Fálkinn - 25.06.1938, Blaðsíða 8
8
FÁLKINN
„TAILORMADE“ FRAKKI
er áberandi i .kvcntiskunni í vor með
uppstandandi kraga, eins og myndin
sýnir. Talsvcrt stoppað á öxlunum
en þó ekki um of. Takið eftir tösk-
unni, sem er eins og poki í laginu.
1-Iandfangið er þægilegt.
VESTI ÚR SILKI-„PIQUE,
einstaklega þægilegt og fallcgl. Takið
eftir hvernig það er flegið að fram-
an og fest saman með slaufu i háls-
málið.
TELPUKJOLL
úr hvitd mussehni.
með láginn kolli en
Stráhatlurinn er
stóruin börðum.
PRJÓNAÐUR SPORTJAKKI
með sterkum litum, handa ung'ling-
um. Hann er úr bónuillargarni og er
best að nota saman litina inosgræut
og ryðraull, turkis og kanelrautt eða
gult og brúnt.
„FUCHSLITUR* KJÓLL
með fallegum línum í pilsinu og svo
nærskorinn að vaxtarlagið kemur vel
fram.
BOLEROKJÓLL.
Hann er úr þykku brokaði
rósamunstri.
með
NÝTÍSKU SPORTBLÚSA
úr nálarönduðu silki. Takið eftir háls-
bindinu, sem kemur í stað kragans.
Stráhatturinn er með stóru bandi,
sem nær ofan á axlir.
Tíu boðorð norska heilsuverndunar-
fjelagsins.
1. Að fyrirbyggja er auðveldara
en að byggja upp á ný. Marga sjúk-
dóina er hægt að forðast með því
að tifa reglusömu lífi.
2. Lifðu fullkomlega reglusömu
lífi. Farðu á fætur, háttaðu og neyttu
matar þíns á fastákveðnum tíma.
3. Gotl loft er lífsskilyrði. Viðr-
aðu herbergin oft. Sofðu fyrir opn-
um glugga.
4. Baðaðu þig að minsta kosti
einu sinni i vilui og skiftu þá uni
nærföt. Farðu I náttföt, er þú hátt-
ar.
5. Vertu mjög hófsamur í neyslu
tóbaks og víns.
G. Vertu óskiftur við vinnu þína
NÝTÍSKU HÁRLIÐUN.
Hárliðunin hefir verið á reiki upp
á siðkastið, milli „englahárs“ og
„pagehárs". Nú hefir sú gerð sigrað,
sem sjést hjer á myndinni.
þegar þú átt að vinna. En látlu eng-
ar vinnuáhyggjur trufla þig á hvild-
arstundum þínuni.
7. Gakktu þjer til hressirigar eina
klukkustund á dag - helsl i björtu.
8. Burstaðu tennurnar ofl, ekki
sjaldnar en á hverju kvöhli.
9. Þvoðu jijer um hendurnar fyr-
ir hverja máltið. Tygðu matinn vel
Borðaðu hægt.
10. Látlu ekki slæmt skap gera
þjer lífið erfitt. Óánægja og gremja
yfir því, sem ekki vcrður hjá komist
slítur ínanninum mikið og lamar
starfskrafta hans.
Húsráð.
Ef fiskbein stendur í þjer skaltu
eta appelsínu. Appelsínusafinn los-
ar beinið.
— Bitlaus skæri hvetjast við að
klippá með þeim sandpappír.
Gúmmíhanskar, sem eru farnir að
harðna og skorpna verða mjúkir, ef
þeir eru lagðir í blöndu af amtnoní-
aki og vatni.