Fálkinn


Fálkinn - 26.02.1943, Page 12

Fálkinn - 26.02.1943, Page 12
12 F Á L K I N N Louis Bromfield: 46 AULASTAÐIR. Þau óku nú með ofsahraða, eins og Iíobbi var vanur, út úr borginni. En þetta var annars ekki líkt borginni, eins og þau þektu hana best, því einhver annarlegur töfra- ljómi lá yfir öllu. Þau sögðu ekki auka- tekið orð, og þau voru komin tíu mílur út í sveit, þegar Kobbi ók út á vegarbrún og stöðvaði græna bílinn. Þarna hefði þurft að vera trje eða bara blómrunnar, en þarna á víðlendu sljettunni var slíkt ekki til, nema þá einhverjir runnar kringum sveitabæ- ina. Þarna á þessu víðlendi miðju, þar sem enginn sjónarvottur var, nema noklcrar góð- látlegar beljur hinumegin við vírgirðing- una, tók hann liana í fang sjer, kysti hana og hjelt henni í örmum sjer, lengi, lengi. — Loksins, þegar bæði voru orðin föl og taugaóstyrk, sagði hann: „Ætli við ættum ekki að flýta okkur til Mylluborgar, áður en eitthvað skeður?“ Þessi ökuferð var býsna ólík hinni, fyrir mánuði, þegar þau höfðu rifist og Kobbi stöðvað bílinn og hótað að snúa aftur til Flesjuborgar. Nú töluðu þau um kross- ferðina, Ríkharðs, Bókina, fangelsisrofið og jafnvel um væntanlega brottför Dorta gamla, þó ekki alvarlega, lieldur rjett eins og þetta væri alt mesta hlátursefni. Já, nú stóð líka sannarlega á sama um það! Sjana gerði sig seka um það að skríkja, en þá íþrótt hafði hún aldrei borið við áður á allri æfi sinni: En inst í huga sínum var hún hugsandi: „Kannske þetta, sem skeði, hafi nú alt verið til góðs? Jeg er búin að fá svolítið vit nú orðið. Jeg veit, hvað máli skiftir og hvað ekki. Og jeg skal aldrei verða ónotaleg oftar. Nei, svo lijálpi mjer guð, aldrei ónotaleg, hvað sem Kobbi kynni að gera.....nú, þegar jeg veit orðið, hvað jeg vil. Jeg er hálfhrædd við það að vera svona sæl. Og öðruhvoru skotraði liún aug- unum til Kobba, til þess að vita, livort liann væri nú þarna og þetta væri nú ekki alt saman draumur. Og hún hugsaði: „Kannske var það nú bara betra, að hr. Rikharðs skyldi koma og hræra upp í pottinum.“ Þegar þau fóru niður síðustu brekkuna niður að safírbláa vatninu, sagði Kobbi: „Þessi Ríkharðs er nú eiginlega allra besti náungi.“ Hún hló. — „Þú varst samt einu sinni hræddur um mig fyrir honum, var það ekki ?“ „Jú, víst skal jeg játa það; afbrýðissam- ur eins og fjandinn sjálfur.“ „Það var óþarfi. Hann er ekki annað en vjel. Hann er als ekki eins og maður. Hann er bara uinbótamaður.“ „Jeg skal bölva mjer upp á það, að þú hefir reynt að gera þig til fyrir honum.“ „Já, en það var bara til þess að gera þig afbrýðissaman.“ „Þjer tókst það líka.“ Það var hr. Rikharðs, sem stakk upp á því að halda miðdegisveislu mikla, til þess að halda liátíðlegar sættirnar og svo trúlofun Sjönu Baldvins og Kobba Dorta. Hann vildi fá að lialda liana sjálfur, í fín- asta gistihúsi borgarinnar, en þá spyrnti frú Lýðs við fótum. „Það getum við ekki, Öddu vegna,“ sagði hún. „Hún yrði aldrei jafngóð aftur, ef hún fengi ekki að búa til matinn. Hún getur fengið hana Aþenu l’rænku sína til til þess að ganga um beina við borðið. Við liöfðum hana altaf forðum daga, þegar gestir komu. Hún liefir unnið lijá ríkum bruggara í St. Louis og kann þetta á fingrum sjer.“ Þau settust nú við og sömdu boðslistann. Þar mátti fyrst frægan telja, hi'nn mikla mann, Burnham frá Blaðahringnum með sama nafni, Villa og Mörtu Frikk, »Jabba Nýborg og svo foreldra Sjönu. „En Dorta gamla?“ spurði Ríkharðs. „Hann er farinn. Fór til Daytona, daginn fyrir blysförina.“ Hún hugsaði sig ofur- lítið um og sagði siðan: „En það er annar gestur, sem mig langar til’að bjóða.“ „Hver er það?“ „Gasa-María.“ .... „Já, auðvitað bjóðum við henni.“ I stiheila tvo daga þræluðu þær frænkur, Adda og Aþena, við undirbúning veisl- unnar og sváfu saman í rúmi Öddu á næt- urnar. Þetta átti nú heldur en ekki að vera veisla í lagi og það yrði of langt mál að telja upp alla rjettina, því Adda vildi helst búa til alt, sem hún kunni, en það var býsna margt. Veisludaginn braust Adda um fast og ljómaði öll af gleði. Við þetta var ekkert að athuga, þvi mesta gleðiefni hennar i lif- inu var það að fóðra sem flesta í senn á sem bestum mat. En það var annað í fasi liennar, sem vakti grunsemdir í brjósti frú Lýðs. 1 þrjátíu ár höfðu þær verið hús- móðir og hjú og í þrjátíu ár höfðu þær verið óaðskiljanlegir vinir og þekt hvor aðra út í æsar. Frú Lýðs þekti því öll kenni- teikn, sem gáfu það til kynna, að Adda byggi yfir leyndarmáli. Þau voru næstum eins greinileg og hin, sem gáfu til kynna „vesöldina“ i henni. Þarna gekk Adda um allan daginn brosti undurfurðulega, skríkti og Ailaði við sjálfa sig. Alt frá hádegi, veisludaginn, vissi frúin, að Adda bjó yfir einhverju. Hinsvegar þýddi ekkert að spyrja hana. Þegar Adda bjó yfir leyndarmáli, eða ætlaði að gera einhvern hissa eða koma á óvart, varð tilefnið ekki togað upp úr henni með töngum. Og ekki hafði frúin minstu hug- mynd um, hvað það væri í þetta sinn. En grunsemdirnar beindust í sjerstaka átt, þegar frúin fór inn, til þess að athuga borð- ið og sá þá, að lagt hafði verið á það ein- um diski of margt. Þegar frúin spurði Öddu um þetta, kom liálfgert fát á gömlu konuna, en sló því samt upp í það, að Aþena hefði gert þet'ta i ógáti. „Hún er orðin hálfgerður bjáni,“ sagði Adda og tók diskinn burt með eigin hendi. En skömmu seinna, þegar frúin kom inn aftur, var diskurinn kominn þar á sinn stað, og þá* þóttist hún viss um, að nú byggi Adda yfir einhverju í sambandi við hann. Árangurs- laust braut hún heilann um þetta, en gætti þess hinsvegar vel, að nefna það ekki frek- ar við Öddu. Frú Lýðs tók sjer ldukkustund seinni partinn og fór i hárgreiðslustofu — i fyrsta sinn á æfinni. Síðan klæddist hún sínum besta skrúða og þegar hún leit í spegilinn, varð liún alveg hissa, hve vel liún leit út — og einkum hve róleg. Hún var næstum ungleg, að minsta kosti hafði hún ekki verið svona upg, síðustu tiu árin. Það var eins og síðustu tveir—þx-ír dagarnir hefðu sljett út hrukkur í tugatali. Þegar hún stóð þarna, heyrði hún, að hr. Ríkharðs kom út úr sínu herbei’gi, gekk niður stigaiin og út á götu. „Hvað getur maðui-inn verið að fara, og ekki nema hálftími þangað til við eig- um að fara að borða?“ hugsaði frú Lýðs. Lengra komst hún ekki í þessum heila- hi-otum, þvi nú kom vagninn, sem hafði að færa foi-eldra Sjönu, og hún varð að fara fram og fagna þeim. Stundarkorni síðar kom Jabbi Nýborg og þá kom Sjana niður til þess að sjá um kokkteilinn, síðan kom hr. Burnham og loks Gasa-María í leiguvagni, íklædd ljós- grænum kjól með hvítan ref á herðunum. Hún var með kamba í hárinu, alsetta gim- steinum og alt brjóstið var prýtt skraut- gripum. Næst kom Villi Frikk, 1 leigðum kjólfötum, sem hjengu utan á honum eins og tjald, og Marta kona hans i bláum kjól. Rjett á eftir þeim kom Kobbi Dorta. Nú var vörin á honum ekki lengur bólgin, en augað liefði getað verið fallegra, og yfir andlit hans breiddist nú bros, sem var bæði ánægjulegt og kindarlegt í senn. Sjana gekk um með glösin og brátt tóku gestirnir að verða skrafhreyfnir og fjör- ugir. Hr. Burnliam og Gasa-Max-ía ui'ðu á svipstundu mestu kunningjar og gæddu hvort öðru á sögum af því, hvernig lífið var áður fyrr i danssölum og drykkjukrám hinna ýmsu borga á Árbakkanum. Einu sinni, tvisvar og þrisvar fór frú Lýðs út að glugganum, til þess að vita, hvort ekkert sæist bóla á lir. Ríkharðs, en svo var ekki. Loksins í fjórðu ferðinn sá hún til hans. Hann kom upp þrepin og með honum „númex-ið“ hennar Öddu gömlu: ókunnug stúlka. Fx’úin sá hana ekki nema rjett í svip en gat þó sjeð af klæðaburði hennar, að hún var lengra að komin en úr Flesju- borg sjálfri. Augnabliki síðar voru þau komin inn, og Ríkliarðs sagði: „Má jeg kynna yður unnustu mína, ungfrú Higg- inson.“

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.