Fálkinn - 19.04.1940, Blaðsíða 7
F Á L K I N N
7
750 mcinnx af dhöfnum „Ajax“ og „Exeter", ensku herskiparuia,
sem kljáðust við „Graf von Spee", gengu nýlega sigurgöngu
um London City til Guild Hall. Þar hjeldu konungurinn og
Lundúnaborg þeim veislu. Konungurinn úthlutaði þar heiðurs-
merkjum til þeirra og sjest sú athöfn hjer á myndinni, efst t. h.
Að ofan t. v.: í þjáðleikhúsinu í Stockhólmi, var lxaldin sýning
til ágóða fyrir Finnland. Þar talaði Wilhelm Svíaprins.
T. h.: Rússneskir flugmenn þyrmdu engu í finsk-rússneska
stríðinu. Hjer sjest t. d. sjúkrahús, sem skotið var á úr flug-
vjelum, enda þótt merki rauða krosins væri málað á þakið.
Á myndinni að neðan t. h. sjást þrír þýskir flugmenn, sem
sloppið hafa heilir á húfi i'ir hættuför til Englandsstranda. Þeir
hvíta sig stutla stund og leggja svo enn af stað í aðra svaðil-
för, út í hættur og tvísýnu.
Að neðan t. v.: Þetta er Kermit Roosevelt, náfrændi forsetans.
Hann var ofursti í enska hernum, en gerðist svo sjálfboðaliði
í finska hernum og foringi sjálfboðaliðasveitar.