Fálkinn - 01.01.1943, Side 3
F A L K I N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltcsted
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6
Blaðið kemur út hvern föstudag
Allar áskriftir greiðist fyrirfram
HERBERTSpren/.
Nýtt ár er gengið í garð og eng-
inn veit hvað það hefir að fœra.
Hinsvegar munu margir velta fyrir
sjer þeirri gútu, sjerstaklega núna
um þessi áramót. Færir árið frið
og kúguðum þjóðum frelsi, eða eiga
þær enn að liða og stríða og öll
veröldin að þjakast?
Við vitum hvað hið liðna ár lief-
ir fært heiminum, og livað það
færði okkur fslendingum sjerstalc-
lega. Og við getum ekki varist
þeirri hugsun, að árið 1942 hafi í
flestum greinum verið óvenjulegt ár
hjer á 'landi. Sumir munu minnast
þess sem kosningaársins mikla og
árs liins stjórnarfarslega svarta-
dauða,'sem lauk með því að Alþingi
gerði sig ómyndugt. Aðrir munu
minnast þess sem ársins, sem Ijet
móta fyrir því að velgengni og auð-
söfnun íslendinga ætlaði að verða
eilíf. En allur þorri manna minn-
ist þó ársins fyrst og frcmst sem
árs hinnar sivaxandi verðbólgu, sem
ágerðist svo seinna missirið, að eng-
in dæmi hafa gerst því lik á Norð-
urlöndum. Og jafnframt henni virt-
ist vaxa fíkn almennings i að koma
peningum sínum í lóg. Aldrei hafa
óráðdeildarkaup fólks keyrt svo
mjög úr hófi eins og siðustu mán-
uðina fyrir áramót og kvað svo ramt
að þessu, að líkast var að algert
verðhrun íslensks gjaldeyris væri
yfirvofandi, líkt og gerðist i ýmsum
löndum álfunnar eftir siðustu styrj-
öld.
Sú vima, sem þjóðin hefir verið
haldin af undanfarið, hverfur nú
vonandi með liinu nýbyrjaða ári.
Víða sjást merki þess, að auðlind-
ir undanfarinna ára sjeu að þverra,
og jiví er það eigi að ófyrirsynju,
að einstaklingarnir fara að liugsa af
fullri alvöru um sinn hag og þá
einnig um hag þjóðarinnar. Boðorð
þessa árs verður fyrst og fremst að
gcra ráðstafanir til ])ess að gæta
fengna fjárins og bjarga þvi sem
enn verður bjargað. Annars er ekki
fyrirsjáanlegt, en að þessu stríði
loknu sitji þjóðin uppi með tvær
hendur tómar, þegar mæta skal
kreppunni, sem óhjákvæmilega kem-
ur eftir þelta stríð.
íslendingum ætti að vera auðvelt
að læra það, af reynslu síðustu styrj-
aldar, að framtíð landsins er í
hættu, ef sukkið og eyðslan fær að
ráða. Verkefnin, sem kalla að á
næstunni eru svo mörg og krefjast
mikils fjár. Þó ekki nema sje það
Dr. juns tijorn Þóróarson forsætis-
ráðherra.
Eftir margra vikna tilraunir
til stjórnarmyndunar á ])ing-
ræðisgrundvelli urðu þau ný-
stárlegu málalok, að ríkisstjóri
skipaði utanþingsstjórn hin-n lö.
desember. Átla manna nefndin,
sem skyldi atliuga möguleika á
myndun ráðuneytis, sem allir
fjórir þingflokarnir stæðu að,
varð að gefast upp. Næst fór
rílcisstjóri þess á leit við forseta
sameinaðs Alþingis, Harald
Guðmundsson, að liann athug-
aði möguleika á myndun stjórn-
ar, sem Framsóknarflokkurinn,
AÍþýðuflokkurinn og Sócialistar
stæðu að, en það fór á sömu
leið. Loks gerði Sjálfstæðis-
flokkurinn á síðustu stundu til-
raun lil stjórnarmyndunar og
enn var útkoman núll. Þótti þvi
fullreynt, að þingið gæti ekki
myndað stjórn á venjulegum
þingræðisgrundvelli og greip
ríkisstjóri þá lil sinna ráða og
skipaði ulanþingsstjórnina. Var
hún þannig skipuð í upphafi:
Dr. juris Björn Þórðarson
lögmaður er forsætisráðherra.
Björn Ólafsson stórkaupmað-
ur er fjármálaráðherra og við-
skiftamála.
Dr. juris Einar Arnórsson
hæstarjettardómari er dóms-
málaráðherra.
Vilhjálmur Þór bankastjóri
er utanríkis- ög atvinnumála-
ráðherra.
Noklcru síðar var Jóliann Sæ-
mundsson yfirlælcnir skipaður
fjelagsmálaráðherria.
Sameinað Alþingi lók á móti
hinni nýju stjórn á fundi, sem
haldinn var lö. desember kl. 1.
Las forseti þar upp brjef ríkis-
að endurnýja allan skipastólinn,
fylla skörðin, sem í liann hafa kom-
ið og auka við hann. Og eittlivað
kosta þær allar rafveiturnar, sem
þingmenn eru að lofa háttvirtum
kjósendum.
Dr. juris Einar Arnórsson dóm,
málaráðherra.
stjóra um skipun stjórnarinnar,
en að því loknu kvaddi hinn
nýji forsætisráðherra sjer hljóðs
og mælti á þessa leið:
Herra forseti! Háttvirtir al-
þingismenn! Eins og yður er
kunnugt, hefir hið háa Alþingi
reynt, að þvi er virðist til þraut-
ar sem stendur, að mynda
stjórn, er fyrirfram hefði stuðn-
ing Alþingis. Með því að þetta
hefir eklci tekist, þá hefir herra
rikisstjórinn farið þá leið, að
skipa menn í ráðuneytið án at-
beina Alþingis. Nú hefi jeg og
samstarfsmenn mínir i hinu nýja
ráðuneyti tekist þennan vanda
á liendur. Ivemur þá væntan-
lega í Ijós, er ráðuneytið her
fram tillögur lil úrlausnar hrýn-
ustu vandamálunum, livort hið
háa Alþingi vill vinna með því
eða ekki.
Ráðuneytið telur það höfuð-
verkefni sitt að vinna hug á
dýrtiðinni, með því fyrst og
fremst að setja skorður við
frekari verðlagsbólgu, meðan
leitast er við að lækna mein-
semdina og vinna hug á erfið-
leilcunum.
Ráðuneytið ætlar sjer að
vinna að því, að atvinnuvegum
landsmanna, sem nú eru marg-
ir komnir að stöðvun, verði kom-
ið á heilbrigðan grundvöll, svo
að útflutningsvörur verði fram-
leiddar innan þeirra takmarlca,
sem sett eru með sölusamning-
um vorum, m. a. við Bandarík-
in í Norður-Ameríku. Þá verð-
ur einnig þegar í stað að gera
þær ráðstafanir um innflutn
ingsverslun landsins, að henni
verði komið i það horf, sem
skipakostur landsmanna og ó-
friðarástandið gerir nauðsyn-
legt.
Ennfremur ber nauðsyn til,
að verðlagseftirlitið verði lálið
taka til allra vara og gæða, sem
Björn Ólafsson fjármálaráðherra.
Jóhann Sæmundsson fjelagsmála-
ráðherra.
seldar eru almenningi, og að
tryggja i þeim málum svo öi'-
ögga og einheitta framkvæmd
seni vei-ða má.
Jafnframt verða að sjáif-
sögðu athuguö ráð til að stand-
ast þau útgjöld, sem dýrtíðar-
í’áðstafanii’nar hljóta að hafa
i för með sjer.
Ráðuneytið mun kosta kapps
um að efla og treysta vinátlu
við viðskiftaþjóðir vorar. Eins
og stendur vex’ður lögð sjei’stök
áhersla á vinsamlega samhúð
við Bandai’íki Norður-Ameríku
og Stóra-Bretland.
Ráðuneytið vill el'tir föngum
vinna að alþjóðar heill. Auð-
Frh. á bls. U.
NÝJA STJÓRNIN