Fálkinn


Fálkinn - 26.02.1943, Blaðsíða 5

Fálkinn - 26.02.1943, Blaðsíða 5
F Á L K I N N 5 Myndin er úr einu horninu í prentsmiðjunni, sem prentar „Hansard“. Prentsmiðjan notar Linotype-setjaravjelar. sem kemur til greina á þing- tíðindunum, en mjög sjaldan kemur það fyrir að beita þurfi henni. Áður en þingið tók útgáfu þingtíðindanna í sínar liendur, árið 1909, var það venja, að rekja ræður ráðherranna ítar- legar en annara þingmanna. En þirigið hefir brugðið frá þeirri venju, og ræðurnar eru birtar í heild, liver sem í hlut á. Upphafsmaður ensku þingtíð- indanna, eða „Hansard“ lijet William Cobbett og liggja eftir hann merkilegar lýsingar enskra sveita, eins og þær voru á sið- ustu öld. Árið 1803 fór hann að taka saman ágrip af helstu þing- frjettum, sem hann náði frá ýmsum heimildum. Maðurinn, sem prentaði þessi þingtíðinda- ágrip fyrir liann hjet Thomas Curzon Hansard, og var prent- ari í London. Hjelst þessi út- gáfustarfsemi í ætt hans í ná- lægt níutíu ár. Vann ritið fljótt álit og þótti flytja áreiðanleg- ustu þingfrjettirnar, sem völ var á, og taka mjög fram þing- frjettum blaðanna. Sigraði það í samkepninni við þau. sem þó var hörð, þvi að mörg blöðin höfðu valda menn sem þing- frjettaritara. Einn þeirra var skáldið Charles Dickens. Á þann mælikvarða, sem nú er lagður á prentað mál, var „Hansard“ fremur ljelegt rit, alla nítjándu öldina. Það kom seint út og tólc mikið af efni sinu upp úr blöðunum. Og þó það fengi síðar 3000 sterlings- punda ársstyrk úr ríkissjóði, þá batnaði það litið fyrir það. Voru oft settar nefndir í þing- inu til þess að liafa eftirlit með þessari útgáfustarfsemi. Á síð- asta áratug aldarinnar skifti útgáfan um eigendur, en engum tólcst að láta ritið bera sig. Sum- ir útgefendurnir fóru á hausinn, einn þeirra komst í bölvun fyrir það að taka auglýsingar í rit- ið. Og loks kom svo, að þingið tók sjálft að sjer útgáfuna, og hefir aldrei þurft að iðrast eftir það. Það kom i ljós í loftár^sun- um í London í ágúst 1940 að „Hansard“ er vel skipulagt fyr- irtæki. Það kom út liverju sem tautaði, því að rödd Parla- mentsins mátti ekki þagna. 1 einni af fyrstu árásunum beið sendimaður, er var á leið í prent srniðjuna með handrit, bana. Eftir það voru öll handrit skrif- uð í fleiri en einu eintaki og send í tvennu lagi. Eina nóttina kom sprengja í prentsmiðjuna meðan verið var að prenta blað- ið. Var þá flutt í aðra prent- smiðju, og blaðið kom út með öðru letri en vant var, en aðeins fáum klukkutímum seinna, en vant var. SIGURBOGINN f PARÍS. Á Place de 1’ Etoile (Stjörnutorg- inu) i París, en þaðan ganga tólf stórgötur Parísar, þar á meðal hin fræga Champs Elysées, stendur stærsti sigurbogi heimsins. Er hann reistur til minningar um sigra Frakka, og það var hinn mesti af öllum sigurvegurum Frakka, Napo- leon mikli, sem ljet byrja á smiði hans. En fullgerður varð boginn ekki fyr en i stjórnartíð Lúðvíks Filippusar, „borgarakonungsins“. Hann er 49 metra hár og nær 45 metra breiður, alsettur lágmyndum, sem eiga að tákna ýmsa franska sigra. Venjulega er hliðið í bogan- um ekki opið fyrir umferð, og ekki* opnað nema við hátiðleg tækifæri, svo sem eins og eftir síðustu heims- styrjöld þegar þeir Joffre og Foch marskálkur riðu gegnum hliðið i STÆRSTA INNRÁS VERALDARINNAR AF SJÓ er innrás Bandaríkjamanna og Breta i Tripolis og Marokko kölluð. Margir mánuðir fóru í undirbúninginn og hinn mikli floti, um 500 skip, sem flutti leiðangurinn og allan farangur hans komst upp að Afrikuströndum, án þess að herskip Mönd- ulveldanna yrðu vör við. En þessum 500 flutningaskipum fylgdu um 350 herskip, smærri og stærri. Þessi mynd er af hermönnum, sem gengu á land við Arzou, skamt frá Oran, en annars var landgangan gerð á fjöldamörgum stöðum samtímis. ► Honey-skriðdreki úr 8. hernum fer framhjá yfirgefnum þýskum Mark-Ill skriðdreka. Enskur hermaður hefir komið sjer fyrir með hlustunarlæki bak við skriðdrekann. fararbroddi franska hersins. Undir boganum er jarðsettur hinn „ókunni liermaður“ Frakka, en flest önnur lönd ljetu jarðsetja sinn ókunna hermann í aðalkirkju landsins. Þannig er t. d. ókunni hermaður- inn enski jarðsettur i Westminster Abbey. Læknirinn haföi ráðlagt Wac- Pherson að hætta að drekka whisky, því að það mundi lengja lífið. „Þetta er víst alveg rjett, læknir. Einu sinni drakk jeg ekkert i heil- an sólarhring, og það er lengsti dag- urinn, sem jeg hefi lifað.“ /VlVWlVM Dæmi um ofmikla bjartsýni er það þegar atvinnulausi Gyðingurinn keypti sjer farmiða til Aberdeen, en engan til baka.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.