Fálkinn


Fálkinn - 03.10.1941, Qupperneq 3

Fálkinn - 03.10.1941, Qupperneq 3
FÁLKINN 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6. BlaðiS kemur út hvern föstudag. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Augtýsingaverð: 30 aura millim. HERBERTSprent. Skraddaraþankar. Margt af þvi böli, sem mest er fár- ast yfir núna, er þjóðinni sjálfri að kenna — flónshætti einstaklingsins og vanþroska, og ófullkomleika starfsmanna, sem mikið veltur á. Hjer í sumar var afarmikiö rælt um kvennabölið svonefnda. Ekki pútnaböi eða kynsjúkdóma heldur einkum það, að börn og unglingar niður að tólf ára aldri liefðu sam- farir við útlenda hermenn. I skýrslu nefndar einnar, sem skipuð var í þetta mál, eru sagðar ferlegar sögur af þessu hátterni, og þær hljóta að vera sannar, því að þær eru bygðar á rjettaryfirheyrslum lögreglunnar. Af þessum skýrslum vérður meðal annars bert, að stúlkúbörn á aldr- inum 12—15 ára hafa haft.náin mök við hermenn (og víst óbreytta íslend- inga líka, en þó einkum við hermenn, því að þeir áttu meira af áfengi og appelsínum). Það er ennfremur upp- lýst, að sumir þessir ástafundir liafa verið haldnir á opinberum gistihúsum og pörin stundum fleiri en eitt á sama herbergi samtímis. En nú mun það i Jögum, að það varðar tugthúsi, að liafa lioldlegt samræði við börn innan 16 ára. og í öðru lagi varðar það sektum og sennilega tugthúsi líka, að leigja út herbergi lianda körhun og konum til lauslætis. Það er sannað, að lögreglunni hef- ir verið kunnugt um þessa „trafik" langa lengi. Hún kannast við um 500 af stúlkunum og börnunum. En hvað hefir hún gert? Og hvað hefir hin ötula barnaverndarnefnd gert? Er ekki eðlilegt að fólk spyrji svo? Hafa stúlkurnar verið „teknar úr umferð.“ Hafa börnin verið sett i umsjá áreiðanlegs fólks, sem treyst- andi er til að forða þeim frá glap- stigum, sem liggja rakleitt til æfi- iangrár óhamingju. Og hvað liefir verið gert við gistihúsin, þessi sem nefnd eru X eða eitthvað annað úr stafrófinu? Ekki hafa blöðin sagt frá þvi, að gistihúsinu X eða Y eða Z hafi verið lokað fyrir „rufferi“ og að eigandinn sje kominn i svartholið og eigi fyrir hendi tanga gistihúsdvöl á Hotel Litla-Hraun pr. Eyrarbakka. Það er að vísu gott að fá skýrslu þá, sem blöðin fluttu ágrip af síðla í ágúst. En hitt er eigi að siður nauð- synlegt að fá skýrslu um, hvað lög- reglan hefir gert, hvernig hún hefir framfylgt lögununTT Og hvað lmn liefir látið ógert — hvernig hún hefir framfylgt lögunum! (v/vi^/wiv Nítján dagar á björgunarfleka Enn mun flestum í fersku minni afdrif danska skipsins „Sessa“, er skotið var tundurskeyti 300 sjómílur af ís- landi 17. ágúst, á leið hingað til lands. Aðeins 6 menn af 27 komust lifandi á fleka, en af þeim dóu þrír áður en björgun kom. Hinum þremur eftirlifandi var bjargað af ameríkönskum tundurspilli, sem flutti þá hingað til lands. Hafa þeir dvalið hjer síðan, tveir lengst af á spítala, en einn þeirra jafnan haft ferlivist. Er það Henrik Bjerregaard 1. stýrimaður. Fálkinn hefir náð tali af Bjerregaard, sem síðustu vikurnar hefir verið gestur á heimili dr. Fr. de Fontenay sendiherra. Rjerregaarcl stýrimaður með „almanakið“ sitt. Beint á móti mjer silur maður, frekar lágvaxinn, en herðibreiður og samanrekinn. Hann talar ekki hátt og lætur Htið yfir sjer, þó að hann sje að segja mjer einhverja mestu karhnenskusöguna, sem jeg liefi heyrt lengi — af hrakningum þriggja klæðlítilla manna, sem velkt- ust nær tuttugu daga á litlum fleka á hafinu milli íslands og Grænlands. Þeir fengu sem svaraði einum munn- sopa af vatni tvisvar á dag og mat- arkyns höfðu þeir ekkert nema þurt liarðbrauð. Maðurinn er Henrik Bjerregaard frá Odense. Hann var fyrsti stýri- maður á „Sessu“, einu af dönsku skipunum, sem Eimskipafjelagið hafði leigt til íslandsferða, en öll þessi skip átti J. Lauritzen skipa- eigandi í Kaupmannahöfn. Höfðu þau öll verið skráð í Panama og' sigldu undir fána þess lands. Eitt þeirra, „Alcedo“ komst hingað heilu og höldnu, en tvö iiggja nú á mar- arbotni. Bjerregaard stýrimaður segir ró- lega og skipulega frá liinni geig- vænlegu ferð, sem kostaði líf 24 manna, þar á meðal tveggja .ungra íslendinga. Mennirnir hafa ótrúlega hæfni til að laga sig eftir kringum- stæðunum, viðhorf mannsins, sem sjálfur hefir sjeð hættur og staðið í mannraunum, verður annað en liins, sem aðeins þekkir þetta af afspurn. — Jeg vil síður að þjer spyrjið, — hekl það sje betra, að jeg segi yður frá þessu, eins og það hefir geymst í minni mínu, segir Bjerre- gaard stýrimaður. Svo getið þjer vinsað úr það, sem þjer hirðið ekki um. En meðan jeg er að hlusta á mál mannsins, þá finst mjer eins og iit sje að sleppa nokkru. Ýmsu verð- ur þó að sleppa, m. a. vegna tak- markaðs rúms. En kaflar úr frásögn stýrimannsins, einkum frásögn hans af því, sem gerðist eftir að skip- brotsmennirnir komust á flekann, er tekin nærfelt orðrjett. — Við fórum frá New York 7. ágúst og segir ekki af ferðalagi okk- ar fyr en að kvöldi þess 17. s.m. Þá var sunnudagur. Klukkan 8 um kvöldið reiknaðist okkur svo til, að við ættum 320 sjómílur ófarnar til Reykjavíkur. Við höfðum verið að jgera upp ýmsa reikninga skipsins um kvöldið, brytinn, I. vjelstjóri og jeg og liöfðum lokið því klukkan undir níu. Þóttumst við hafa unnið til þess að fá okkur glas af öli eftir vel unnið verk og sátum því stund- arkorn. En þessi hvíldarstund varð stutt. Alt í einu heyrðum við liögg, eins og barið i skipshliðina og nær samtímis heyrðist brak og brestir. Tundurskeyti hafði hitt skipið á stjórnborða. Við þutum út og var þá mikil slagsíða komin á skipið, en menn sem óðast að þyrpast upp á bátaþilfarið. Jeg sneri við og ætlaði að ná í ýms plögg í skúffu inni hjá mjer, en þegar jeg var að draga út skúffuna var sjór kominn inn í klefann. Flýtti jeg injer þá út. Skip- ið var að sökkva og jeg fleygði mjer fyrir borð og var lengi i kafi, vegna sogsins frá skipinu. En er jeg hafði verið nokkra stund ofansjávar og synt góðan spöl, rakst jeg á sima- staur og flaut á lionum. Þarna marraði jeg lengi uns jeg koma auga á annan mann, sem líka hafði náð í simastaur. Það var Svíi, og heitir Ljunggren. Við gátum mjakað okkur saman og komum öðrum staurnum þversum yfir hinn, sátum við svo livor á móti öðrum á neðri staurnum og höfðum þver- staurinn milli okkar. Þá valt hann minna, staurinn sem við sátum á. En nú komum við auga á einn bát- inn frá skipinu. Hann var að vísu á hvolfi, gn samt þótti okkur hann Þorvaldur Aðils. tryggari farkostur en staurarnir, og tókst okkur að komast á kjöl á bátn- um. Innan skamms sáum við hvar uiaður kom rekandi í björgunar- belti; það var II. vjelstjóri. Komst hann til okkar og upp á bátinn. Loks náðum við í fjórða manninn, það var Canadamaður. En vjelstjór- ann, sem var mjög þjakaður, þegar hann náðist, tók út skömmu síðar og sáum við hann ckki framar. Við vorum allir klukknlausir, svo að jeg get ekki giskað á, live lengi við vorum þarna á kili á björgunar- Látnum. En í öllu falli hafa liðið nokkrir klukkutímar þangað til við sáum fleka á reki skamt frá okkur. Voru þrír Portúgalar á honum. Við gátum mjakað okkur nær þeim og köiluðum til þeirra að taka á móti fangalínu. Köstuðum við livað eftir annað, en þeir höfðu ekki rænu á að laka á móti. Þeir lágu hljóðandi á hnjánum og ákölluðu Mariu mey. Loks afrjeð jeg að synda með fangalínuna út í flekann og tókst okkur þannig að draga bátinn að flekanum. Og við komumst allir þrir upp á flekann. Nú fór að rofa fyrir degi. Þeir íjelagar inínir vildu láta mig fara úr og vinda mig, en jeg sinti jivi ekki þá þegar, því að jeg bjó yfir ráðagerð. Jeg vildi ekki skilja svo við bátinn, að við gætum ekki náð einhverju úr honum, sem okkur mætti verða að gagni. Rjett áður en við fórum frá New York liöfð- um við sett tjaldþak á þennan bát, úr sterku boldangi. Það var lauslega fest á bátinn og bundið með snæri undir þóptuna. Báturinn lá hátl vegna lofthylkjanna, sem i honum Frh. á bls. 14. Steinþór Wendel Jónsson.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.