldrei barn? — Nei, það er vist um það. Oli hnippir i Siggu og hvíslar: Þá er hún áreiðanlega karldýr. Maðurinn minn var sá fyrsti, sem fjekk orðið i veislunni. Og um hvað talaði hann. Hann bað um korktrekkjara. Jeg sagði lionum að hann mætli l.yssa mig einn koss á hvora kinn. Og livað gerði hann? — Hann fór þann gullna meðalveg.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.