Fálkinn


Fálkinn - 12.06.1942, Side 11

Fálkinn - 12.06.1942, Side 11
F Á L £ 1 N M 11 MAÐURINN OG FJALLIÐ Eítir James Ramsey Ullmann. AÐ var áliðið morguns 15. júli 1865, er þrír ringlaðir og upp- gefnir inenn stauluðust inn í þorp- ið Zermatt í Sviss. Þeir voru að koma frá að sigrast á frœgasta fjalli Evrópu, en enga sigurgleði var að sjá á andlitum þeirra. Þorpsbúar hópuðust þegar að þeim og i augna- ráði þeirra mátti lesa spurninguna: „Hvar eru hinir fjórir?" Og þá var það, sem Edward VVhymper sagði söguna af göngunni á Matterhorn. Enn í dag, eftir meira en þrjá aldarfjórðunga, er hún sag- an af einum raunalegasta atburð- inum í veröldinni. Til eru hundruð fjalla, sem eru hærri en Matterhorn, liundruð l'jalla, sem erfiðara er að klifra. En ekkert fjall hefir jafn þráfald- lega komið lireyfingu á hugmynda- l'lugið., Matterhorn rís, sem einstak- ur pyramídi upp i 14.782 feta hæð á landamærum Sviss og Ítalíu og eigi aðeins stærðarhlutföllin heldur hið óbrotna form fjallsins auka á mikilleik þess. Rjett eftir 1860 hafði raunveru- lega tekist að klífa alla stórtinda Mið-Evrópu, nema Matterhorn, sem gnæfði enn ósigrað. Bændurnir í dölunum i kring báru hjátrúarkenda lotningu fyrir liengjunum i Matter- horn. Þeim kom saman um að fjall- ið væri ókleyft. Sumarið 1860 kom Edward VVhymp- er suður í Alpafjöll i fyrsta sinn. Hann var aðeins tvítugur þá, málari og teiknari, sem kom suður til þess að teikna myndir. Tindarnir miklu töfruðu hann og gerðu hann fíkinn i að klifra og sigra. Hann gekk á marga tinda, en undir eins og hann liáfði sjeð Matterhorn fanst honum alt annað lítilsvirði. Whymper gerði sjö tilraunir til að ganga á Matterhorn næstu fimm árin og sjö sinnum gerði fjallið hann afturreka. Þröskuldar þeir, sem fyrir lionum urðu hefðu átt að nægja til þess að hann gæfist upp við áformið, en hann var meiri en svo. Þessi risavaxni pyramídi með ljórum aðalhlíðum, gnæfði við him- inn með hengiflug á hengiflug ofan um 5000 fet upp fyrir snjólinu. Þar fyrir ofan hömuðust veðrin stjórn- laust, og niður skörð og gljúfur ruddust skriður af grjóti og ís þeg- ar minst varði, hótandi öllurn þeim bráðum bana, sem hættu sjer upp í hið grimma riki brattans. Við eitt tækifæri — éftir að hafa gert þrjár tilraunir með fylgdar- mönnum, sem skildu við hann — hafði Wliymper tækifæri til að reyna, hve liættulegt það er, að hætta sjer einn út í fjallgöngur. Hann liafði snúið við, eftir að hann hafði komist í 13.400 metra hæð, og þóttist nú sannfærður um, að nú hefði hann lcomið aunga á rjettu leiðina upp á tindinn. Hann var kominn niður fyrir verstu torfær- urnar og gekk nú hratt niður fann- hengju og var að hlakka til þess hvað það yrði notalegt að fá sjer heitt bað og komast í rúmið — þegar hann rann og datt. Fyrst rakst hann á kletta, lenti siðan á svellbunka og rann þannig að ýmist vissu upp höfuð eða fætur niður gildrag og hrapaði öðru hverju fram af 30—40 metra háum hengjum. En goð tindsins þyrmdu lionum. Frammi á brún 1000 feta hárrar liengju stöðvaðist hann i grjóthrúgu. Ringl- aður og með blæðandi sár lijekk hann þarna í eina minútu en gat svo fikrað sjer á öruggari stað. Þar leið yfir hann. Þegar hann raknaði úr rotinu var orðið dimt af nóttu. Hann tók á þvi sem hann átti til, og tókst að staulast það sem eftir var leiðarinnar, niður í þorpið Bréuil. Whymper hafði kannað allar lilið- ar fjallsins frá suðvestri til suð- austurs. í júlí 1865 afrjeð liann að freista gæfunnar að austan og norð- austan — fara upp Zermatt-kamb- inn svonefnda. Þarna virtist bratt- inn mestur, neðan úr dalnum að sjá, en liann liafði veitt því athygli, að kamburinn virtist ekki eins bratt- ur liegar maður sá hann á hlið. Ennfremur hafði hann sjeð, að berglagið i sjáll'um tindinum hall- aðist frá norðaustri til suðvesturs, og því ályktaði liann að bergið mundi vera með brotstöllum að norðaustan, þannig að þar væri einskonar stigaþrep i berginu. Wliymper trygði sjer aðstoð Jean-Antoine Carrels, fylgdarmanns og klifurgarps sem var öllum snjall- ari, og afrjeð að gera tilraunina fyrsta daginn sem veður leyfði. En áður en hagstætt veður kom, komu ítalir nokkrir til Breuil i þeim ti 1- gangi að ganga á Matterhorn að suðvestan — ítaliumegin. Þá bar Carrel það fyrir sig, að hann liefði loíað sjer áður, og gerðist liðsmaður hinna ítölsku keppinauta Whymp- ers; hann var italskur sjálfur og taldi sig skylt a ðleggja löndum sinum lið. Og hann var ekki eini ítalski ættjarðarvinurinn niðri í döl- unum; þarna fjekst enginn maður til þess að fylgja Englendingnum. Það var ekki annað sýnna en að Whymper yrði að láta svíkja sigur- inn úr höndum sjer. En þegar verst horfði kom ungur og æfintýrafús Englendingur til Breuil, Francis Douglas lávarður, og hafði hann fyrir skemstu getið sjer orðstir fyrir að klifra ýmsa erfiða tinda i Alpa- fjöllum. Með lionum var ungur pilt- ur, Peter Taugwalder, sonur eins af bestu fylgdarmönnunum í Zermatt. Douglas fjelst á að fara með Whymper og tókst að i'á Taugsvalder eldri til þess að koma með þeim. ítalir höfðu þungan farangur með sjer og fóru hægt yfir. Enn var ómögulegt að verða þeim yfirsterk- ari. í Zermatt, þorpinu, sem lagt skyldi upp frá, hittu þeir hinn fræga fjallgönguprest Charles Hudson, ungan fjelaga hans, sem Hadow hjet, og Croz fylgdarmann jieirra, og voru þeir einnig að búa sig undir að ganga á Matterhorn. Sam- mældu þeir sig þegar. Af þessum sjö, sem urðu i hópn- um höfðu aðeins Whymper og Croz gengið á Matterhorn áður. En hin- ir voru allir þrekmenn og dugandi, og Whymper var ánægður með þá — og hinn vonbesti. Þeim miðaði vel áfram og voru komnir upp á neðri brún norðaust- urkambsins um hádegi og nokkrum klukkutímum siðar tjölduðu þeir á hjalla í 11.000 feta liæð. Leiðin hafði til þessa verið ótrúlega auðveld og það voru vongóðir fjallamenn, sem hreiðruðu um sis þarna á snösinni um kvöldið. Morguninn eftir, 14. júlí 1865 var heiðrikt veður og bjart, og undir eins og birti hjeldu þeir fjelagar áfram uppgöngunni. Hin ógnandi þverhnýpi austurkambsins gnæfðu yfir þeim, 3000 feta há, en Wliymp- er hafði getið sjer rjett til. Bergið var eins og jötnastígi, á þessa hlið tindsins, með mörgum þrepum og stöllum. Þeim miðaði vel áfram uppeftir. Klukkan 10 voru þeir komnir í 14.000 feta hæð. Þar fyrir ofan virtust þessi síðustu, fáu hundruð fet vera likust lóðrjettum vegg og að þvi er virtist óklifrandi. Þeir fóru norður yfir kambinn og skriðu upp að norðanverðu. Þar reyndi á klifurkunnáttu þeirra, því að berg- veggurinn að norðan var að vísu ekki eins brattur og að austan, en alþakinn klaka. Fjórum þúsund fet- um fyrir neðan sá á Matterhorn- jökulinn. Þeir notuðu vað og kom- ust áfram einn og einn í senn. — Croz, Whymper og Hudson höfðu forustuna og höfðu gát á liinum miður reyndu fjelögum sínum í vaðnum, ef þeir kynnu að skrika. Loks var aðeins ein torl'æra eftir — klettöxl, sem stóð fram í brún- inni á geil, sem skarst gegnum efri kambsröndina. Þeir sneyddu ineð varúð fyrir klettinn — tvö eða þrjú stutt hliðarskref og svo eitt langt yfir hyldýpis skoru. Þeir litu upp og fyltust þegar óumræðilegum fögn- uði. Fyrir ofan þá var aðeins hæg- ur líðandi undir fönn og bak við blá livelfing himinsins. Whymper og Croz tóku á rás upp á kollinn og komu þangað samtímis. Matterliorn var sigrað. En jiú setti beyg að þeim. Höfðu Jieir orðið fyrstir? Eða liafði Carr- ell og lieir ítalirnir liaft af þeim sigurinn? Whymper fór að athuga, hvort nokkursstaðar sæjust fótspor i snjónum. Þau sáust engin. Svo störðu þeir fram af suðurbrúninni og sáu þyrping af smádílum, sem hreyfðust langt fyrir neðan þá. Sig- urvegararnir hrópuðu sig liása; loks sáu þeir, að ítalirnir litu upp, og er þeir sáu, að þeir voru sigraðir, sneru Jieir við og fóru að hreyfast niður í móti. Fullvissir um sigur sinn ráku þeir Wliymper og fjelagar hans prik í snjóinn og Croz batt skyrtuna sína á prikið, eins og fána. Og fólkið niðri í Zermatt sá merkið og alt komst i uppnám af atburðinum. Náttúran sjálf virtist taka liátt i þessari hátíð. Sólin skein í lieiði og hinir sjö ofsaglöðu sigurvegarar liorfðu yfir samfeldan hring af tindum, jöklum og dölum. Hinn risavaxna turn Mont Blanc hilti uppi; jafnvel Monte Viso, sem var í 160 kílóm. fjarlægð var skírt og ljómandi í kristallstæru loftinu. — Þessi sigurstund, er þeir stóðu þarna, liinir sjö, sem fyrstir manna stigu i'æti á Matterhorn, var dýr- legasta stundin, er Jieir höfðu lifað. Þeir höfðu komið upp á tind- inn kl. 1.40. Klukkan 2.40 fóru lieir að klifra niður. Eftir andartak voru þeir komnir að hinum stutta „vand- kvæðastað“ norðan í kambinum. — Þar námu þeir staðar til að binda sig í vaðinn og ákváðu röðina, sem skyldu ganga í. Croz fór fyrstur, Hadow annar, þá Hudson og Dou- gjas á eftir honum. Síðastir komu Taugwalder gamli, næst Whymper og loks Taugwalder yngri. 1 þess- ari röð áttu hinir færari fjallamenn að geta hjálpað þeim óvanari — Hadow og Douglas — ef þeir kynnu að komast í vandræði. Eða svo hjeldu þeir. Þeir koniust fyrir þverhnýptu klettsöxlina og fetuðu sig gætilega niður snarbratt svaðbergið fyrir handan liana. Aðeins einn maður hreyfði sig í einu. Augnabliki sið- ar------hjer kemur frásögn Whym- pers: Croz hafði lagt af sjer öxina, og hafði tekið um fæturna á Iladow til þess að koma þeim i örugg spor. Þeir sáust ekki nema að nokkru leyti, því að klett bar á milli, en jeg býst við, að Croz hafi snúið sjer frá, til þess að fikra sig piður um eitt éða tvö skref, Jiegar Hadow rann, og datt á hann, svo að liann fjell sjálfur.“ Croz heyrðist hljóða hátt og Ha- dow og hann brunuðu á fleygiferð niður og drógu Hudson og Douglas með sjer. Whymper og Taugwalder- feðgunum tókst að ná haldi i kletti. Vaðurinn hertist milli Douglas og Taugwalders eldra, stríkkaði og nötraði eins og fiðlustrengur — — — og slitnaði. „í nokkrar sekúndur sáum við hina ógæfusömu fjelaga okkar bruna ofan á bakinu og baða út höndun- um og reyna að ná festu. Þeir voru ómeiddir, þegar við mistum sjónar af þeim, en liröpuðu síðan hengi- flug af hengiflugi niður á Matter- horn-jökulinn, nær 4000 fetum neð- ar.“ Þannig lauk Matterhorn-æfintýr- inu — með sigri og liræðilegri harmasögu. För Whympers ofan af fjallinu ásamt feðgunum var eins og martröð i vöku, í stað sigurfarar hjá lietjum. Lík þeirra Croz, Hudson og Ha- dow fundust á jöklinum. En lik Lord Francis Douglas fanst aldrei. Síðan Whymper gekk á Matter- horn liefir Jiað orðið eitt þeirra fjalla veraldar, sem flestir ganga á. En nú eru fastir kaðlar og stigar komnir á þær leiðir, sem tiðast eru farnar. Þó eru töfrar tindsins enn óskertir. Hann er enn frægasti tind- ur Alpafjallanna, eins og liann var fyrir þremur aldarfjórðungum, og enn gagntakast allir af töfrum og hrifning, sem líta liann augum — og liin hörmulega saga af hinum beiska sigri Whympers liefir eigi gert þá töfra minni. PADEREVSKI. Frh. af bls. (> þeim fyrirvara, að hann liefði öðru að sinna. Annars er Jiað um liann sagt, að liann hafi igert sjer far um að miðla málum yfirleitt og þó sjerstaklega i þvi máli, sem erfiðast var liá, deilumáli austurríska herforingja- flokksins, — mun hann hafa komið þar fram scin græðari sára í svip og jafnað deilur. Nú má ekki orðlengja þetta, þó að löngun sje til þess. Og ekki er raunar sögð nema liálf sagan af þessum mikla manni. En mjer dettur i liug: Munið þið ekki eftir kvikmynd, sem lijer var sýnd, að því er mjer er sagl 1937, þar sem „gamli maðurinn“ leikur Tunglskinssónötu Beethowens. — Myndin var tekin 1936 og sýnd hjer 1937, — og með Jiessari mynd kynl- ust miljónir manna þessum ágæla tónsnillingi, betur en ella liefði orð- ið. Mjer er sagt, að Jiessi kvikmynd liafi verið sýnd lengi á „Nýja Bió“ og liykir mjer Jiað í raun og veru engin furða, því að það eru einmitt Jivi um líkar myndir, jió efnislitl- ar sjeu, sem Islendingar vilja hafa sjer til gamans. Paderewski komsl til Ameríku, skömmu eftir liernám Póllands. — Þegar blaðamenn voru ]iá að tala við hann, kvaðst hann ekki myndi snerta á hljóðfæri sínu fyr en Pól- land væri aftur orðið frjálst land. Ekki vita menn hvort þetta hefir átt að skilja sem ógnun við heim- inn eða hljóðfærið. Það er vist, aö hann ljet aldrei til sin heyra siðan, og ljest hinn 29. júni 1941, — og sennilega saddur lífdaga. Sonurinn hefir verið i veislu með föður sínum og spyr liann á heim- leiðinni: „Heyrðu, livernig er Jiað eiginlega að vera drukkinn?“ „Það skal jeg segja þjer, drengur minn. Líttu nú á — þarna ganga tveir menn skamt á undan okkur. Ef einhver kæmi nú og segði, að þeir væri fjórir, þá væri maðurinn drukkinn.“ „Já, en heyrðu! Það er aðeins einn maður á undan okkur!

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.