Fálkinn - 19.04.1940, Side 11
F Á L K 1 N N
II
Utsæðisval
Sæll og blessaður, og þakka
þjer fyrir ráðleggingarnar síðast, en
jeg er ekki búinn að fræðast nóg
enn, nú vill konan endilega, að jeg
taki eitt af stykkjunum í Kringlu-
mýri á leigu og setji kartöflur þar.
— Já; blessaður spurðu meðan jeg
get svárað. Það er alveg sjálfsagt
fyrir þig að fá þjer einn af leigu-
görðunum, þú liefir ekki nema gott
af þvi að labba þangað inn eftir á
kvöldin og dunda þar í 1—2 tíma.
En hefii' þú sjeð þjer fyrir þvi sem
með þarf?
— Nei, blessaður vertu, hvað þarf
jeg að fá mjer?
—- f fyrsta lagi þarftu að festa
þér stykkið, svo þarft þú að útvega
þjer þetta: hæfilega mikið af góðu
og ósýlctu liarðfengu útsæði, kassa tii
að iáta útsæðið spíra í, sjá þjer út
stað fyrir spírunarkassana, útvega
þjer áburð, húsdýra eða verksmiðju-
áburð, helst helming af hvoru.
Jeg liefi elckert af þessu, en get
jeg ekki keypt kartöflur hjá Silla og
Vaida eða í Kron og notað það sem
útsæði?
— Nei, ekki nema að það sje sjer-
staklega valið útsæði, venjulegar
matarkartöflur eru of stórar til út-
sæðis. Útsæði getur þú fengið hjá
Grænmetisverslun ríkisins, eða hjá
einhverjum kartöfluræktunarmanni.
sem þú hefir fengið upplýsingar um,
að hafi gott matarafbrigði iaust við
sýkingar.
Hvaða afbrigði eru best?
Sem matarkartöflum mæli jcg
með isl.rauðum, Guilauga, Akurbless-
un og Alpha. Bragðgæðin eru best
lijá þeirri fyrst töldu og svo áfram,
en afköstin i öfugri röð, en alt eru
þetta 1. fl. afbrigði til heimiiisnotk-
unar.
— Stærðin, er ekki alveg sama
hvaða stærð er á útsæðinu?
— Nei, útsæði á að velja eftir eft-
irfarandi reglu:
1. 50—60 gr. stórt.
2. Mörg augu.
3. Ósýkt.
4. Sjúkdómssterkt.
5. Hafa ekki spírað í vetrargeymsl-
unni.
Alt er þetta fljótlegt að sjá eftir
nokkra æfingu.
Hvernig eiga þessir kassar að
vera, sem kartöflurnar eru tátnar
spíra í?
— Ekki dýpri en ca. 10 cm., og
hæfilegir um sig eru þeir 35—40 cm.
breiðir og 55—70 cm. langir, og
botninn á ekki að vera heill (þjettur)
heldur með rauf á milli fjalanna,
bæði á miðju og út við hliðarnar,
raufin má þó ekki vera svo stór, að
útsæðið detti niður úr kassanum.
Ef þú getur náð í kassa, sem er ca.
20 cm. djúpir, skaltu negla tok yfir
hann og síðan saga hann í sundur
eftir miðjum hæðarfjölunum alt í
kring, þannig færðu 2 ágætis út-
sæðiskassa úr einum kassa. Vana-
legast er látið 8—10 kg. útsæði i
kassann, taki þeir meira verða þeir
óhentugir við niðursetninguna, og
það spírar líka ver i þeim.
— Útsæðiskassana getur þú látið
niður í miðstöðvarherbergið hjá
þjer, þó þannig að þeir njóti sem
best birtunnar frá glugganum. Gættu
þess vel, að snúa kössunum við og
við, þegar spirurnar byrja að sjást,
þannig að sú hlið kassans, sem
snjeri frá birtunni, snúi að birtunni
á eftir, spirurnar verða jafnari í
kassanum og ekki eins langar. Þú
verður að fylgjast vel með spírun-
inni, og ef þú sjerð að þær ætta að
verða hvítar, verður þú undir eins
að koma kössunum á einhvern stað
þar sem meiri birta er. Það er oft
ágætt að sletta vatni af hendi við
og við yfir útsæðiskassana, ef út-
sæðið virðist ætla að þorna of mik-
iö.
— Jeg hefi heyrt s'uma tala um,
að gott sje að nota stórt útsæði og
skera það i simdujr um leið og sett
er niður, og að undan stíku útsæði
komi lítið smælki.
—• Eftir því, sem jeg best veit, hef-
ir stórt útsæði aldrei sýnt þessa yf-
irburði i tilraunum nágrannaþjóð-
anna, en hjer á landi hafa aldrei
verið gerðar tilraunir með útsæðis-
stærð. Mín persónulega meining og
reynsla er, að stórt útsæði sje verra
en 50—60 gr. útsæði og þar að auki
um þrefalt dýrara, vegna þess hve
ódrjúgt það er. Spírurnar eiga ekki
að verða lengri en 2—3 cm. og með
hinum einkennandi lit afbrigðisins.
Sjaldan eða aldrei, hefir riðið eins
mikið á og nú að val úlsæðis sé
vandað, hvað sýkingu snertir. Nú cr
áburðarskortur i landinu og það litla
magn sem til er, er með geypi verði.
Jeg tel meira um vert, að fá 7—8
poka fyrir hvern einn, og að það
sje heilbrigt, sem maður setur í
geyinsluna að hausti, en að fá 10—14
poka fyrir livern einn, af meira eða
minna sýktum kartöflum, sem þola
illa geymslu og ganga úr sjer við
suðu. Bragð gott útsæði, sem er heil-
brigt og er gott til geymslu, er eina
útsæðið, sem borgar liinn dýra áburð.
7. apríl 1940.
Ásgeir Ásgeirsson.
er miðstöð verðbrjefavið-
skiftanna.
Drekkiö Egils-nl
Hjerna sjást þrjár fallegar telpur. Þær eru svo hepnar að þær
hafa fengið vínber iil þess að gæða sjer á fgrir jólin.
Skákþing Reykjavíkur 1940 &
Einvígið um Reykjavíkurmeistaratitilinn.
Skák nr. 2
Niemzó indversk vörn.
Svart: Ásmundur Ásgeirsson.
Hvítt: Eggert Gilfer.
1. d2—d4, Rg8—fO; 2. c2—c4, e7—
e6; 3. Rbl—c3, Bf8—b4; 4. g2—g3,
(þannig ljek Aljechin á móti Gol-
ombek í Margate 1938) 4........ c7—
cö. (í nefndri skák ljek Golombek
4.....d7—d5; og fjekk lakari stöðu).
5. d4xc5. (Virðist best: Ef 5. d4—d5,
þá t. d. Rf6—e4; 6. Ddl—c2, Bb4x
c3-f-!; 7. b2xc3, Dd8—f6; og svart
vinnur peð) 5.....Rf6—e4; (5........
Bb4xc3; var e. t. v. betra. En Ás-
mundur er þarna að leggja gildru
fyrir mótleikanda sinn í von um að
hann gangi í hana). 6. Bcl—d2,
(nauðsynlegt. Ef 6. Ddl—c2, þó
Dd8—f6, og livitt á ekkert viðunandi
svar við hótununum. 6....... Re4xc3;
og 6......Df6xf2+; l. d. 6. Ddl—
c2, Dd8—f6; 7. Dc2xe4, Bb4x3+;
8. Bcl—d2, Bc3xd2+; 9. Kelxd2, Dfö
xb2f; og svart vinnur hrók); ....
Bb4xc3; 7. Bd2xc3, Re4xc3; 8. b2x
c3, Dd8—a5, (Hvítt á nú peði meira
og heldur frjálsari stöðu, en hinsveg-
ar er svo erfitt að verja peðin á c-
tínunni, að það gerir meira en að
vega upp á móti þessu); 9. Ddl - d4.
0—0; 10. Bfl—g2, Rb8—a6; (Best);
11. Rgl—f3, Ra6xc5; 12. 0—0, (Sjálf-
sagður leikur. Svart hótaði 12......
Rc5—b3); 12 .... Da5—c7; 13. Hfl
—dl, b7—h6i; 14. Rf3—e5, Ha8—b8;
15. Dd4—d(i (Þvingar drotninga-
kaup);, 15.....Dc7xd6; 16. Hdlxdö,
f7—f6!; (Góðúr leikur. Hrekur ridd-
arann í burtu, og opnar lcóngnun.
leið til miðborðsins); 17. Re5—d3,
Rc5—b7; 18. Bg2xb7, (18. Hd6—dl.
hefði gerl svörtu erfiðara um að
valda peðið á d7 og losa um biskup-
inn á c8), 18.....Hb8xb7; 19. c4—
c5, b 6xc5; 20. Rd3xc5, Hb7—c7; 21.
settur þarna), 21...... Kg7—f7; 22.
Rc5—a4, (Eina leiðin til þess að
lialda c-peðinu, en riddarinn er illa
settur); Hal— dl, Kf7—e7;
23. e2—e4?, (Líklega til þess að geta
svarað leiknum; 23....... Bc8-—b7;
með 24. Ra4—c5, en i stöðunni eins
og liún var strandaði það á 24......
Bb7----d5. Hins vegar hefir Gilfer
sjest yfir liinn sterka svarleik svarts,
sem vinnur óhjákvæmilega peð); 23.
.... e4—e5!, (Tilgangslaust var 23.
.... Hc7—c4; vegna 25. Rd0—d4);
24. Hd(i—d5, Bc8—b7; 25. Hd5—a5,
Bb7xe4; 26. f2—f4, Be4—f3; 27. Hdl
—el, d7—d6; 28. c3—c4!, (Hótar 29.
c4—c5); 28....... Iic7xc4; 29. Ha5x
a7f, Ke7—e(>; 30. Ra4—b6, Hc4—b4;
31. Hel—e3, e5—e4; (Miklu betra en
Hb4xb6. Riddarinn er ennþá illa sett-
ur); 32. Rb6—d7, (32. Ha7—e7t, Keti
xe7; 33. RbO—d5t, veitti miklu meira
viðnám, en hefði hinsvegar ekki nægt
til að bjarga skákinni); 32....Hb4
—blt; 33. Kgl—f2, Hbl—b2t; (Ein-
faldara var 33........Hf8—c8); 34.
Kf2—fl, Hf8—c8; 35. He3—el, Hb2\
h2; (Hótar að vinna hrókinn á el);
30. f4—föt, Ke6xf5; 37. Ha7—a5t
Kf5—g4; og hvítt gaf.
gpd^' Best er að auglýsa í Fálkanum