Fálkinn - 28.05.1938, Side 9
Þessir sveinar hjer á myndinni að
ofan eru dags daglega vikadrengir
á ýmsum gistihúsum í London, en
við hátíðleg tækifæri við hirðina eru
þeir fengnir til aðstoðar þar, og
þgkir heldur en ekki upphefð í.
M. a. aðstoðuðu þeir við krýninguna
í fyrra og síðan hafa þeir oft verið
kvaddir í konungshöllina til að-
stoðar.
Það er ekki fátítt, að dansmeyjar
sýni iistir sínar, með lifandi nöðru
hringaða um háls og herðar og þyk-
ir þetta furðulegt. Siður sá að temja
nöðrur er kominn frá Indlandi og
hvergi hefir fólk komist eins langt
í þeirri list og þar. I New York hef-
ir sýnt sig i fjölleikahúsi hópur sá.
sem sjest hjer á myndinni og vakti
hann feikna athygli, því að aldrei
hafði sjest þar jafnstór hópur
nöðrudansara. Dansararnir eru lnd-
íánar en kyrkislöngur nöðrurnar,
sem þeir dansa við.
Myndin hjer að neðan er af Bilbao,
höfuðstaðnum á Norður-Spáni, sem
fjell i hendur uppreisnarmanna í
haust sem leið. Bilbao er ein mesta
verslunarborg Norður-Spánar og
hefir haft mikla fiskverslun, meðal
annars við ísland.
Ukraine er eitt frjósamasta korn-
yrkjuland Rússaveldis og þaðan
kemur m. a. liið fræga hveiti. Land-
búnaðurinn var áður rekinn á ófull-
kominn hátt, en nú hafa nýtísku
landbúnaðarvjelar rutt sjer tit rúms
í Úkraine, eins og sjá má af mynd-
inni t. v.