Fálkinn


Fálkinn - 31.05.1940, Page 7

Fálkinn - 31.05.1940, Page 7
FÁLKINN Hann elskaði Eftir Mark fÍEllingEr JOHN BROWN ljek á alls oddi, af því að hann var ástfang- inn. Hann elskaði indælustn, ástúðlegustn .... ja, í stuttu máli: hann var ástfanginn. Hann steig út úr strætisvagn- innm og skálmaði í burt, hvatur í spori. Hann var ungur i annað sinn og gat eklci stilt sig um að brosa framan í alla, sem hann mætti — honuin stóð alveg á saina, hvað fólkið á götunni hjelt nm hann. Því að fólkið á götunni þektí ekki Elsu! Elsu! Nafnið sjálft var eins og englasöngur í eyr- um hans, það var injúkt, jiað var kvenlegt .... þegar liann muldr- aði það í liálfum hljóðum, sá hann fallega hrosið, frjálsu aug- un og svarta hárið. Hvað hann mundi vel fyrsta skiftið, sem hann hafði faðmað liana. Hún hafði verið hálf hrædd til að byrja með, hrædd við hann. Hann hafði kyst hana á ennið, ofur lausan og varkár- an koss, og hún liafði horft á hann og brosað til hans. Það var blátt áfram yndislegt. Iiann hafði aldrei upplifað ann- að eins. Þegar hún opnaði munn- inn hlustaði hann töfraður, því að liann vissi, að Elsa var svo gáfuð og svo sjálfstæð i skoðun- um. Þegar hún afrjeð eitthvað þá var eklci að efast um, að svona áti það að vera. Og þessvegna sveif John Brown fram götuna með bros um munn- inn og söng á vörunum .... Þangað til honum datt nokkuð i hug. Hann var á leiðinni heim. Og hún Elsa var ekki konan liaiis. Hún .Tóna var konan lians. -------—. « Eiginlega vorkendi liann Jónu, að honum skyldi þykja svona vænt um Elsu. Hún var ágætis manneskja og fyrirmyndarlcona. Og líf þeirra var svo nátengt, að þau tengsl mátti aldrei rjúfa. Og vitanlega ætlaði Jolm Brown ekki heldur að sldlja við Jónu, nei, það var óhugsanlegf. En hann varð að segja henni, að hann elskaði Elsu meira en Jónu. Hann var svo heiðarlegur maður, að honum fanst það sjálfsagt. Og svo rjeð hún sjálf, livað hún segði .... Jóna var ein af þessum kon- uin, sem maður rekst oftar á í hókum en i daglega lífinu. Hún var góðmenskan sjálf og John Brown vissi það. Hún snerist kringum hann, dekraði við hann og hjúkraði honum þegar hann var veikur, hún huggaði liann í mótlætinu og lioppaði af gleði þegar honum vegnaði vel. Og í ofanálag var hún ráðdeildarsöm og hjelst vel á peningunum og fanst Jolin hina meira. Brown vera hesti eiginmaður í heimi. Svona var Jóna. Það væri synd að hryggja hana. Það var ógern- ingur að fara til hennar og segja: ,,He>rrðu, Jóna mín! Jeg elska aðra konu meira en þig!“ En John ætlaði lieldur ekki að segja þetta svona .... En samt — hún varð að fá að vita þetta. Kanske gæti hann sagt: „Jóna min, þú veist hve vænt mjer þykir um þig, en jeg verð samt að meðganga, að mjer þyk- ir enn vænna um liana Elsu. Gat liann sagt þetta við hana? Brosið hvarf liægt og liægt af vörunum, meðan hann var að liugsa málið. Það var vafamál, hvort hann gat sagt svona .... Hann skammaðist sín við til- hugsunina og fór að brjóta heil- ann um, livað aðrir menn mundu gera undir slíkum kringumstæð- um. Eftir nokkrar mínútur var Jolin kominn heim að húsdyrun- um. Hann opnaði dyrnar liljóð- lega, liengdi frakkann sinn í and- dyrið og kallaði: „Það er bara jeg!“ Svo hljóp liann upp stigann og inn í haðlierhergið. Jæja, það var nú ekki bráð- nauðsynlegt að segja Jónu þetta í kvöld. IJann gæti beðið þang- að til hann fengi hentugt tæki- færi. Hann fór úr jakkanum, tók af sjer hálshnýtið og bretti upp skyrtuermunum. Svo skoðaði hann sig vel í speglinum. Ójú, elcki bar á öðru. Hann var eig- inlega bráð-unglegur ennþá .... Svo þvoði liann sjer í framan, en altaf var liann að húgsa um Elsu. Hann sneri sjer frá þvotta- skálinni með rennblautar hend- urnar og augun full af vatni, og fálmaði eftir handklæðinu. Hvar í þremlinum var nú handklæði? Mikill hölv. . . . nei, það var ekki neitt. Loksins fann liann handklæðið i skápnum. Ilversvegna liafði hann ekki athugað fyrirfram, hvort það væri við þvottaskál- ina? Líklega vegna þess, að hann liafði verið að Iiugsa um Elsu. Svo hatt liann á sig hálshnýtið aftur og fór i jakkann. Og aftur varð lionum litið á sjálfan sig í speglinum. Jolm Brown var eldri en Elsa. Hann hnyklaði brúnirnar við til- hugsunina um, að það gæti orðið óþægilegur aldursmunur þegar árin liðu. Og liann hað þess í hjarta sínu, að liann breyttist sem minst. Hann ætlaði að reyna að halda sjer unglegum. Hann vildi ekki verða gamall, þreytulegur eða gráliærður ,. . . það mátti ekki verða. Því að Elsa treysti á liann og hún mátti ekki verða fyrir vonbrigðum. Jóna var sú sama og hún var vön. Hún spurði liann frjetta af skrifstofunni og John sagði henni frá því markverðasta, sem við liafði borið um daginn. En liann var svo utan við sig. Því að hann var altaf að hugsa um Elsu. Hann var að hugsa um, að eigin- lega liefði hann ekki verið hrif- inn af liénni i fyrsta skiftið, sem hann sá hana ......... en mikið skelfing liafði honum fundist hún falleg þegar á Ieið. Hann ræskti sig. „Jóna,“ sagði hann, „það er dálítið, sem mjer finst jeg mega til með að segja þjer. Jeg meina það er rjettast, að þú fáir að vita það.“ • „Haltu áfram," sagði Jóna ró- leg. „Hvað er það, sem þú ætlað- ir að segja mjer?“ Hann andvarpaði. Aldrei hafði honum dottið í hug, að það mundi verða svona erfitt að stynja þessu upp. „Æ .... það var eiginlega ekki neitt,“ sagði hann og fór undan í flæmingi .... „það getur beðið þangað til seinna." „John,“ sagði Jóna brosandi, „leystu nú frá skjóðunni. Nú hefir þú sagt a og þá verðurðu að scgja h.“ „Nei, Jóna .... nei. Afsakaðu, að jeg sagði nokkurn skapaðan hlut. Það var .... ekki neitt.“ „En jeg vil heyra, livað þú ætl- aðir að segja!“ sagði hún. „Komdu nú með það.“ Hann ypti öxlum: „Jæja, úr því, að þú endilega vilt það. Það sýnist kanske bjána- legt, en mjer finst, að þú verðir að fá að vita það. Jeg elska liana Elsu meira en þig.“ Konan horfði á hann augna- blik. Svo fór hún að skellihlæja. Hún fór út og kom aftur að vörmu spori með reifabarn í fanginu. Og hún hló enn. „Gerðu svo vel, nú geturðu hampað henni meðan jeg hugsa um matinn. En þú lilýlur að liafa skift um skoðun síðan um dag- inn, Jolin? Fyrir mánuði, þegar hún Elsa fæddist, sagðir þú, að þú hefðir miklu fremur kosið að hún hefði verið strákur." Angantýr forstjóri s,tóð á svolun- uni á Laugavatni og naut útsýnisins. Þá bar þar að mann, sem hann ekkert þekti, og ávarpaöi sá Angan- tý þegar í stað: — Yður hef jeg víst aldrei hitt fyrr, sagði aðskotadýrið, en konu yðar þekti jeg áður en þjer kvænt- ust henni. — Einmitt það? Jeg vildi, að jeg gæti sagt slíkt hið sama. En það get jeg, því mlður ekki sagt með sanni, sagði Angantýr fýlulega. Schreibmaschinea GOÐ SAMTÍBARINMR Eljas Erkka. Eljas Erkko, sem var utanríkisráð- herra Finna fram að styrjöldinni og síðan hefir verið sendiherra þeirra í Stokkhólmi, er blaðamaður. Hann var ritstjóri framsóknarblaðsins Helsingin Sanomat, stærsta blaðs Finna. Erkko er af stórbændaæti. Al'i hans átti jörðina Erikkala í Ori- mattila. Faðir hans gekk í flokk hinna frjálslyndu ung-Finna og stofn aði blaðið „Paivalehti" í Helsing- fors árið 1889 og varð blað þetta aðalmálgagn flokksins. Bobrikov landstjóri gerði Erkko þennan út- lægan árið 1903 og hröklaðist liann þá til Ameríku, en kom aftur heim eftir tvö ár og tók við blaðinu á ný. Það hafði skift um nafn, og hjet nú Helsingin Sanomat. Eljas Erkko, sonur hans, stundaði sendisveitarstörf eftir borgarastyrj- öldina og hefir verið sendiráðsrit- ari í Paris, Tallin og London. Síðan tók hann við ritstjórn blaðsins og gerði það að miklu áhrifablaði og víðlesnu, þrátt fyrir það, að flokkur- inn gekk saman. Meðan um það var deilt, hvort Finnar ættu að leita samvinnu vest- ur á bóginn eða við Þýskaland, beitti Erkko sjer eindregið fyrir samvinnu við Norðurlandaþjóðirn- arar og vesturveldin. Er hann mikili Bretavinur, enda er kona hans ensk. Þessi stefna varð loks ofan á árið 1935 og er Erkko talinn eiga ekki minstan þáttinn i því, að samvinna Finna við Norðurlönd hefir aukist hin siðarl ár. Erkko og Rikard Sandler fyrv. utanríkisráðherra Svía, eru miklir vinir. Það voru þeir, sem komu sjer saman um það í fyrra, að fá leyfi alþjóðabandalagsins til þess, að vig- girða Álandseyjar, til þess að auka öryggi siglinga um Helsingjabotn. Þjóðbandalagið tók líklega í málið, en fyrir mótspyrnu Rússa náði það ekki fram að ganga. Sumir vilja halda því fram, að Álandseyjamálið hafi orðið til þess, að Rússar hófu kröfur á hendur Finnlandi i haust og hefir Álandseyjamálið orðið Finnum dýrt, ef þetta er rjett. Erkko er enn ungur maður, að- eins 45 ára. Hann er mikill á velli, kraftamaður mikill, harðdrægur nokkuð og óorðvarari en stjórnar- erindrekum er holt. En dugnaðar- maður er hann talinn og mikill starfs- maður, og sem blaðamaður liefir hann getið sjer orðstír i Finnlandi. Helsingin Sanomat, er stórveldi finsku pressunnar.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.