Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1940, Blaðsíða 2

Fálkinn - 27.09.1940, Blaðsíða 2
2 - NÝJA BÍÓ - Fáir rithöfundar hafa verið jafn afkastamiklir og Jack Lond- on, þessi glæsilegi fullhugi, sem sóttist altaf eftir æfintýrum og ljet ekki alt fyrir iirjósti brenna. Skáldsögur lians eru þrungnar æsandi spenningi frá upphafi til enda, án þess að vera ómerkileg- ir reyfarar. Enn er Jack London einn hinn víðlesnasti ritliöfund- ur heimsins. Kvikmyndin, sem Nýja Bíó sýnir bráðlega, er gerð eftir skáldsögu eftir Jack London. Hún heitir Eldur i Rauðuskógum (Romance of the Redwoods), og gerist, eins og' nafnið bendir til í hinum miklu skógum Ameríku. Lar gerist myndin og sýnir dag- legt lif skógarhöggsmannanna, þessara glaðlyndu og hraustu pilta, sem eru ástríðuríkir og æfintýragjarnir, rjett eins og liöf- undur sögunnar, Jack London sjálfur. „Það er fagurt i Rauðuskógum kvöldið, sem Jed Malone kemur í atvinnuleit til Wittakers for- manns, og það er glatt á lijalla hjá frú Manning, þar sem skóg- arhöggsmennirnir húa. Þeir eru að skemta sjer við bjórdrykkju, og Steve Blake og Wittaker eru að reyna hvor þeirra geti staðið lengur á veli- andi tunnum, án þess að liella úr ölkrúsum, sem þeir halda á í höndunum.“ Svona lítur út í húsinu, þegar Jed Malone kemur að leita sjer atvinnu og fær hana fyrir at- beina June, heixnasætunnar. Sá lcunningsskapur leiðir til ástar og trúlofunar. Þeir Jed og Steve verða virktavinir, en þó verður Steve fyrir vonbrigðum, þegar hann frjettir trúlofunina. En hann hristir það af sjer og lieiml- ar að þeim sje haldin vegleg veisla, hjónaefnunum. Svona er Steve. En skuggi fellur á. Jed verður. fyrir sögunarvjel og deyr. Það er mikið áfall fyrir bæði June og Steve. En myndin er ekki þar með búin. Ógurlegur eldur brýst út i Rauðuskógum, og allir vita hvað er í liúfi þegar skógareldar geisa og eira engu lifandi. Helstu hlutverkin eru þannig skipuð: Steve Blake . .. Charles Bickford June Martin......Jean Parker Boss Witaker .... Alan Bridge Jed Malone .... Gordon Oliver M>mdin er frá Columbia Film. ttbreiðið Fðlkann. - GAMLA BÍÓ - sem var sannfærður um, að Douglas hefði hæfileika til leik- listar. Og fór svo að hann lagði út á listamannabrautina og hef- ir leikið fjölda af lilutverkum og átt frábærum vinsældum að fagna. — Af öðrum leikurum má nefna Ina Clair og Bela Lugosi, sem altaf hefir leikið illmenni þang- að til í þessari mynd, og kveðst hann verða þeirri breytingu feg- inn. Leikstjórnina hefir Ernst Lubitscli haft með höndum. Lew Ayres. Kvikmyndafjelögin leita stöðugt að nýjum leikurum og einn af þeim nýrri er Lew Ayres. Þegar í bernsku dreymdi hann um leikfrsagð, en átti lengi erfitt með að vekja athygli leikstjóranna á sjer. Þá tóic hann það ráð að eyða Öllum sínum peningum í fin föt, og er sagt, að það hafi dálítið hjálpað honum af stað, hversu mikill sund- urgerðarmaður hann var í klæða- hurði. En þegar hann toks fjekk sæmilega atvinnu var hann orðinn svo „blankur“, að hann átti ekki fyrir lierbergi til að sofa i, og skuld- aði fyrir tvo mánuði. En svo gekk honum vel úr því. I háa tíð hefir Greta Garbo einungis leikið í sögulegúm kvik- myndum alvarlegs efnis, en bráð- lega gefst Reykvíkingum kostur á að sjá hina heimsfrægu leik- konu í nýrri mynd, ólikri þeim, sem hún hefir leilcið í undanfarið. Það er skemtimyndin Nin- otchka frá Metro-Goldwyn-Meyer fjelaginu. Myndin gerist í París, og leikur Greta Garbo rússneska stúlku, erindreka stjórnar sinnar, sem send hefir veiið til Parísar, á- samt nokkrum fjelögum sínuni. Rússneska stúlkan verður mjög snortin af Parísarlífinu. Hún kynnist af tilviljun frönskum greifa, Meívyn Diouglas, sem verður ástfangin í henni. Sýnir myndin hvernig f jelagi Ninotchka missir áhugann fyrir þeim alvar- legu störfum, sem henni hefir verið ætlað að leysa af liöndum, og grípur fegins hendi alt það, sem skemtanalíf liinnar miklu borgar hefir að bjóða. Alt er þetta sýnt af mikilli list og á fjörlegan og skemtilegan hátt. Er myndin sniðin eftir skáldsögu eftir Melchior Lengyel. Gefur saga þessi Gretu Garbo tækifæri til þess að reyna gam- anleikara hæfileika sína, sem sagt er, að liana hafi langað mjög til að reyna, og í þessari mynd heyrist hún í fyrsta sinn syngja, og sumum mun jafnvel finnast þeir nú í fyrsta sinni sjá þessa miklu sorgleikakonu glaða. Hinn franski greifi strýkur alvöruna af andliti fjelaga Ninotchka. Melvyn Douglas,- sem leikur liinn fjöruga franska greifa, hefir áður leikið á móti Gretu Garbo. Hann er rússneskur í föðuræít. Þegar Bandaríkin fóru í stríðið bætti hann nokkrum ár- um við aldur sinn og var tekinn með. Þó fór hann aldrei til Ev- rópu í það sinn. I Chicago hitti liann gamlan kunningja sinn, leikara, William Owen að nafni, Kristinn Jónsson, vagnasmiður, Frakkastíg 12, verður sjötugur 30. sept. Frú Sigríður Halldórsdóttir, Skothúsveg 7, verðUr 60 ára '30. þ. m. Ólafur Ág. Thejll, afgreiðslu- stjóri i Sjúkrasamlagi Reykja- víkur, verður fertugur 29. þ. m. Frú Sigrún Árnadóttir frá Mó- um, nú til heimilis Fjölnisveg 20, verður 50 ára 28. þ. m. Helgi Guðmundsson, bankastj., Laufásv. 77, verður 50 ára 29. ■ þ. m.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.