Fálkinn - 12.05.1939, Blaðsíða 7
F Á L K 1 N N
7
Dýragarðurinn í Kaupmannahöfn
hefir tiýlega fengið þrjá gíraffa
snnnan frá Þýskalandi og eru þeir
helsta umtalsefni Hafnarbúa um
þessar mundir og aðsákn að dýra-
garðinum meiri en nokkru sinni fyr.
Og frægð þeirra hefir borist til Sví-
þjóðar. Svíar eru vanir að fjöl-
menna til Hafnar á boðunardag
Maríu og.nána seinast komu 10.000.
Af þeim skoðuðu 2.600 gíraffana, en
32 komu á Thorvaldsenssafnið.
Maðurinn hjer að neðan er Tiso
prestur, forseti Slovakíu, sem varð
lil þess, að Slóvakía og Tjekkía
mistu sjádfstæði sitt. Skaut hann
deilumálum sínum við Tjekka til
Hitlers, sem vitanlega notaði tæki-
færið til þess að láta greipar sópa
um hið sundraða ríki.
Myndin hjer að ofan er frá Brati-
slava, sem var miðstöð sundrungar-
hreyfingarinnar í Slovakíu í vor.
Sjásl fremst á myndinni menn úr
Hlinkahersveitinni, sem bljes mjög
að kolunum og knúði fram, að Slo-
vakar segðu sig úr lögum við
Tjekka.. Stórhýsið á myndinni er
stjórnarráðshúsið, sem jafnframt er
þinghús Slovakíu. 1 baksýn sjest
brúin yfir Doná og var öll umferð
bönnuð um hana meðan ó.eirðirnar
voru í Slovakíu.
Myndin til vinstri sýnir kardinálana
sem líklegastir þóttu til páfatignar
áður en kosningin fór fram. 1 efri
röð eru (taldir frá vinstri) kardín-
álarnir: Schuster, Massimi, Della
Costa, Pacelli (Píus 12.) og Fuma-
soni-Biondini. En í neðri röð: Mar-
chetti-Selvaggiani, Tedechini, Nas-
alli-Rocca, Salotti og Maglioni, sem
nú er, orðinn „utanríkismálaráð-
herra“ hins nýja páfa.