Fálkinn - 30.10.1937, Side 2
2
F Á L K I N N
GAMLA BIÓ
Tvö í tunglskini.
Fjörug og fyndin amerisk tai-
mynd gerð samkvæmt gaman-
sögunni „The moon is our
home“ eftir Faith Baldwin.
Aðalhlutverkin leika:
HENRY FONDA og
MARGARET SULLAVAN
(leikkonan úr myndinni „Að-
eins ein nótt —■“
Sýnd hráðlega
„Tvö í tunglsskini“ heitir bráð-
f jörug Paramount mynd, sem GAMLA
BÍÓ sýnir bráðlega. Myndin gerist í
Ameríku. Aðalpersónurnar eru Cher-
ry Chester, fræg leikkona (Ieikin af
Margaret Sullavan) og Anthony Am-
berton, i'rægur rithöfundur (leikinn
af Henry Fonda). Cherry Chester er
ein af vinsælustu og mest dáðu
kvikmyndastjörnum i Hollywood,
en svo dutlungafull og skapmikil.
að fáum tekst að umgangast hana.
hað er því ekki von, að þeim komi
vel saman henni og föðursystur
hennar, sem lifir eftir ströngum
reglum, og þykir þeim þó vænt
hvorri um aðra. Einn góðan veður-
dag fær Cherry símskeyti þess efnis,
að amma hennar, sem á lieima i
New York, sje veik, og hún leggur
því tafarlaust af stað á fund lienn-
ar. Á leiðinni er hún alls staðar
hylt af ungum aðdáöndum, piltum
og stúlkum en i Chicago bregsl
þetta, því að þar verður hún þess
vör, að öll aðdáun fólksins beinist
að ungum rithöfundi, sem einnig
var með i lestinni og orðinn var
frægur fyrir rannsóknarferðir um
ýms lönd og bækur sínar um þær.
Cherry verða þetta mikil vonbrigði,
Qg.hún lokar sig inni í klefa sínum,
án þess að virða hinn fræga keppi-
naut sinn viðlits — og hann lætur
einnig sem hann sjái hana ekki.
Tilviljunin hagar því svo til síðar,
að þau verða samferða i vagni —
án þess að þau viti hvort um sig,
hvert hitt er. Þeim fellur vel livoru
við' annað, og með því að bæði eru
orðin leið á frægðinni og þrá ró
og næði, mæla þau sjer mót í fjalla-
þorpi einu. Þar hittast þau nokkuru
síðar og giftast þar. En samkomu-
higið gengur stirt, og hún yfirgefur
hann. Hann fer til New York og
finnur hana þar loks aftur — og að
lokum trúlofast þau í eiginlegum
skilningi, eftir að hjónabandið hafði
ekki megnað að tengja þau saman.
Myndin er geysifjörug og full af
spaugilegum atvikum, sem ekki er
hægt að komast hjá að lilæja að.
-------- NÝJA BlÓ. -------------
Paradfs
eyðimerkurinnar.
(The Garden of Allah).
Amerísk kvikmynd frá United
Artlst fjelaginu er sýnir fagra
og hugnæma áf.tarsögul sem
gerist að mestu leyti í eyði'-
mörkum Norður-Afríku.
Aðalhlutverkin leika:
CHARLES BOYER og
MARLENE DIETRICH.
Myndin er öll tekin í eðli-
legum litum (Technicolor).
„Paradis eyðimerkurinnar" heitir
mynd sú er NÝJA BÍÓ sýnir á næsl-
unhi. Myndin gerist að mestu leyti i
eyðimörkum Norður-Afríku, en fn-
ið er fögur ástarsaga, og eru aðal-
hlutverkin leikin af liinum vinsælu
leikurum Marlene Dietrich og Char-
les Boyer. Ungfrú Domini (leikin
af Marlene Dietrich) ólst upp í
itölsku nunnuklaustri og eftir dauða
föður síns, sem hún hafði stundað
með dótturlegri nærgætni í mörg
ár, fór hún aftur til klaustursins lil
þess að leita ráða hjá abbadísinni.
Domini er rík, ung og fögur, en þo
er hún ekki ánægð með lífið. Henni
finst hún vera einmana jafnvel i
gleðisölum stórborganna.
Abbadísin ræður henni til að leita
einveru til þess að gleyma sorg
sinni og átta sig á sjálfri sjer.
Domini tekst því ferð á hendur til
Norður-Afríku. í Arabakrá einni
hittir hún ungan mann, sem dregur
sjerstaklega að sjer athygli hennar.
Andlit hans ber þjáninga og alvöru-
svip og Domini fær áhuga fyrir hon-
um. Svo vill til að lil ryskinga
kemur i kránni og hinn ungi mað-
ur bjargar henni heilu og höldnu
út á götuna og fylgir henni heim
að hóteli hennar. A leiðinni hitta
þau spákonu, en þegar hún ætlar
að fara að rekja fortíð liins unga
manns, flýtir liann sjer í burtu.
ar hamingju.
Litlu síðar giflasl þau og setjast að
úti í eyðimörkinni.
Eftir nokkurn tima kemur Anteom
greifi, vinur Domini til þeirra út í
tjald þeirra, og samtalið berst að
hinum fræga líkjör frá Trappist-
kiaustrinu i Norður-Afríku, sem nú
fáist aldrei framar, því að eini
munkurinn, sem kunni að búa hann
tit liafi strokið úr klaustrinu. Dom-
ini verður óttaslegin, hún veit að
Trappist-munkar sverja að lifa i
ævinlegu skirlifi, fátækt og þag-
mælsku. Enn óttaslegnari vcrður
hún, er hún sjer, hver áhrif samtalið
hefir á Boris. Hún kemst að raun
um, að hann er hinn flúni Traþpist-
munkur.------
Hinn fagri og áhrifamiki endir
myndarinnar verður ekki rakinn
hjer nánara.
Japanskir hermenn uppi á þaki byggingar einnar í Shanghai. Þeir hafa
dregið þar fána Japana við hún.
Frá götu i Kaupmannahöfn. Það er nú orðið býsna sjaldgæft, að slíkt
beri fyrir augu á götum borgarinnar.