Fálkinn - 25.06.1938, Síða 1
XI.
Reykjavík, laugardaginn 25. júní 1938.
Lómagnúpuv er eitt hið tignai legasta fjall, sem skerst suður í undirlendið sunnanlands, hár og snarbrattur. Þar eru engin und-
irfell til þess að draga úr athyglinni, og þó að sjálfur Öræfajökull sje þarna á næstu grösum, getur engum sjest yfir Lóma-
gnúp. Sagan segir, að sjaldan sje sama veður austan gnúpsins og vestan og sannast þetta oft enn þann dag í dag. Er Lóma-
gnúpur nær 700 metra hár. Myndin er tekin af Páli Jónssyni skarnt frá Núpstað, sem er austasti bær í Fljótshverfinu og
dregur nafn af fjallinu. Sjest þar yfir Núpsvötnin, eri austan þeirra tekur við Skeiðarársandur alt austur til Öræfa.
LÓMAGNÚPUR