Fálkinn - 08.03.1940, Blaðsíða 15
F Á L K I N N
15
Árni Björnsson.
Karl O. Runólfsson.
Nýjar íslenskar tónsmíðar
12. jnars n. k. fara fram eftirtekt-
arverðir hljómleikar í Gamla Bió.
har flytur Hljómsveit Reykjavíkur
ný tónverk eftir tvö íslensk tón-
skáld, þá Karl O. Runólfsson og
Árna tíjörnsson. Verkin eru: Is-
iensk svíta eftir Árna og önnur
svíta eftir Karl, sem nefnist ,,Á
krossgötum".
Þessir hljómleikar eru að þvi leyti
athyglisverðir, aS þetta er í fyrsta
sinn, sem hér eru Jeikin eingöngu
íslensk tónverk af stórri hljómsveit.
Fálkinn hefir þvi snúið sjer til
hljómsveitarstjórans dr. Urbant-
scliitscli og fengið upplýsingar um
hljómleikana.
„Jeg hlakka til þessara liljómieika
og mjer er mikil ánægja að starfa
að flutningi þessara tveggja nýju
lónsmíða“, segir dr. Urbantschitsch.
„íslenska svítan ‘eftir Árna Björns-
son er samin fyrir stóra hljómsveit,
en er í fjórum köflum yfir gönnd
islensk lög i frjálsum, nútíma liljóm-
búningi. Sjerstaklega vil jeg vekja
athygli á öSrum kaflanum „Noc-
turne“, sem er stærsti kafli svít-
unnar. SömuleiSis vil jeg nefna
„Rímnascherzo“, í nýju mjög skemti-
legu íslensku formi.
Karl Runólfson notar í verlci sínu
eigin temu, en þó er heilt stykki
efalaust hreint íslenskt efni. Hann
reynir yfirleitt aS sýna, hvernig
tónlistin hjer á landi stendur á
krossgötum ýmislegra stíltegunda“.
„Þess er að vænta“, segir dr.
Urbantscitsch að lokum, „að reyk-
vískir tónlistarvinir taki þessum
nýju tónverkum vel. Þær eiga það
báðar skilið og sömuleiðis höfund-
ar þeirra."
Árni Björnsson kom hingað til
bæjarins 1928 og hóf þá organista-
nám hjá Páli ísólfssyni. Hann gekk
síðar i Tónlistaskólann og tók brott-
fararpróf í píanóleik 1935. Jáfnframt
námj vann liann fyrir sjer með
hljóðfæraleik á skemtisamkomum og
svo nótnaskrifum. Hann hefir og
nokluið fengist við tónsmíðar og er
þessi svíta, sem nú verður flutt,
árangur þeirrar starfsemi.
Karl (). Runólfsson er löngu orð-
inn þektur sem tónskáld og liggur
mikið af lögum eftir hann, bæði fyr-
i: einsöng, kóra og hljómsveit.
,,Á krossgötum“ er íslensk nú-
timahljómlist, skáldskapur og hug-
arflug sett frarn með tækni islensks
nútimatónskálds.
Án efa biða margir þessara hljóm-
leika með eftirvæntingu. Auk Hljóm-
sveitar Reykjavikur, sem flytur verk-
in, syngur karlakórinn „Kátir fje-
lagar“ á hljómleiknum íslensk kór-
lög.
VIÐ SIEGFRED-LÍNUNA.
ÚR STRÍÐINU.
Þýskir hermenn að setja upp
gaddavírsgirðingar við Siegfried-
línuna, lil þes's að Frakkar gerisl
ekki of nærgöngulir.
Svona líta sprengjurnar út, sem
þýsku flugvjelarnar hafa. Á mynd-
inni er verið að koma sprengjunum
fyrir neðan i flugvjelina.
Jóu Þorvarðarson, kaupm., varð
fimtugur 7. þ. m.
Voltaire í Englandi.
Spekingurinn Voltaire kom til
Englands árið 1727. Þá var fjand-
skapur mikill i Englandi í garð
Frakka og þegar fólk vissi að Volt-
aire var franskur, hópaðist það
kringum hann og lirópaði: Þetta er
Frakki. Við skulum drepa hann!
Voltaire reyndi að halda áfram
ferð sinni, en þegar Jsað reyndist
ókleift staðnæmdist hann og hrópaði:
Gentlemen! Þið viljið hengja
mig af því að jeg er franskur. En
finst ykkur ekki að örlögin hafi leik-
ið mig nógu grimmilega, er |)au
gerðu ekki úr mjer Englending!
Tilsvarið þótti svo gott, að fólkið
skellihló, og það inunaði minstu, að
Voltaire va‘ri borinn í gullstól.
Ý Alll ineð islenskum skrpum1
Skíðafólk
Það er nauðsynlegt að hafa
með sjer hið nýja mýkjandi
Rósól-cream
(í bláum dósum). Það ver
húðina fyrir sólbruna og ó-
þægindum af regni, stormi
og kulda. Berið
Rósól-cream
á andlitið áður en farið er í
skíðagöngu og nuddið þvi vel
inn i húðina, svo að hún
verði fallega brún og útlitið
hraustlegt.
Þannig
lítur
RÓSÓL-
CREAM
dósin út
Happdrætti
Háskóla íslands
Piú eru aÖEins eftir
Z söludagar í 1. flakki.
5000
vinningar
1050000 kr.
Látifl gkki happ úr hendi sleppa