Fálkinn - 29.01.1938, Síða 9
Rithöfundaráð Norðurlanda hjell
"fvrir skönunu fund í Kaupmanna-
liöfn. Meðal þátttakenda voru Si;j-
rid Unset frá Noregi, Gunnar
Gunnarson fyrir hönd íslenskra
rithöfunda, Thit Jensen og Knud
Bruun-Rasmussen fyrir Danmörku
og VilJielm Moherg og Gurli Hertz-
mahn-Ericson frá Svíþjóð. Iljer
sjást rithöfundarnir að snæðingi og
á borðinu sjást flögg allra Norð-
urlandaþjóðanna. Gunnar Gunnars-
son situr fyrir borðsendanum neðsl
til hægri á myndinni.
,,Nederlaget“ hið síðasta leikrit
hins fræga norska höfundar Nor-
dahl-Griegs er leikið í kgl. leikhús-
inu í Kaupmannahöfn um þessar
mundir og vekur fáidæma athygli.
Þykir leikurinn fá betri meðferð
þar en annarsstaðar sem hann
heflr verið leikinn áður. A mynd-
inni að neðan sjest Paul Reumert
og Clara Pontoppidan í tveimur
hlutverkum.
Belgakonungur var nýlega á ferð
í London ásamt bróður sínum og
var skrafað að hann væri i bón-
orðsför, en það var borið til baka.
Hjer á myndinni að ofan sjest hann
í vagni ásamt Georg Bretakonungi.
9
Landsvigi fór nýlega fram í Kauþ-
mannahöfn í hnefaleik milli Finna
og Dana, og var háð í Forum,
stærsta samkomusal borgarinnar.
Myndin er af keppendunum í
Ijetta-flokki, Aage Jensen frá Dan-
mörku og Walther Sahlström frá
Finnlandi. Finninn beygir sig und-
an vinstrihandarhöggi.