Fálkinn


Fálkinn - 11.07.1941, Blaðsíða 12

Fálkinn - 11.07.1941, Blaðsíða 12
12 F Á L K I N N Francis D. Grierson: Framhaldssaga. L Toma hú§ið. Leynilögreglimga. tt—* 26. J „Þakka yður fyrir, en þjer verðið að af- saka niig, jeg er einn af þeim mönnum, sem hafa mikið að tgera . . . „Það skil jeg vel. Jeg liefi aðeins drepið á þetta, svo að þjer sjáið, að jeg er kunn- ugur öllum hnútum. En þjer hafið aðra starfsemi, sem við megum ekki missa sjón- ar á.“ Rowland ræksti sig aftur, það var eins og flibbinn hans væri að hengja hann. Marrible hjelt áfram: „Fornsalan tekur líklega ekki allan yðar tíma, ef þjer hal'ið fólk, sem liægt er að reiða sig á. Að minsta kosti hafið þjer liaft svigrúm til, að verða stærsti rekandi ódýrra gistihúsa fyrir sjó- menn, i London. Bíðið þjer hægur, jeg veit ofur vel, að þetta gengur ekki undir yðar nafni, opinberlega. Það mundi ekki liæfa forngripaversluninni. En sjáið þjer, mr. Rowland, jeg álít nú, að þetta tvent geli ol'ur vel farið saman. Það eru ekki fáir eftirtektarverðir menn, sem rata á þessi gistihús, og þeir finna stundum ýmsa sjald- gæfa gripi, sem forngripasalan gæti sell með laglegum ágóða.“ Andlitið á mr. Rowland fór nú að gerast blárautt. Dr. Marrible horfði á liann með augum læknisins og taldist svo til, að maðJ urinn mundi deyja af slagi, ef hann lenti ekki í gálganum áður. „Jeg' skil ekki Iivað þjer eigið við taut- aði fornsalinn. „Jú, þjer vitið einmitt vel, hvað jeg á við,“ sagði Marrible og gerðist nú berorður: „Þjer eruð hilmari í stórum stíl, þjer hafið aðstoðað við að koma út fölskum pening- um, þjer hafið látið fremja að minsta kosti tvö morð, og þjer eigið sennilega á hættu að vera myrtur sjálfur, ef að ákveðinn maður slyppi úr fangelsinu í Dartmoor, sem liann situr i núna.“ Mr. Rowland tók skjálfandi fingrum um skeggið. „Þjer getið ekki sannað þetta,“ sagði hann. Dr. Marrible ypti öxlum. „Jeg verð að viðurkenna, að þjer bakið mjer vonbrigði. Dettur yður i hug, að jeg mundi koma hingað og segja þetta við hinn prúða mr. Júlíus Rowland, án þess að liafa sannanir i bakhendinni?“ Rowland spratt upp úr stólnum, snarar en maður skyldi lmfa trúað manni með hans vaxtarlagi til, kipti fram skúffu i skrifborði sínu og greip'skammbyssu, sem þar lá. En áður en hann gat miðað byss- unni fjelst honum lmgur, er hann heyrði rólega og kalda rödd mr. Marrible. „Enga flónsku," sagði Marrible, „Það virðist svo, sem þjer hafið ekki athugað, að jeg liefi auðvitað haft viðbúnað. í banka- hólfinu mínu er undirskrifuð yfirlýsing með nægilegum sönnunum til að fá yður dæpidan fyrir tólf mismunandi glæpi. Tuttugu og fjórum tímum eftir dauða minn eru þessi plögg komin i hendur Scotland Yard.“ Forngripasaiinn fleygði byssunni ofan i skúffuna aftur og fleygði sjer í stól. Svo spurði hann eins og í leiðslu: „Hvað ætlið þjer að gera?“ „Ekkert, ef þjer liagi'ð yður skynsam- lega,“ svaraði Marrible og það mátti sjá vonarneista í augum mannsins, er hann leit upp. „Þjer verðið að gera svo vel að muna, að jeg er ekki í Iögregluliðinu,“ íijelt hann á- fram. „Jeg hjálpa lögreglunni þegar jeg fæ borgun fyrir það. Annars læt jeg hana um sín mál sjálfa. Jeg stend yfir lögunum, því að jeg hefi kosið mjer það hlutskifti, að skrifa lögin sjálfur. Það er þessvegna, sem jeg stend fremstur allra í starfi mínu, án þess að jeg vilji gorta af því.“ Rowland góndi undrandi á hann. „Þjer eruð merkilegasti maðurinn, sem jeg hefi nokkurntima liitt.“ Marribjé lmeigði sig til að þakka lofið og hjelt áfram: „Takið nú vel eftir því, sem jeg segi. Þjer eruð slóttugur, maður minn, en nögu slóttugur eruð þjer ekki. Þjer getið rekið viðskifti yðar eins og yð- ur sýnist — það kemur mjer ekkert við. Mjer getur staðið á sama um, livort þjer verðið hengdur á morgun fyrir óaðgætni, sem jafnvel ekki lögreglan getur orðið óaf- vitandi um. En nú eigið þjer að vinna fyr- ir mig, og jeg sætti mig ekki við, að sam- verkamenn mínir geri skissur. Þjer verðið að ,gera nákvæmlega eins og jeg segi yður, að þjer eigið að gera, og ef þjer látið nokk- urt orð eða bendingu falla um það, sem jeg ætla að segja yður nú, þá mun yður iðra þess þann tíma, sem þjer eigið ólif- aðan, sem að vísu verður ekki langur, er jeg hræddur um. Hafið þjer skilið mig?“ Ilann laut áfram og augnaráð hans var svo ógnandi, að forngripasalinn skalf eins og hrísla meðan hann svaraði: „Jú, jeg skil yður.“ „Það er gott. Viljið þjer nú taka vel eft- ir,“ lijelt Marrible áfram og tók saman- brotið blað upp úr vasanum. „Jeg er um þessar mundir að rannsaka morðmál. Jeg geri ráð fyrir, að maður, sem heitir Page, muni koma til London, hvenær sem vera skal. Á þetla blað hefi jeg skrifað ýmislegt lionum viðvíkjandi. Jeg veit, að þjer hafið skipulagt athafnamestu leyninjósnastarf- semina í hinum svonefndu undirheimum boygarinnar. Nú verðið þjer, að láta alla umboðsmenn yðar vita um þennan mann og segja mjer tafarlaust til, ef þjer frjettir eitthvað af honum.“ „Jeg skil það,“ sagði forngripasalinn. „Gott. Það var það fyrsta. í öðru lagi verðið þjer að hafa gát á stúlku, sem heitir Eva Page. Heimilisfang hennar stendur þarna á blaðinu.“ „Það er með öðrum orðum „Carriscol“- málið‘“ tautaði Rowland. „Þektuð þjer Cluddam?“ spurði Marrible höstugur og hinn kinkaði kolli: „Já, jeg hafði stundum skifti við hann.“ „Jeg giska á hverskonar skifti það liafi verið,“ sagði Marrible napurt. “En hlustið þjer nú á og gleymið ekki því, sem jeg segi yður.“ Og svo talaði hann í nokkrar minútur áður en hann stóð upp. „Þetta er all og sumt, i augnablikinu,“ sagði hann. „Gerið nákvæmlega eins og jeg hefi sagt yður, þá er alt i lagi. En ef þjer svíkið mig —“ hann drap hendinni á öxlina á Rowland, — „Jeg held nú ekki, að þjer reynið það,“ sag'ði liann og fór út í bifreiðina. Marrible ók frá íornsalanum í einn klúbbinn sinn, og borðaði liádegisverðinn með svo góðri lyst, að ofursti með maga- kvef, sem sal við næsla borð komst í ólund- arskap. Síðan fór hann inn í spilasalinn og' spilaði bridge þangað til tími var kominn til að hafa fataskifti fyrir miðdegisverðinn. Þegar liann kom heim í Maide Yale, sagði Durand honum, að maður að nafni mr. Rowland hefði liringt og beðið um, að dr. Marrible hringdi til sín er hann kæmi heim. Marrible náði sambandi undir eins og talaði stutta stund við forngripasalann. Síðan hringdi hann á „Yardinn" og fjekk samband við Blyth. „Jeg hefi frjettir handa yður,“ sagði hann. „Ákveðin persóna, sem yður og mjer er ekki sama um, er komin hingað til lands. Hann kom yfir sundið á fiskiskipi og er eins og stendur í East End.“ „Hann skulum við ná í —“ „Augnablik — það er engin ástæða til, að þjer gerið yður fyrirhöfn. Við missum ekki af honum, því að hann verður í nótt á gestahæli, sem jeg þekki. En í kvöld á liann að hitta ákveðna stúlku klukkan ellefu, við Mark Lane Stalion. Je'g hefi liugsað mjer, að ef þjer og jeg tækjum þátt í þessu stefnumóti, þá inætti það merkilegt heita, ef við fengjum liann ekki til, að taka á móti fæði og húsnæði upp á kostnað hins opinbera.“ Barry ldó. „Það var vel að orði komisl,* svaraði hann. „Þetta var svei mjer vel af sjer vikið hjá yður, Marrible. Jeg liefi ver- ið í sambandi við Paris, og á Sureté sögðu þeir, að liann væri farinn til Boidogne. En hvernig liafið þjer komist að þessum á- formum hans fyrir kvöldið?“ „Það megið þjer ekki spyrja mig um,“ svaraði Marrible. „Jeg umgengst ýmsa, sem mundu mundu hneyksla ykkur, fínu menn- ina á „Yardinum.“ en þeir geta nú komið að góðu lialdi fyrir því.“ „Verið þjer ekki að afsaka það,“ svaraði Barry mjög þurt, „sumir af kunningjum mínum njóta sín líka, best í skugganum. En hvað leggið þjer svo til málanna?“ „Að jeg komi til yðar klukkan tíu. Þá getum við komist i Mark Lane i tæka tíð og fundið okkur skúmaskot, þar sem eng-

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.