Fálkinn - 31.05.1940, Page 2
2
FÁLKINN
- GAMLA BÍÓ -
Gamla Bíó sýnir bráðlega franska
mynd, seni heitir Hæltuleguv leikur.
Aðalhlutverkin leika Hiu/uette Duflos,
hún leikur Iréne de Rysberque. Jean
Worms leikur mann hennar ,1/. Rys-
bergue, en elskhugi hennar Georges
de Chambrg er leikinn af Jean
Pierre Aumont. Öll þessi hlutverk
eru snildarlega leikin, og sömuleið-
is hin smærri.
Mynd þessi fjallar um fertuga
könu, sem enn er þó upp á sitt besta,
fjörug og ungleg og tekur ljett á
hlutunum. Maður hennar er rikur
verksmiðjueigandi, hún á tvo stálp-
aða sonu og er þeim systir engu
síður en móðir. Hún á marga vini,
sem dá hana og ungir menn vilja
engu siður umgangast hana en jafn-
öldrur sínar. Maður hennar hugsar
aðeins um starf sitt og gleymir því
að húii þarfnast fleira en allsnægtir
og munað. Eitt sinn þegar hann neit-
ar henni að fá að fylgja honum til
Wien, gerir liún sjer hægt um hönd
hönd og kastar sjer í fangið á ung-
um manni, vini sonar hennar. Hon-
um fylgir hún til Afríku, en þar á
hann að gegna herþjónustu. En þar
hlekkist henni á. Kanske er það ald-
urinn, sem hún getur um kent,
kanske bara tilviljunin. Hún verður
að þoka fyrir yngri konu, sem hríf-
ur hinn unga mann með æsku sinni
og hreinleika. Þegar hún kemur heim
virðast allar brýr brotnar að baki
henni, en alt fer þó vel. Hún skilur,
að hún getur ekki lengur haldið
áfram sinu áhyggjulausa lífi. Hún
sættir sig við það hlutskipti, sem
allir eiga fyrir höndum: að eldast
og fjarlægjast ljóma æskunnar meir
og meir.
Og hún lærir það loks að það er
fleira i lífinu en eintómt hopp og
hí, sem er þess virði að eftir því
sje sótt, og eins það, að þegar kona
á fimtugsaldri er hætt að ganga svo
um munar í augun á k^rlmönnunum,
þá er það ekki sem verst að taka
á sig ró og spekt og gerast virðuleg
amma. Iréne de Rysbergue leggur
alls ekki árar í bát, þótt hylli ungu
mannanna bregðist. Hún nemur þá
ný lönd.
C. Rillich.
K. I. B. S.
kvartettinn.
Næstkomandi sunnudag ætla fjór-
ir ungir menn að skemta bæjarbú-
um með söng sínum.
beir nefna kvartett sinn K. I. B. S.
kvartett, en það eru upphafsstafirn-
ii í nöfnum þeirra, en söngvararnir
eru: Kjartan Sigurjónsson, sem syng-
ur fyrsta tenór, Ingi Bjarnason, ann-
ar tenór, Björgvin Jóhannesson, I.
bassi og Sigurður Jónsson, II. bassi.
Við hljóðfærið verður C. Billich,
sem hefir æft kvartettinn og radd-
sett nokkur lög, sem sungin verða.
Fálkinn hitti Billich að máli og
spurði hann um deili á kvartettinum.
— Þessir fjórmenningar, segir
Billich, byrjuðu fyrir ekki all-
skömmum tíma að raula saman i
frístundum sínum og eru nú komnir
það langt að ætla að lialda opinbera
söngskemtun og liafa æft í þvi augna
miði nndanfarna mánuði.
Hver eru viðfangsefnin?
Þau eru aðallega skemtilög, t.
d. Matseðillinn, Vorvísur Iíaldalóns
og Syndaflóðið, lag eftir Emil Tlior-
oddsen, sem aldrei mun hafa verið
sungið hjer áður opinberlega. Svo
eru líka á söngskránni Ijett klassisk
lög eins og Bíbi og blaka og Barcar-
ola úr Höffmanns Erzahlungen eftir
Offenbach, með góðum texta eftir
Axel Guðm.
Eru strákarnir dálítið góðir?
- Það munuð þjer fá að heyra á
sunnudaginn, segir Billich og brosir
við. Annars get jeg sagt það, að
raddmagnið er mikið og tenórar
einkar blæfallegir, og jeg geri mjer
vonir um, að bæjarbúar geti átt góða
ánægjustund við að hlusta á söng
þessara fjögurra ungu manna.
Kjartan Sigurjónsson.
Signrður Jónsson.
Ingi Bjarnason.
Björgvin Jóhannesson.
H
Urslitin í getrauninni
- NÝJA BÍÓ -
Edward G. Robinson er orðinn
geysilega vinsæll leikari, enda sjest
hann í mörgum kvikmyndum nú orð-
ið, og leikur liann ýmiskonar menn.
En eitl er öllum myndum hans
sameiginlegt: hraði og spenningur.
Við fáum bráðum tækifæri til að
sjá Robinson í nýrri mynd, því að
á næstnnni sýnir Nýja Bíó ameriska
stórmynd frá Warner Bros., sem
heitir Hnefaleikameisiarinn Kid
Galahad. í myndinni leika fimm
einar hinna frægustu og „björtustu"
af stjörnum amerísku kvikmyndanna,
þeim: Bette Davis, Edward G. Ro-
binson, Humphreg Bogart, Jane
Brgan og loks Wagne Morris, hraust-
um og karlmannlegum manni, sem
margir munu minnast er sáu hinn
skemtilega leik hans í kvikmyndinni
,,í dal risatrjánna“, sem hjer var
sýnd i Nýja Bió í vetur.
I jiessari mynd leikur Wayne
Morris hinn mikla hnefaleikara—
meistara Iíid Galahad. í rauninni er
það ekki lians upprunalega nafn, þvi
að í upphafi myndrinnar er hann
þjónn og heitir þá Ward Guisenberry
En linefaleikahæfileikar hans koma
í ljós, þótt hann sje bara friðsam-
legur og kurteis þjónn, og riddara-
legur er hann í hugsun, því að um-
svifalaust slær hann einn gestanna,
sem liann á að þjóna, til jarðar, þeg-
ar sá gerðist l'rekur og óartugur við
unga blómarós. En þessi maður verð-
ur síðan aðalkeppinautur Kids Gala-
had í linefaleikum, en það er nú
Önnur saga.
Edward G. Robinson leikur aftur
á móti Nick Donati, sem stundar j>á
atvinnu, að æfa hnefaleikara og
spana l>á saman, kemur upp hnefa-
Ieikjum o. s. frv.
í flestum kvikmyndum eru vondir
menii, svokallaðir „skúrkar“. Hjer
eru þeir tveir heldur en einn, nefni-
lega Ttirkeg Morgan, sem stundar
sömu atvinnu og Nick Donati, og
samviskulaus þrjótur, sem hefur upp
skammbyss’una, ef liann er reittur til
reiði. Þennan mann leikur Humplirey
Bogart. Leiguþý Morgans og hnefa-
leikari er Chuck McGraw leikinn of
William Haade. — Loks er Flnff,
vinkona Donati. Hana leikur hin
fagra Bette Davis. Milli þessara
klíkna er áköf keppni, ekki aðeins
ineð hnefunum heldur og enn kröft-
ugri aðferðum, og er öll sú viðureign
æsandi og fjörug.
Þá var ódýrt að jeta!
Til er reikningur frá 1(1. öld fyrir
miðdegisverð, sem fjórir menn átu
á ensku gistihúsi. Þeir fengu tvær
stórar lambasteikur, eina nautasteik,
tvær steiktar gæsir, sex hæsni og sex
dúfur, ásamt sósum, grænmeti, smjöri
eggjum, eplum og appelsínum og
ýmiskonar ábæti. Einnig fengu þeir
öl og vín eins og hver vildi hafa.
Og þetta kostaði kr. 4.50 á mann.
Læknar máttu ekki giftast.
Á miðöldum var læknunum bann-
að að gifta sig. Það voru nefnilega
að jafnaði munkar, sem iðkuðu lækn-
ingar, en löngu eftir að leiknir menn
fóru að stunda lækningar hjelt ein-
lífisreglan áfram, svo sem í Frakk-
landi. Læknarnir mótmæltu þessu
banni árangurslaust i 300 ár, en
loks ljet páfinn tilleiðast að leyfa
læknum að giftast, í lok 15. aldar-
innar.
ÞEKKIRÐU MANNINN?
verða birt í næsta blaði.
Loftsteinar
eða vígahnettir eru nefndir í forn-
um letrum. Þannig eru skráðar fregn-
ir um loftsteina á leirtöflunum í
Babýlon og í gamla testamentinu er
þeirra líka getið. Hinn heilagi steinn
Múhameðstrúarmanna, sem geymd-
ur er í Kaba-musterinu, er talinn
vera vígahnöttur. í kínverskum ann-
álum er sagt frá jiví, að tíu menn
hafi beðið bana af loftsteinahríð
árið 616. Og árið 823 kviknaði í 34
þorpum í Saxlandi af loftsteinahríð.