Fálkinn


Fálkinn - 10.09.1938, Blaðsíða 4

Fálkinn - 10.09.1938, Blaðsíða 4
4 F Á L K I N N Fyrsti hvíti maður- inn sem kyntist Aust- ur-Asíu var Marco- Polo, aðalborni kaup mannssonurinn frá Feneyjum, sem hlaut viðurnefnið ,Millione‘ sakir þess að hann talaði altaf um milj- ónir þegar hann sagði frá auðæfum Austurlanda. 1 þess- ari grein segir frá ferðum Marco Polo Kublai khan, mongóla- keisarinn, sem rjeS yf- ir allri Asíu; (teikn- ing). "jyrARCO POLO er einn þeirra frægu manna sögunnar, sem flestir hafa heyrt gelið um, en fáir kunna nánari deili á. Menn setja nafn hans í sam- band við merkilegar landkönn- unarferðir, en muna óljóst hvert liann ferðaðist. Og hvenær var maðurinn uppi og hvaðan var hann? — — Við skulum svara síðustu spurningunni fyrst. Marco Polo var Feneyjabúi og ólst upp í hinu glæsta kaupmannalýðveldi við Adríahaf, er það stóð sem hæst að auð og völdum eftir krossferðirnar. Hann fæddist árið 1254 og var af ætt kaup- manna, sem fengið höfðu aðals- tign og átt eitt af mestu versl- unarfyrirtækjum borgarinnar í nokkur hundruð ár. Rjett eftir að Marco fæddist höfðu þeir lagt í kaupferð faðir hans og föðurbróðir. Fyrstu sex árin höfðu þeir dvalið í Tyrklandi og skrifað heim að jafnaði en eftir að þeir fóru frá Mikla- garði austur á bóginn hætti að heyrast frá þeim. Fólk hjelt þá dauða, og það var ekki nema Marco einn, sem trúði því fast- lega, að þeir kæmi fram aftur. Vissulega hefir Marco oft skimað eftir skipi föður síns, þegar hann ljek sjer sem barn hjá stórverslunum og birgða- húsunum við Canale Grande, en þar höfnuðu kaupskipin sig er þau komu úr langfei’ðum, hlaðin verðmætum flutningi. Og svo var það einn dagimx árið 1269, að undrið skeði, sem fæsl- ir voru hættir að trúa á: Á land stigu tveir sólbrendir og úti- teknir menn í hinum undursam- legustu klæðuixx — Nicolo og Maffeo Polo voru komnir lieinx aftur eftir fiixxtán ára útivist. ■— Enginn lxlýdxli nxeð xxieiri efl- irtekt á þá kynlegu ferðasögu, sem þeir höfðu að segja, en Marco. Þeir liöfðu siglt frá Miklagarði yfir Svartahaf tii Soldaia á Krímskaga, til þess að leita að nýjuni vörum og verslunarleiðum í ókunnum löndum, og haft nxeð sjer safxx dýrixxætra gimsteina, sem þeir afhentu khaninunx þar, sem var einn af ljensfurstum liins vold- uga mongólakeisara eða „stór- khans,“ drotnanda nálega allrar Asíu og Austur-Evrópu, og fexxgið gjafir í staðinn, miklu verðmætari. Svo höfðu þeir fax-ið um Suður-Rússland til Turkestan og vei’ið þrjú ár í Bokhara og hitt þar sendimann stór-kliansins, sem hauð þeinx með sjer í lieimsókn til lians, en hapn var þá búsettur lengst austur í Kina og hafði gert Pek- ing að liöfuðborg sinni og hjelt þar glæsilega liirð. Þeir tóku boðinu og voru ár á leiðinni austur. Keisarinn, Kublai Klian, tók þeim með mestu virktum og er þeir liöfðu ílvalið við liirð- ina eitt ár fól Kublai Klian þeinx að fara á fund páfans í umboði sínu og biðja hann að senda sjer hundrað ki’istniboða og vísindamenn til þess að fræða Asíubúa um framfarir Evi’ópu. Og nú voru þeir loks komnir heim, eftir þriggja ára erfiða ferð. En það vildi svo til að páfinn var dauður og kardínál- arnir gátu ekki komið sjer sam- an unx eftirmanninn, svo að tvö ár liðu án þess að nýr páfi kæmi. Leiddist þeim Polo- hræðrunx biðin. Þeir vildu ekki láta Kublai klian, sem hafði reynst þeinx svo vel, lialda, að þeir liefðu svikist unx erindi sitt og ákváðu því að fara á ný austur, til þess að tilkynna hon- um, hvernig í öllu lægi. — Mar- co brann í skinninu að fá að fara nxeð þeim og kynnast liirð Kublai klian og fjekk loks að fax-a þó ekki væri hann nema 17 ára. Haustið 1271 lögðu þrir af stað á skipi, sem flutti þá til Akka á Sýrlandi. í Jerúsalenx fengu þeir viðsmjör úr lanxpa þeim, sem logar á gröf Krists; liafði Kublai khan beðið þá um að færa sjer hana. Rjett á eftir var Tebaldo legáti í Sýrlandi kjörinn páfi og fjekk liann þeim brjef og gjafir til Kublai klian og tvo munka, sem gátu komið fram í umboði páfans. Munkar þessir sneru aftur á miðri leið, því að þeim leist ekki á fei’ðalagið. En Polo-fi'ændur hjeldu á- franx ferðinni austur að Pei’sa- llóa og þaðan um Pamír og Gobi-eyðinxöi’k, uns þeir kom- ust til Peking. Þessa leið fór enginn hvítur maður síðar, fyr en eftir 600 ár, að Sven Hedin kannaði þær slóðir. Keisarinn tók á nxóti þeirn í sumarhöll sinni við Peking. Var móttöku- athöfnin hin veglegasta og fjöldi af ljensherrunx Kublai klian viðstaddur, segir Marco. Þegar þeir gestirnir nálguðust keisarann fleygðu þeir sjer flöt- um á gólfið. Sagði liann þeim að standa upp og segja sjer ferðasöguna. Intu þeir nú alt af ljetta og keisarinn hlýddi á. Svo lögðu þeir fram brjef og gjafir páfans, og er liann hafði lesið brjefið lofaði hann mjög trúnað og ástundun sendimann- anna. Loks tók bann við við- smjörinu og mælti svo um, að það skyldi geymt vandlega. Hann tók eftir Marco og spurði deili á honum. Nicolo sagði hann vera son sinn og þjón lxans hátignar. Keisarinn veitti lionunx sjerstaka unxsjá og skip- aði hann heiðursvörð sinn. Marco lærði brátt tungxi og siði mongóla, æðri sem Iægri. Fól lceisarinn honum ýms trún- aðarstörf og hækkaði liann i metuni og var sendur í áríð- andi erindarekstur til fjarlæg- ustu staða í ríkinu, meðal ann- |i ars alla leið suður i Austur- Indland. Ilann varð þess var, < að keisaranum þótti mikils um vert, að fá sem glegstar lýsingar fjarlægra þjóða og staða, og gerði sjer ]xví far unx, að safna sem mestuni upplýsingum á fei’ðunx sínum. Nú dvöldu Feneyingarnir þrír mörg ár þarna við liirðina og konx aldrei snurða á þráðinn milli þeirra og keisarans, en vinátta þeirra vai’ð æ meiri. En þó þeim liði vel og þeir fengi álit, völd og óhenxju auð, gei’ð- ist heimþráin rik í þeim. Kublai khan var líka orðinn aldurhnig- inn og átti varla langt eftir og Feneyingarnir vissu ekki liver af sonum lians nxundi taka við ríkinu. Þeir áttu ekki víst, að nýi keisarinn ju’ði þeim eins liollur og sá gamli og því síður livort hann mundi sjá þeim fyrir nægri aðstoð til að kom- ast til lxaka óskemdir. Þeir fundu, að Kublai klian var nauðugt að veita þeinx heim fararleyfi en einn daginn þegar sjerstaldega vel lá á keisaran- um fleygði Nicolo Polo sjer fyr- ir fætur lians og grátbændi hann um að veila þeim lieimfarar- leyfi, vegna fjölskyldna þeii’ra, ' sem nú liefðu verið án þeiri’a í 17 ár. En Kublai klian, sem eigi að- eins liafði mætur á gestum sín- unx lieldur jafnframt mikið gagn af þeim, sjerstaklega af Marco, sárnuðu ]xessi tilmæli, spurði hvort þeir væru ekki á- nægðir og hversvegna þeim dytti í hug að leggja sig í þær hættui’, sem lieimförinni væri samfara og sem gæti kostað þá lífið. Ef þeir vildu auðgast meira, sagði keisarinn, skyldu þeir láta hann vita og skyldi liann þá tvöfalda aleigu þeirra og veita þeim öll þau metoi’ð, senx þeir kynnu að óska. En

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.