Fálkinn - 26.04.1940, Page 7
FÁLKIN N
/
NÝ BOItG.
L>etta er ráðliúsið í Pomezia, en sá
bær er sá fimti í röðinni, sem reist-
lu' er á pontverskn mýrunum í ítal-
íu. En ]>ær hafa nú verið þurkaðar
o}> ræktaðar. Mussolini vígði bæ
þenna fyrir skömmu.
Á myndinni efst t. h. sjest ofan á eitt af þeim mörgu skipum,
sem farist hafa í stríðinu. Þetta er grískt skip, sem rekist hefir
á tundurdufl og strandað við austurströnd Englands.
Að neðan: Fihnar náðu oft furðu miklu herfangi í stríðinu við
Rússa. Iljer sjest t. d. rússnesk stríðsvagnasveit, sem fell í hend-
ur Finnum.
Eins og menn muna varð sænski smábærinn Pajala fyrir rúss-
neskri loftárás. Hjer til hægri sjest kirkjan í Pajala.
SVISSNESKI HEItlNN
notar mikið af hundum til hernaðar-
erinda. Hjer sjest hermaður vera að
festa málmhylki í hálsband eins
hjeppans, en í hylkinu eru skrifleg
sendiboð, sem þurfa að komast leið-
ai sinnar.