Fálkinn - 25.06.1938, Page 3
FÁLKINN
3
Mötiö sett í Valhöll á Þingvöíhim.
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
liitstjórar:
Skúli Skúlason.
Sigurjón Guðjónsson.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested.
Aðalskrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Skrifstofa i Osto:
Anton Schjötsgade 14.
BJaðið kexnur út hvern iaugard.
Askriftarverð er kr. 1.50 á mán.,
kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 anra millim.
Herbertsprent.
Skraddaraþankar.
Við öfundum þjóðirnar á megin-
iandi Evrópu af öllum lífsþægind-
um þeirra, af hitanum og af frjó-
sömum aldingörðum og ilmandi
skógum. Þar er paradis á jörðu, en
hjer þykir fátt um unað.
En hvernig stendur þá á því, að
fólkið sunnan úr þessum fögru lönd-
um og vestan úr sælustöðum Banda-
ríkjanna sækist eftir að koma hing-
að og njóta þess, sem það á ekki
kost á heima hjá sjer. Það dáist
miklu meira að fegurð íslands en
við gerum sjáifir. Á útlendum tung-
um hefir það fæðst, mesta lofið,
sem sagt þefir verið um ísland. Og
það eru útlendir skemtiferðamenn
og vísindamenn, sem haldið hafa
nafni íslands á lofti erlendis en
ekki við sjálfir.
Hvað kemur til hvað finsl
þeim eiginlega laðandi við ísland9
spyrja íjienn. Það er nú að vísu
mannlegur eiginleiki að tilbreyting-
fn er heillandi, en þetta er þó ekki
næg skýring. Hitt mun einnig, að
við sjálfir kunnum ekki að meta þá
tegund fegurðar, sem ísland hefir að
bjóða, vegna þess að við höfum
fcngið svo mikið af henni sjálfir.
Það er sama sagan og þegar maður
etur sig Ieiðan á góðum mat. Ýmsir,
sem yfirgefa átthagana um skeið,
inunu eflaust hafa rekið sig á, að
þegar þeir koma þangað aftur eftir
langa útivist veita þeir athygli og
dáðst að ýmsu, sem þeir aldrei
höfðu veitt athygli í ungdæminu.
Eitt af því sem heillar útlendinga
hjer er það, hve landið er litt bygt.
Það birtist í sínum eigin búningi,
en ekki mannanna. Náttúran sýnir
sig svo langs'amlega einvalda. Og ís-
lensk náttúra er að skapast i sífellu,
miklu fremur en náttúra annara
landa. Okkur þykir loftslagið
dutlungafult en útlendingar finna
hjer hreinna loft og heilnæmara en
þeir eiga að venjast, hvort sem þeir
koma úr stórborgunum eða vestan
af prerium Norður-Ameríku. Þeim
finst unaður að anganinni úr jörð-
iuni, sem við veitum varla alhygli
sjálfir. Þeir dáðst að hinum sifeldu
lithreytingum lofts og fjaila, að
kvöldroðanum og norðurljósunum.
Öllu þessu gleymum við sjálf, þvi
að við höfum alist upp við, að láta
okkur þykja það hversdagslegt. En
ef fólk viil opna augun þá er það
ekki hversdagslegt. Öll mannanna
verk eru hjóm og hjegómi í saman-
burði við það. Akropolis er ekki
nærri eins falleg og sólariag í
Reykjavík.
Fyrsta íslenska stúdentamótið
var haldið á Þingvöllum og í
Reykjavík dagana 17. og 18. þ.
m. og annaðist Stúdentafjelag
Reykjavíkur undirbúning þess.
Eilt stúdentamót hefir áður ver-
ið haldið hjer á íslandi. Það
var árið 1930 í sambandi við
Alþingishátíðina og var fyrir öll
Norðurlönd. Mættu á því auk
fjölda íslenskra stúdenta stúd-
entar frá Danmörku, Noregi,
Svíþjóð, Finnlandi og Færeyj-
um. Fór það mót fram með
prýði, svo að erlendir þátttak-
endur töldu okkur íslendingum
vegsauka að.
— Veðrið var ekki beint upp-
örfandi til þátttöku að morgni
þess 17. Hellirigning og storm-
ur. Stúdentar ljetu þetta þó ekki
á sig fá og munu rúmlega 200
stúdentar hafa farið til Þing-
valla. Þegar sest hafði verið inn
í bilana var lagið tekið. Stúdent-
arnir hófust í hærra veldi og ill-
viðrið glevmdist.
„Þótt hann rigni og þótt jég digni.
þá mun lygna siðarmeir“.
Á Þingvöllum.
Til Þingvalla var komið kl.
10 árdegis, og rigndi þar „lif-
andi skelfileg óltaleg ósköp“
og hjelst allan daginn, svo lnmdi
var ekki útsigandi hvað þá
manni. Og verður þvi ekki ann-
að sagt en Þingvellir lóku
kuldalega á móti stúdentunum.
Formaður Stúdentafjelags
Reykjavíkur, Sigurður Ólason
lögfræðingur, setti mótið með
nokkrum orðum og lýsli til-
drögum |)ess og verkefnum, er
fvrir lægju. Hvatti hann stúd-
enta lil að þess vera á verði
um áhugamál sin.
Forseti mótsins var kosinn
prófessor Alexander Jóhannes-
son, en varaforseti Sigurður
Ólason. Ritarar voru Lárus
Blöndal og Sigurður Grímsson.
Forseti talaði síðan nokkur
orð, en gaf þvi næst Sigurði
Eggerz bæjarfógeta orðið, er
mælti fyrir minni Islands. Mun
Sig. Eggerz hafa átt hugmynd-
ina að þessu rnóti. Komst liann
í ræðu sinni nokkuð inn á sam-
bandsinái íslands og Danmerk-
ur. Talaði liann af guðmóði og
heitri ættjarðarást sem hans er
vandi.
Þjóðsöngurinn var þvínæst
sunginn.
Þá lók til máls prófessor Ól-
afur Lárusson og talaði um
Ilagsmunamál stúdenta. Mint-
ist hann í þvi sambandi á hina
öru stúdentafjölgun, sem væri
að verða ískyggileg.
Var nú matarhlje. Undir borð-
um sungu þeir Glunta Árni frá
Múla og Pjetur Jónsson, og
stjórnuðu þeir almenna söngn-
um meðan setið var að borðum.
Er borð höfðu verið rudd
hófst fundur af nýju. Prófessor
Alexander flutti erindi: Háskól-
inn og framtð hans. Mintist
hann Jóns Sigurðssonar og
hvernig þjóðskólahugmvnd lians
hefði orðið hinn fyrsti visir lil
háskóla vors. Prófessorinn benli
og á hina miklu þýðingu þess
að háskólinn fengi að ráða sín-
um málum og um leið að vel
væri búið að háskólakennurum
og stúdentum.
Næst flutti Ludvig Guðmunds
son skólastjóri frá Isafirði er-
indi: Skólamál. „Markmið skól-
anna á að vera“, sagði Ludvig,
„að skapa dugandi og nýta
menn. Við eigum að efla
andlega og líkamlega hreysti,
aga í hugsun og framkvæmd-
um“. Ludvig talaði um vinnu-
skóla og þakkaði Björgvin fyrv.
sýslumanni er þarna var stadd-
ur fyrir tillögur lians í þessu
efni. „Þjóðin þarf að glæða
með sjer ásl á starfi og vinnu,
svo að hún sje fær um að taka
upp baráttuna við íslensk lífs-
kjör“.
Síðasta erindi mótsins flutti
Ragnar Jóhannesson stud. mag.
Fjelagsmál studenta.
Að loknum öllum erindum
voru kosnar nefndir til þess að
undirbúa og leggja fram tillög-
ur í málum þeim, er erindin
höfðu fjallað um. Skiluðu þær
áliti daginn eftir.
Við kvöldverðinn voru marg-
ar ræður og kvæði flutt, en á
milli voru sungnir stúdenta
söngvar.
Algengir stúdentasöngvar svo
sem „Gaudeamus igitur“ og
„Sjung om studentens lvckliga
dag“ skiftusl á við íslenka ætl-
jarðarsöngva. — Nýhökuðu
stúdentarnir voru hvltir þarna
ineð ræðu og húrralirópum. Það
vakti ekki litla athygli meðai
eldri stúdenta að af nýju stúd-
entunum frá Reykjavikur menta-
skóla, sem voru 42 að tölu, voru
19 slúlkur.
Nestor islenskra stúdenta, Ind-
riði Einarsson rithöfundur, var
mættur á Þingvöllum. Er hann
nú 87 ára að aldri. Það er ó-
hætt að fullyrða að engum var
fagnað svo vel sem honum.
Framhalct á hls. 1'i.