Fálkinn - 08.01.1943, Qupperneq 2
2
FÁLKINN
Svíar framleiða gerfigúmmí.
Hörgull á gúmmí verður æ til-
finnanlegri í Svíþjóð. MeS skjótuni
aðgerðmn tókst Svíum að bæta sjer
upp bensínleysið með því að taka
upp notkun viðargass, en skortur-
inn á gúmmí og smurningsolíum
verður sifelt meiri, og lians vegna
hefir enn orðið að leggja ýmiskonar
liömlur á bifreiðanotkun í Svíþjóð.
Til þess að' reyna að bæta úr
þessu hafa um bríð verið gerðar tii-
raunir með framleiðslu á gerfi-
gúmmii við ýmsar efnafræðistofn-
anir i Svíþjóð, Fysisk-kemisku' stofn-
uninni í Uppsölum hefir orðið svo
vel ágengt í þessuin lilraunum, að
von er um góðan árangur. Er það
hinn kunni vísindamður Tbe Sved-
berg, sem stendur fyrir þessum
rannsóknum, í sambandi við trjá-
kvoðufirmað Mo & Domsjö, sem lief-
ir framleitt efni, sem talið er að
hægt sje að nota í stað gúmmis í
mörgum tilfellum. Verður nú farið
að framleiða þetta efni í stórum stíl.
Hið síðasta í þessari grein er það,
að ungur sænskur vísindamaður,
sem heitir dr. Gösta Ehrensvárd og
starfar við Wenner-Gren stofnunina
í Stockholm, hefir búið til nýtt
efni, einskonar gúmmílíkingu, sem
virðist hafa ýmsa góða kosti. Hefir
efni þetta verið framleitt í smáum
slíl í einni gúmmíverksmiðju sænsku
samvinnufjelaganna, en þau hafa
styrkt Ehrensvárd til þessara til-
rauna og munu taka að sjer að koma
uppgölvuninni i framkvæmd. Þetta
er svonefnt thioplast-efni, og eini
gallinn á ])ví er sá, að ekki liefir tek-
ist að herða (vulkanisera) það við
mikinn hita. Ehrensvárd hefir tek-
isl að finna ráð til þessa. Ennfrem-
ur hefir honum tekist að eyða ólykt-
inni, sem var af þessu efni. Ekkert
hefir verið látíð uppi um efnasam-
setningu þessa nýja gúmmís, eða úr
hvaða liráefnum það er gert, að þvi
undanteknu að efnin eru sumpart
úr dýrarikinu og sumpart úr skóg-
arviði.
Að svo stöddu hefir dálítið af
reiðhjólabörðum og hælar á skó ver-
ið gert úr þessu efni. Enn er of
snemt að segja nokkuð um slitþol
þess, en þó hafa reiðhjólabarðarnir
verið notaðir í 5000 kílómetra akst-
ur, án þess að nokkuð slit sjái á
þeim. En ýmsar ástæður eru til
þess, að ólíklegt er talið, að hægt
sje að nota þetta efni i bifreiðar-
barða. Loks má geta þess, að í Sví-
þjóð er farið að rækta útlenda fífla-
tegund, sem inniheldur gúmmí, og
virðist það ætla að ganga vel.
MINNISMEItKI
VICTORS EMANÚELS.
Eftir að Ítalía hafði sameinast í
eitt ríki eftir margra alda tvistrup
og sundrung, hófust ítalir handa um
að reisa minnismerki, sem tákna
skyldi endursameiningu liinnar
gömlu Ítalíu. Kendu þeir ])að við
Victor Emanúel. Er þetta ein af
eftirtektarverðustu byggingum i
Hóm, með framhlið úr tröllauknum
súlum, en upp að byggingunni liggja
mörg þrep úr marmara. Eh fyrir
framan bygginguna stendur riddara-
líkneski Victors Emanúels II.
konungsins, sem ásamt stjórnmála-
manninum Cavour og kappanum
Garibaldi tókst að sameina ríkið á
hinum viðburðaríku árum kringum
1800. Minnismerki þetta, sem stund-
um er kallað hið nýja Kapitolium
Itómaborgar, stendur þar sem forð-
um stóð musteri Juno Monetu. Það
er að utan úr eintómum marmara,
og vegna ]>ess að það stendur á
stöllóttri hæð og þrepin upp að því
eru svo mörg, virðist það enn mikil-
fenglegra en ella mundi. — Victor
Emanúel II. var fyrsti konungur
ítala, en sá fyrsti með því nafni var
konungur Sardiníu. Victor II. var
sonur Karls Alberts Sardiníukonungs
og varð konungur þar, er faðir hans
varð að segja af sjer, 1849. Konung-
ur ítala varð hann 18(51 og dó 1878,
og var þá 58 ára gamall. Var hann
faðir Umbertos konungs, sem myrt-
ur var árið 1900, en afi Victors
Emanúels III., núverandi Ítalíukon-
ungs.
Fálkinn flýgur
inn á hvert heimili
Bann við rafmagnshitun
Samkvæmt samþykt bæjarstjórnar 17.
f. m. er bönnuð öll rafmagnshitun í hús-
um á tímabilinu kl. 10,40 til kl. 12 á
hádegi.
Þeir sem brjóta bann þetta, verða látn-
ir sæta ábyrgð, samkv. reglug'erð Raf-
magnsveitunnar.
RAFMAGNSSTJÓRINN í REYKJAVÍK.
FYRSTI S.-AMERÍKUMAÐUR, SEM FJEKK VICTORIAKROSSINN
var Geovcj Murray Smythe. Iíann sjest hjer á myndinni tii
hœgri en hinn maðurinn er generalmajór Dan Pienaar, sem
er að óska honum lil hamingju með heiðurinn. Smylhe fjekk
krossinn fyrir afrek, sem hann vann í Libyu-eyðimörkinni.
MATHILDA-SKRIÐDREKAR A LEIÐ f
STRÍÐIÐ.
Mathilda og Valentine heita skriðdrekarnir, sem Bretar hafa
framleitt einna mest af síðasta dr, og eru stórum fullkomnari
en skriðdrekar þeir, sem Bretar áttu í striðsbyrjun. Enskar
verksmiðjur starfa nú óslitið dag og nólt að framleiðslu þessara
skriðdreka, sem sendir eru jafnóðum til vígslöðvanna út um
heim, í Afríku, Indlandi og Rússlandi. Hjcr sjást nokkrir Mat-
hildu-skriðdrekur, sem verið er að setja um borð i skip, sem
flytur þá til vígstöðvanna.
Bandamenn hafa nýlega tekið Derna á nýjan leik, fyrir nokkr-
um dögum. Þessi mynd er af götu í Derna og tekin þegar Bretar
tóku bæinn seinast, nft. 19. desember í fyrra. Sjest h/er ind-
versk herflutningalest fara um göturnar.