Fálkinn - 26.11.1938, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
Þjóðverjar eru farnir að leggja
stund á hvalveiðar síðustu árin og
ætla að veiða svo mikið af hval, að
þeir þurfi ekki að vera upp á aðra
komnir um kaup á hvalhjsi og síld-
arlýsi. Hafa þeir meðal annars
smíðað stærstu fljótandi verksmiðju
sem iil er í heimi, 30 þúsund tonna
skip. Myndin hjerna til hægri er
tekin um horð á þýsku hvalveiða-
skipi og sýnir kjaftabein úr hval,
sem var 30 metra langur. Kjafta-
beinið er röskir þrír metrar á lengd.
Þessar tvær systur eru tvíburar og
heita Rosemary og Lolalane. Tóku
þær þátt í fegurðarsamkepni í
Hollywood í vor og vöktu einkum
athygli fyrir hve líkar þær voru.
Eitt kvikmyndafjelagið rjeð þær
óðar til sín fyrir hátt kaup. Sjá
myndina að neðan.
Á Terminal Island við Los Angeles
hcfir nýlega verið bygt stóreflis
tugthús, sem kostaði 5>/2 miljón
króna. Á myndinni að ofan til
vinstri sjest einn varðmannsturn-
inn í fangelsinu, en þeir eru þrír
alls.
Frægustu kvikmyndaleikararnir eru
oft viðstaddir frumsýningar á kvik-
myndum í Hollywood. Á myndinni
hjer að ofan sjást Janet Gaynor og
Tyrone Power vera að fara í bíó.
Svisslendingar halda svonefndar
vorhátíðir og eru þær af gömlum
uppruna. Er snjókarl bræddur á
báli, en riddarar með lensur ríða
kringum bálið á meðan. Sjá mynd-
ina til vinstri.